[cs_text]

Þú tókst í minn gula lokk
og vast mitt höfuð í serk.
Heyrðu það, herra kóng Símon,
þú vannst þar níðingsverk.

(Kvæði af herra kóng Símoni)

Í þessari umfjöllun er haldið á vit slóða sagnadansa fyrri alda og #Metoo atburðarsagna kvenna samtímans. Tilgangurinn með þessum greinarskrifum er að leiða saman raddir formæðra vorra og nútímakvenna Íslands, í umfjöllun um frásagnarhætti kvenna um kynbundið ofbeldi. Slík umfjöllun er við hæfi í ljósi þess að mikil umskipti eiga sér nú stað í samtímasögu kvenna fyrir tilverknað  kvenréttindabaráttunnar #Metoo. Andspyrna íslenskra kvenna gegn feðraveldinu tók stökk þegar fylgiskonur málstaðarins #Metoo þustu fram á völlinn. Á þessu augnabliki eykst fjöldi þeirra kvenna enn dag frá degi og vitnar um sögulega samkennd þeirra gagnvart uppsöfnuðu óréttlætinu. Á slíkum örlagatímum samtímans er nauðsynlegt að líta til sögunnar og heyra á raddir kvenna fortíðar. Kvenna er eitt sinn sungu kvæði um kynbundið ofbeldi, kvenna er tóku saman höndum og dönsuðu í hring. Sá liðsöfnuður sögukvenna er til gagns, þegar verið er að leggja hið forna feðraveldi að velli.

Sagnadansar hafa verið rannsakaðir út frá ýmsum sjónarhornum, s.s. Vésteinn Ólason prófessor í bók sinni Sagnadansar (1979), Aðalheiður Guðmundsdóttir prófessor í Sögu árið 2009, Ingibjörg Eyþórsdóttir doktorsnemi hefur flutt fyrirlestra um rannsókn sína á ofbeldi í sagnadönsum, Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir sem fjallaði um tengsl sagnadansa við kvennamenningu í sinni MA ritgerð (2016), Hildur Þórðardóttir í lokaritgerð sinni Sagnadansar í munnlegri hefð (2009), og Helga Kress fjallar um sagnadansa í bókinni Stúlka: Ljóð eftir íslenskar konu (1997).

Eingöngu er stuðst við íslenska sagnadansa og rannsókn Vésteins Ólasonar á þeim í þessari samanburðarathugun minni á sagnadönsum og #Metoo atburðarsögum. #Metoo atburðarsögur samtímans eru sóttar í opinberar yfirlýsingar íslenskra samtímakvenna um kynbundið ofbeldi. Til umfjöllunar er samhljómur kvenna sem fjalla um kynbundið ofbeldi í sögunni; samhljómur hinna hljóðlausu í sögunni. Takmark þessarar umfjöllunar er að gera lítillega grein fyrir þessum samhljómi kvenna þ.e.a.s. gera grein fyrir sameinkennum sagnadansa og #Metoo atburðarsagna. Hér eru á ferðinni kvennabókmenntir sem einkennast af hnitmiðuðum frásögnum af kynbundnu ofbeldi og sjónarmiðum kvenna.  Hér er um að ræða kvennahrynjanda í bókmenntasögunni.

Upphafið: „Nú mega hofmenn læra“

#Metoo byltingin ferðaðist yfir lönd og yfir höf fyrir tilstilli byltingasinna í Bandaríkjunum. Upphaf þeirrar ferðar kvenréttlætisins voru konur sem örkuðu fram á stærsta völl lýðræðisins, veraldarvefinn, og sögðu þögninni hátt og skýrt stríð á hendur með fulltingi ritmálsins. Byltingin barst síðan til stranda íslensku fiskveiðiþjóðarinnar með atburðarsögum erlendra kvenna, og hérlend bylting varð veruleiki: #Metoo bylting íslenskra kvenna. Formgerð byltingarinnar eru atburðarsögur íslenskra kvenna:

Ég var að leika í sýningu og varð hrifin af ljósamanninum. Við byrjuðum að hittast og ég vildi fara rólega og bíða með kynlíf þangað til við þekktumst betur. Kvöld eitt missti hann þolinmæðina og nauðgaði mér.

