Áfrýjanir til dómstóls götunnar

[cs_text text_align=”none”]Víst hefur okkur miðað nokkuð í uppgjörinu eftir Hrunið 2008. Skýrslur hafa verið birtar sem varpa ljósi á atburðarásina, sérstakur saksóknari hefur sent nokkra tugi mála til ákærumeðferðar, ákært hefur verið í á þriðja tug mála og dæmt í hluta þeirra. Þó er langt í að þessu réttarfarslega uppgjöri ljúki. Auðvitað er enn lengra í land á þeim sviðum uppgjörsins sem dýpra rista og þróun mála er hægari. Þar á ég við að grundvallartraust okkar á ýmsum lykilstofnunum samfélagsins og virðing okkar fyrir þeim verði endurheimt. Á miklu ríður að árangur náist á þessu sviði. Með þessu á ég ekki við að gagnrýni þagni og almennu aðhaldi með stofnunum samfélagsins linni eins og ýmsir stjórnmála- og embættismenn virðast oft láta sig dreyma um. Lifi gagnrýni og aðhald! Félagsleg velferð og vellíðan okkar allra byggist hins vegar á trausti og tiltrú okkar hvers til annars og til sameiginlegra stofnana okkar. Þangað verðum við að ná sem fyrst.

Sökum þessa hafa tvær greinar eftir fyrrverandi bankamenn sem birtust í Fréttablaðinu nú á nýbyrjuðu ári vakið umhugsun mína. Þar á ég við greinarnar „Lágkúruleg grimmd“ (8. janúar) og „Vont er þeirra ranglæti, verra þeirra réttlæti“ (9. janúar).

Grimmileg mannréttindabrot?

Greinahöfundar eiga það sammerkt að þeir bera dómskerfið þungum sökum — en á því hvílir uppjörið eftir Hrunið hvað þyngst nú um stundir.

Í fyrri greininni er látið að því liggja að bankamenn hafi verið dæmdir eftir ótilgreindum „óskráðum reglum“. Í þeirri síðari er gengið mun lengra. Þar er fullyrt að dæmi séu um að dæmt hafi verið fyrir brot sem hafi verið „ósönnuð með öllu“, að erfitt sé að sjá að dómur hafi verið byggður á réttarhaldi og málsvörn, að maður hafi mátt sæta margra ára ströngum rannsóknum að „óþörfu og ósekju“, að sannleikurinn hafi verið afbakaður, að dómarar hafi einskis „látið ófreistað til að treysta eigin tilverugrundvöll og sefa reiði“, að dómur hafi verið byggður „á fyrirfram gefinni niðurstöðu“ og að engu hafi skipt hvað kom fram við rannsókn og réttarhöld, að manni hafi verið meinað að leggja fram sönnunargögn, að sönnunargögnum um sakleysi hafi verið eytt, að fyrst og fremst hafi verið byggt á „keyptum framburði uppljóstrara“ í sumum málum og engar sönnur verið færðar á ákæruefni.

Hér er auðvitað látið að því liggja að ákæru- og dómsvalið í landinu hafi brugðist og skefjalaus mannréttindabrot verið framin í félagspólitískum tilgangi og að gengið hafi verið fram á grimmilegan hátt til að sefa reiði.

Réttlætisgyðja með pólitískt nef?

Hvorugur greinahöfunda virðist sjá neitt athugavert við það að sakborningar gerist dómarar í eigin sök. Þeir virðast telja fullgilt að stefna áliti þeirra gegn dómsniðurstöðum og að eðlilegt sé fyrir háttsetta fyrrum bankamenn að álykta að þeir „séu fórnarlömb skipulegrar aðfarar“.

Þessi ummæli dómarans eru sýnilega tilfærð til að sannfæra lesendur um að réttlætisgyðjan sé ekki lengur blind …
Þá eiga höfundarnir einnig sammerkt að báðir vísa til orða Símonar Sigvaldasonar, héraðsdómara og formanns dómstólaráðs, í útvarpsviðtali þess efnis að ekki megi gleyma að dómstólar séu „sprottnir upp úr okkar eigin samfélagi og eig[i] að endurspegla viðhorf okkar til málefna líðandi stundar“ og „að dómarar „endurspegli samfélagsvitundina“. Þessi ummæli dómarans eru sýnilega tilfærð til að sannfæra lesendur um að réttlætisgyðjan sé ekki lengur blind, sem tryggja á jafna stöðu allra fyrir lögunum, heldur láti hún stjórnast af „pólitísku nefi“.

