Í bókinni eru 16 greinar eftir 20 fræðimenn frá ýmsum löndum og úr ýmsum greinum hug- og félagsvísinda. Í fyrsta hlutanum er fjallað um kreppur í víðu sögulegu samhengi, þróun velferðarhugtaksins og þátt vaxandi ójöfnuðar í efnahagshruninu 2008. Annar hlutinn fjallar um pólitísk viðbrögð við keppunni og afleiðingar hennar á félagslega velferð. Í þriðja hluta er beitt kynjafræðilegu sjónarhorni og rætt um áhrif kreppunnar á viðhorf til kynhlutverka og stöðu kvenna og karla. Í fjórða hluta er fjallað um almennar stjórnmálalegar breytingar í kjölfar kreppunnar og að hvaða marki hugmyndafræði nýfrjálshyggjunnar hefur haldið velli.
Lesandinn fær góða yfirsýn yfir samspil efnahagsáfalla og velferðarkerfa á undanförnum árum en í bókinni er einnig er að finna ítarlegar rannsóknir á afmörkuðum þáttum kreppunnar og einstökum löndum. Þau lönd sem sérstaklega eru skoðuð eru Bandaríkin, Bretland, Danmörk, Finnland, Írland, Nýja-Sjáland og Ungverjaland – að ógleymdu Íslandi sem fjallað er um í fjórum köflum. Höfundar þeirra eru Guðmundur Jónsson, Ingólfur V. Gíslason, Magnús Sveinn Helgason, Stefán Ólafsson og Vilhjálmur Árnason.
Bókin er gefin út í ritröð norræna öndvegissetursins NORDWEL (The Nordic Welfare State – Historical Foundations and Future Challenges) sem ásamt öndvegissetrunum REASSESS og EDDU stendur að útgáfu bókarinnar. Ritstjórar eru Guðmundur Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og Kolbeinn Stefánsson félagsfræðingur og starfsmaður Hagstofu Íslands.
Höfundar: Michael Freeden – Christopher Lloyd – Diane Perrons – Daniel Béland – Alex Waddan – Stefán Ólafsson – Mairéad Considine – Fiona Dukelow – Guðmundur Jónsson – Magnús Sveinn Helgason – Matti Hannikainen – Jyl Josephson – Ivett Szalma – Judit Takács – Ingólfur V. Gíslason – Hanna-Kaisa Hoppania – Jane Kelsey – Michael Kuur Sørensen – Vilhjálmur Árnason.