Svansvottað samviskubit

Það er ávallt eftirtektarvert þegar nýir höfundar koma fram á sjónarsviðið. Matthías Tryggvi Haraldsson útskrifaðist af sviðslistabraut Listaháskólans í vor og var leikritið Griðastaður útskriftarverkefni hans.  Var það sýnt í Smiðjunni á Sölvhólsgötu, húsnæði LHÍ, í maí síðastliðnum. Allir deyja leikfélag setur verkið á svið og var það frumsýnt í Tjarnarbíói þann 6. október.

Leikritið er einleikur og fjallar um Lárus sem er starfsmaður hjá IKEA. Við fáum að fylgjast með honum setja sig í stellingar og undirbúa sig til að taka á móti nýjum hópi starfsmanna og setja þá ,,inn í málin“. IKEA hefur sérstakan sess í lífi Lárusar og í verkinu segir hann frá því hvernig IKEA hefur komið honum til bjargar á einn eða annan hátt.  Verkið fjallar um tilvistarkreppu; endalaust samviskubit gagnvart náttúrunni og fjölskyldunni, um lífið og dauðann og einsemd. Hlutir verslunarinnar, svo sem baðherbergi, sófar og kryddhillur, koma einnig hnyttilega við sögu.

Griðastaður er bráðskemmtilegt verk um hugarangur nútímamannsins; samviskubitið sem er alla að drepa. Matthías Tryggvi skrifar skemmtilegan texta á góðu máli. Það sem mætti kannski helst finna að verkinu er að stöku sinnum skortir á hnitmiðun í verkinu, sér í lagi þegar dregur að lokum þess. En það kemur þó ekki að sök í heildarmyndinni.

Jörundur Ragnarsson fer með hlutverk Lárusar. Leikur hans er áreynslulaus og nær Jörundur þessari hárfínu línu milli tragedíu og kómedíu.

Tónlist, eða eins konar hljóðmynd, Ingibjargar Ýrar Skarphéðinsdóttur er ágeng en um leið látlaus, kannski eins konar undirmeðvitund. Leikmynd, ljós og búningar styðja mæta vel við texta og látbragð leikarans, sem og verkið í heild.

Það verður gaman að sjá hvað þessi ungi höfundur kemur með næst á fjalirnar.

Um höfundinn
Ingibjörg Þórisdóttir

Ingibjörg Þórisdóttir

Ingibjörg Þórisdóttir er doktorsnemi í þýðingafræðum og starfar á alþjóðasviði Árnastofnunar. Hún hefur einnig sinnt stundakennslu í Deild erlendra tungumála og í Sagnfræði- og heimspekideild við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Ingibjörg er með meistarapróf í Mennta- og menningarstjórnun og bakkalárpróf í leiklist.

[fblike]

Deila