Loks má líta svo á að í síðari greininni felist bein storkun. Mál greinarhöfundar er í áfrýjunarferli. Verði hann einnig dæmdur sekur í Hæstarétti virðist honum gefa auga leið að dómurinn verði byggður á óvild dómara vegna gagnrýni sinnar. Ummæli af þessu tagi eru til þess fallin að draga úr vægi dómsins áður en hann er fallinn.

Takmarkanir vísinda og dómstóla

Nú fjallaði viðtalið við Símon Sigvaldason vissulega ekki um efnahagsbrot heldur nauðgunarmál. Í viðtalinu lagði hann áherslu á að við dóma í slíkum málum yrði að taka tillit til nýrra rannsókna í öðrum greinum en lögfræði. Benti hann m.a. á að í ljósi þeirra gætu dómarar ekki einblínt á þá líkamlegu áverka sem þolendur kynferðisofbeldis yrðu fyrir heldur bæri þeim einnig að taka tillit til andlegra áfalla sem þeir gætu hlotið, t.d. áfallastreituröskunar. Ég hygg að í samfélaginu séu sterkar væntingar um að dómarar taki tillit til þessa í störfum sínum. Mér virðist samt ekkert tortryggilegt felast í þeim ummælum sem höfð eru eftir Símoni í greinunum séu þau heimfærð upp á efnahagsbrot né að ummæli hans bendi til að réttlætisgyðjan láti nú um stundir stjórnast af pólitík, grimmd og hefnigirni.

Skrif af þessu tagi þjóna engum tilgangi öðrum en að tefja og draga hin sársaukafullu eftirmál Hrunsins á langinn fyrir okkur öll.
Störf dómara eru í eðli sínu sérfræðileg rannsóknarstörf þar sem saman fer mat á málsatvikum, túlkun á lagatextum og heimfærsla þeirra upp á einstakar aðstæður í tíma og rúmi, sem sé meint brot. Um rannsóknir af þessu tagi gildir sama máli og um allar vísindalegar rannsóknir. Fyrir nokkrum áratugum var því haldið fram að vísindamönnum bæri að vera fullkomlega hlutlægir og hlutlausir ella væru niðurstöður þeirra ómarktækar. Nú líta flestir svo á að þetta sjónarmið byggi frekar á draumi en veruleika. Enginn maður geti í raun verið hlutlægur og hlutlaus einmitt vegna þess að við eru öll mannleg, mótuð af samfélagi okkar og menningu, þekkingu, tilfinningum og kenndum. Þetta þýðir hins vegar ekki að störf fræðafólks og þar með dómara séu marklaus, byggð á duttlungum eða þess vegna einstaklingsbundin eða samfélagsleg grimmd í tilviki bankamannanna. Í orðum Símonar virðist þvert á móti felast viðurkenning á mannlegum takmörkunum, m.a. dómara, og sú vitund að félagslegur veruleiki mótar ávallt túlkanir og heimfærslu á textum, m.a. lagatextum.

Í huga einhverra kann þetta að rýra tiltrú til dómstóla en í raun þarf svo alls ekki að vera. Þvert á móti felst í þessu auðmýkt og virðing fyrir sannleikanum: Það er enginn dómur fullkominn eða óumdeildur. Þeir eru hins vegar vonandi allir byggðir á bestu vitund þeirra sem að þeim standa á hverjum tíma og innan marka nútíma réttarríkis, öfugt við það sem látið er að liggja í nefndum greinum. Í mínum huga eru því orð Símonar Sigvaldasonar til þess fallin að auka traust til hans sem dómara og raunar dómstóla almennt en alls ekki til að rýra það.

Tilgangslaus skrif

Greinahöfundarnir hafa vissulega allan rétt á að tjá tilfinningar sínar en það er fyrst og fremst það sem þeir gera í greinum sínum. Skrif af þessu tagi kalla okkur lesendur aftur á móti til ábyrgðar. Við verðum að virða rétt fyrrum háttsettra bankamanna til „að standa með eigin málstað“. Við megum hins vegar ekki láta skrif af þessu tagi villa okkur sýn, draga úr trausti okkar til ákæru- og dómsvaldsins eða draga það niður í svaðið.

