Hver er hræddur?

[cs_text text_align=”none”]
Hver er hræddur við Virginiu Woolf (1962) eftir Edward Albee er í hópi leikrita sem kölluð hafa verið „sígild nútímaverk“ (modern classics). Þetta eru t.d. stórvirki eftir Albee, Arthur Miller og Tennessee Williams frá sjötta og sjöunda áratugnum. Þessi verk hafa oft verið leikin upp á síðkastið, bæði hér og í nágrannalöndunum. Það má alveg spyrja hvers vegna. Hvað er það við þetta kaldastríðstímabil sem talar til leikhússins núna?
Andrúmsloft margra þessara leikrita er mettað af ógn og sekt vegna óuppgerðra myrkraverka sem reynt er endalaust að leyna án árangurs. Karlmennskuímyndin er í upplausn (ekki í fyrsta og trúlega ekki í síðasta sinn). Í Ameríku sýndu Hollywoodmyndirnar kalda karla og uppreisnargjarna unga menn en atvinnulífið/stórfyrirtækin heimtuðu undirgefni, aðlögun og samvinnu. Kinsey skýrslan 1948 skók allar áður gefnar forsendur um kynhneigð og kyngervi en í henni kom fram að næstum helmingur karla sem rannsóknin náði til laðaðist kynferðislega að báðum kynjum. Það var að sjálfsögðu ekki látið óátalið af sönnum trúmönnum og heiðarlegum amerískum borgurum. Minnihlutahópar voru ofsóttir, kynt var undir ótta manna daga og nótt. Erum við aftur komin á þennan stað – maður spyr sig?

Hugras_virginiawolf1

Georg og Marta leika sér

Borgarleikhúsið býður í öllu falli upp á þetta fræga verk Albees frá 1962 í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar. Sviðsmynd Grétars Reynissonar sýnir ekkert venjulegt efri millistéttarheimili. Leikmyndin er eins og módernístískt listaverk. Hún er í raun frásagnarspegill (mise en abyme) eða mynd inni í mynd (inni í mynd). Innsta myndin sýnir draum Mörtu og Georgs. Það má líka sjá þessa þrjá ramma sem þrjú leiksvið því leikið er á öllum römmunum, ef svo mætti að orði komast. Þetta er mjög flott. Búningar Helgu I. Stefánsdóttur endurspegla sjöunda áratuginn og um tónlistina sá Margrét Kristín Blöndal á sinn persónulega og húmoríska hátt.

Hugras_virginiawolf3

Inni í þessum römmum – eða á þessum sviðum – fer fram eftirpartý miðaldra háskólakennarans Georgs (Hilmir Snær Guðnason) og rektorsdótturinnar Mörtu (Margrét Vilhjálmsdóttir) í háskólabænum Nýju Karþagó. Þar eru hvorki sparaðir sterkir drykkir né stór orð. Gestir þeirra eru ungt og fallegt par, karlinn (Eysteinn Sigurðsson) er nýr við háskólann og konan (Elma Stefanía Ágústsdóttir) er mjög nervus og báðum er mikið í mun að kynnast eldra parinu og koma vel fyrir. Þau eru dregin inn í ritúalíska leiki gestgjafanna þar sem sverðfimir þátttakendur skylmast með orðum og stefna að því að gjöreyða hvort öðru. Þau eru vel máli farin og leika sér að orðunum, snúa upp á þau, skemmta sér konunglega yfir vísunum, myndhverfingum, orðabrengli og klisjum. Það er ekki fyrir hvern sem er að þýða slíkt verk en Sölku Guðmundsdóttur bregst ekki bogalistin.

Stórleikaraleikrit

Georg og Marta þekkja hvort annars veikleika og vita hvað særir mest. Einvígi þeirra er undir formerkjum kvala- og sjálfspyntingarlosta en hvorugt þeirra er sjálfgefið fórnarlamb. Bæði eru leikendur í leikriti sem þau hafa komið sér saman um. Þetta er mikilvægt. Leikrit kvala- og sjálfspyntingarlostans gengur út á það að báðir aðilar virði handritið og stöðvi leikinn þegar komið er að mörkunum. Nema í þetta sinn rýfur Marta samninginn óvænt í upphafi leiks og afleiðingarnar verða hörmulegar. Þetta leikrit er fjársjóðskista fyrir sálgreinandann!

Fyrsti hluti leikritsins hjá Albee heitir: Skemmtun og leikir, annar þátturinn heitir Valborgarmessa og sá þriðji Særingar. Í þremur lotum berst þetta magnaða par, átökin harðna, þau draga yngri hjónin snemma inn í þau, fyrst sem áhorfendur og smám saman sem þátttakendur, og ná að stórskaða þau. Undir morgun þurfa gestgjafarnir ekki lengur á þeim að halda og reka þau heim.

Hugras_virginiawolf2

Margrét Vilhjálmsdóttir og Hilmir Snær Guðnason gnæfa yfir sýninguna. Það er þess virði að fara og sjá þetta leikrit þó ekki væri nema til þess að sjá þau takast á við þetta fræga par. Margrét á sterka innkomu í upphafi sýningar á móti þreyttum og hverdagslegum George og ég hefði þegið rólegri byrjun og skýrari stíganda í hverjum þætti eða lotu. Bæði Margrét og Hilmir Snær fara hins vegar með þessi hlutverk yfir allan skalann. Samleikur þeirra er mjög fínn og sömuleiðis tímasetningar – þau eru bæði ofurleikarar sem geta verið grótesk, hömlulaus, trúðar eða púkar eins og þegar Georg hefur tekist að etja ungu hjónunum saman. Þá skemmta þau sér vel saman á einhvern undarlega gleðilausan hátt.

Arftakar

Elma Stefanía Ágústsdóttir lék ungu konuna á nýjan hátt og nútímalegri en venjan er til. Hutverkið mótast af kvenfyrirlitningu sjöunda áratugarins, hún er kölluð „mús“ og Georg talar um vaxtarlag hennar í þriðju persónu eins og hún sé ekki viðstödd. Hún var eina persónan sem varð blindfull af öllu brennivíninu sem ofan í hana rann og í túlkun Elmu Stefaníu braust fram hjá þessari ungu konu gríðarleg reiði. Hún varð alveg fokvond, uppreisnargjörn og særð, og ávann sér eindregna samúð áhorfenda. Kærasti hennar, Eysteinn Sigurðsson, var litdaufari og ég áttaði mig ekki alveg á lögninni í persónunni. Hann er keppinautur og áskorandi Georgs og hlutverkið býður upp á meiri árásargirni og tvöfeldni þó að hann segi ekki margt. Hins vegar var mjög skýrt í sýningunni að pörin spegla hvort annað og unga parið er nánast í læri hjá því eldra, einhvern veginn svona leikrit munu þau leika þegar þau eru sjálf orðin prófessorshjón í háskólabænum Nýju Karþagó.

[Ljósmyndir við grein: Grímur Bjarnason][/cs_text]

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

[cs_text text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

118000781

118000782

118000783

118000784

118000785

118000786

118000787

118000788

118000789

118000790

118000791

118000792

118000793

118000794

118000795

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701