[container]
Í rannsóknadagatali Hugvísindastofnunar er yfirlit yfir sjóði sem styrkja rannsóknir, rannsóknanám og annað því tengt á sviði hugvísinda. Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands heldur úti styrkjadagatali fyrir öll fræðasvið háskólans þar sem er yfirlit yfir fleiri sjóði og áætlanir (sjá).Á vef Háskóla Íslands er yfirlit yfir styrktarsjóði Háskólans á sviði hugvísinda (sjá).
Hér að neðan er yfirlit yfir nokkra styrktarsjóði með sem taka við umsóknum á næstu mánuðum. Fyrir hvern umsóknafrest er krækja í vef sem veitir nánari upplýsingar um styrkina sem eru í boði.
Rannsóknaverkefni og rannsóknasamstarf
- 10. janúar: Durham rannsóknastyrkir (ársdvöl á fullum launum; m.a. í miðaldafræðum).
- 25. mars: ERC (yngra vísindafólk, 2-7 ár frá doktorsgráðu).
- 20. maí: ERC (“miðaldra” vísindafólk, 7-12 ár frá doktorsgráðu).
Þjálfun vísindamanna, doktorsnema og nýdoktora
- 15. janúar: Háskólasjóður Eimskipafélagsins og Rannsóknasjóður HÍ (doktorsnemastyrkir).
- 31. janúar: Saga og menning, Flórens (doktorsstyrkir við Evrópsku háskólastofnunina í Flórens).
- 9. apríl: Marie Curie ITN (samstarf um doktorsnám).
Styrkir til að undirbúa alþjóðlegt samstarf
- Opið (til 31. desember 2014): EEA styrkir Tékkland (tvíhliða samstarf við Tékkland; stuttar heimsóknir; vinnustofur).
- 12. febrúar: NOS-HS (undirbúningsfundir).
Samstarf um nám og kennslu
Sjóðir sem styrkja ferðir, ráðstefnur og í sumum tilfellum rannsóknir (styrkupphæðir oftast lágar)
- 15. febrúar: Letterstedtski sjóðurinn (ferðir, ráðstefnur).
Aðrir sjóðir og styrkir
6. apríl: NordForsk (rannsóknanet; sameiginleg notkun á búnaði; samstarf um rannsóknanám; sérstök áhersla á norræna menningu og norrænt samstarf).
[/container]