Greinahöfundarnir og þeir sem á eftir kunna að koma verða hins vegar að gera sér ljóst að skrif af þessu tagi þjóna engum tilgangi öðrum en að tefja og draga hin sársaukafullu eftirmál Hrunsins á langinn fyrir okkur öll. Þau bæta síst af öllu stöðu þeirra sjálfra eða fyrrum samstarfsmanna þeirra. Það getur enginn leikið dómara í eigin sök með trúverðugu móti. Hins vegar er það svo að komist einhver að yfirvegaðri niðurstöðu um að hann eða hún hafi verið beitt grófu mannréttindabroti af opinberum aðilum, ekki síst dómurum, ber viðkomandi siðferðileg skylda til að leita réttar síns fyrir yfirþjóðlegum mannréttindadómstólum, hafi þeir til þess burði eins og ætla má að fyrrum æðstu stjórnendur föllnu bankanna hafi. Það er eina leið þeirra til fá úr því skorið hvort þeir séu fórnarlömb eða ekki. Þá stoðar á hinn bóginn lítið að freista þess að stefna dómstól götunnar gegn dómstólum landsins en það virðist einmitt helsta markmið greinahöfundanna í Fréttablaðinu nú í byrjun ársins.

[Myndskreyting Sóley Stefánsdóttir][/cs_text]

Um höfundinn
Hjalti Hugason

Hjalti Hugason

Hjalti Hugason er prófessor í kirkjusögu við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Hann hefur stundað rannsóknir á ýmsum sviðum íslenskrar kirkjusögu og kirkjuréttar en auk þess ritað um trú, samfélag og menningu á ýmsum vettvangi. Sjá nánar

[cs_text text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1212

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

11001

11002

11003

11004

11005

11006

11007

11008

12001

12002

12003

12004

12005

12006

12007

12008

12009

12010

20001

20002

20003

20004

20005

20006

20007

20008

20009

20010

30001

30002

30003

30004

30005

30006

30007

30008

30009

30010

10236

10237

10238

10239

10240

11010

11011

11012

11013

11014

11015

11017

11018

11019

12011

12012

12013

12014

12015

12016

12017

12018

12019

12020

20011

20012

20013

20014

20015

20016

20017

20018

20019

20020

30011

30012

30013

30014

30015

30016

30017

30018

30019

30020

11020

11021

11022

11023

11024

11025

11026

11027

11028

11029

11030

11031

11032

11033

11034

12021

12022

12023

12024

12025

12026

12027

12028

12029

12030

12031

12032

12033

12034

12035

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

30021

30022

30023

30024

30025

30026

30027

30028

30029

30030

30031

30032

30033

30034

30035

9041

9042

9043

9044

9045

10196

10197

10198

10200

10201

10202

10203

10204

10205

11035

11036

11037

11038

11039

11040

11041

11042

11043

11044

30036

30037

30038

30039

30040

30041

30042

30043

30044

30045

10191

10192

10193

10194

10195

11045

11046

11047

11048

11049

11050

11051

11052

11053

11054

11055

11056

11057

11058

11059

12036

12037

12038

12039

12040

12041

12042

12043

12044

12045

12046

12047

12048

12049

12050

20036

20037

20038

20039

20040

20041

20042

20043

20044

20045

20046

20047

20048

20049

20050

30046

30047

30048

30049

30050

30051

30052

30053

30054

30055

30056

30057

30058

30059

30060

10176

10177

10178

10179

10180

11060

11061

11062

11063

11064

11065

11066

11067

11068

11069

11070

11071

11072

11073

11074

12051

12052

12053

12054

12055

12056

12057

12058

12059

12060

20051

20052

20053

20054

20055

30061

30062

30063

30064

30065

30066

30067

30068

30069

30070

10086

10087

10088

10089

10090

10091

10092

10093

10094

10095

10096

10097

10098

10099

10100

11000

11001

11002

11003

11004

11005

11006

11007

11008

11009

20056

20057

20058

20059

20060

20061

20062

20063

20064

20065

30071

30072

30073

30074

30075

30076

30077

30078

30079

30080

30081

30082

30083

30084

30085

30086

30087

30088

30089

30090

news-1212