Fjölbreytt og áhugaverð dagskrá verður á Háskóladeginum sem haldinn verður á morgun, laugardaginn 5. mars. Stundvíslega klukkan 12:00 á hádegi opnar Háskóli Íslands dyr sínar fyrir almenningi og kynnir starf sitt fram til fjögur sama dag.
Í boði verða ótal viðburðir, lifandi skemmtun og kynningar á því starfi sem fram fer í skólanum. Allir ættu eitthvað að finna við sitt hæfi en á dagskrá má finna japanskt dansatriði, stapp- og rytmaklapp, Vísindabíó og kínverskan dreka svo eitthvað sé nefnt.
Munu öll fræðasvið skólans kynna starfsemi sína og því upplagt að mæta til að sjá hvað í boði er í þeim fjölmörgu námsleiðum sem finna má hjá sviðunum.
Ókeypis strætóferðir verða yfir í Háskólann í Reykjavík þar sem starfsemi hans og Háskólans á Bifröst verða kynnt og einnig í Listaháskólann sem mun kynna sig þar.Á Háskólatorgi munu Háskólinn á Hólum, Háskólinn á Akureyri, Landbúnaðarháskóli Íslands, Listaháskóli Ísland auk Endurmenntunar Háskóla Íslands kynna starfsemi sína. Þá munu ýmis félag og stofnanir innan skólans kynna starfsemi sína á annarri hæð torgsins.
Ókeypis strætóferðir verða yfir í Háskólann í Reykjavík þar sem starfsemi hans og Háskólans á Bifröst verða kynnt og einnig í Listaháskólann sem mun kynna sig þar.
Nánari upplýsingar á vef Háskóla dagsins og Facebook síða háskóladagsins.
[fblike]
Deila