(#Metoo)

Sagnadansar eiga líkt og #Metoo atburðarsögurnar rætur að rekja yfir  Atlantsálana, að öllum líkindum til miðaldasamfélagsins í Frakklandi. Hér er um að ræða danskvæði sem konur áttu stóran hlut í að mynda og viðhalda. Kvæði er kveðin voru í dansi; „einkum á blómaskeiði sínu fyrir lok miðalda, en líka á kvöldvökum og við önnur tækifæri sem buðust til að skemmta fólki með kveðskap“ (Vésteinn 1979:83). Hér er á ferðinni sú bókmenntagrein miðalda þar sem konur höfðu hvað mest áhrif. Í þessari umfjöllun er fjallað um sagnadansa sem kallast nauðgungarkvæði er tilheyra kvæðaflokknum „nauðug ást“.

Reif hann hennar stakkinn,
reif hann hennar serk
áður hann gat framið
það syndsamlega verk.                                                    

(Kvæði af Margrétu og Eilíf)

Sagnakonur kynbundins ofbeldis: #Höfumhátt#Metoo

Styrkur sagnadansa og #Metoo atburðarsagna á rót að rekja til hópa fólks. Hópar fólks á miðöldum komu boðskap sínum á framfæri í sagnadönsum og hópar íslenskra samtímakvenna koma atburðarsögum sínum á framfæri fyrir tilstilli  #Metoo byltingarinnar á veraldarvefnum. Fyrr á tímum hverfðist frásögnin um hástéttina en atburðarsögur íslenskra nútímakvenna hverfast um örlög þeirra innan starfstétta. Frásagnarmátinn byggir á heimildum á einstaklingsgrunni. Frásagnir einstaklinga um kynbundið ofbeldi sem fólk fylkir sér saman um, og að endingu verður til hópur málflytjenda. Hópurinn skapar einstaklingnum færi á að tjá sig með öryggi, myndar einskonar brynju mannfjöldans. Hópurinn ávarpar samfélagið beint; undir formerkjum sagnakvenna kynbundis ofbeldis.

Í tilfelli sagnadansa er um að ræða kveðskapartegund sem er samin af munni fram og varðveitt í minni manna. Einkenni sagnadansa er að höfundarnir eru með öllu óþekktir og sama á gjarnan við um höfunda #Metoo atburðarsagna. Sögupersónur #Metoo atburðarsagnanna eru yfirleitt óþekktar öfugt við það sem reyndin er í sagnadönsunum. Hins vegar vill svo til að kvenpersónurnar sem sagnadansarnir fjalla um bera gjarnan sömu nöfn s.s. Ingigerður eða Signý og eru því í reynd samheiti þeirra kvenna sem orðið höfðu fyrir kynbundnu ofbeldi. Þessi yfirfærða nafnleynd kvenna í sagnadönsum miðalda er því sambærileg við eiginlega nafnleynd kvenna samtímans. Í sagnadönsum voru kynferðisglæpamennirnir nafngreindir en það er almennt ekki reyndin í #Metoo atburðarsögum samtímans. Höfundareinkenni beggja hefða má rekja til kynferðis höfundanna, en sögurnar eru einatt sagðar frá sjónarmiðum kvenna:

Athyglisvert er þó hve konur gegna mikilvægum hlutverkum í atburðarás margra sagnadansa. Þar kemur gjarnan fram skýr samúð með þeim konum sem grátt eru leiknar af körlum og lætur nærri að þeirra sjónarhorni til atburðanna sé fylgt. Vel er hugsanlegt að tengja þetta við það að konur hafi haft sérstakar mætur á þessum kvæðum og átt mikinn þátt í sköpun þeirra og varðveislu (Vésteinn 1979:82).

Á tímum sagnadansanna voru illmenni/kynferðisglæpamenn sögunnar í hlutverki riddara og kónga er stikuðu um kastala og skóga. Nú er öldin önnur, ofbeldisverkin eru reyndar hin sömu en vettvangur glæpanna annar. Nú birtast kynferðisglæpamennirnir sem samstarfsmenn; yfirmenn; ættmenni og vinir. Birtast á söguvettvangi #Metoo byltingarinnar:

Ég fór í heimsókn á leikskólann þar sem ég vann, með litla nýfædda strákinn minn. Þar unnu tveir ungir strákar með mér. Annar þeirra hafði talað opinskátt um hversu kynæsandi ég væri þegar ég var ólétt. En þarna á kaffistofunni var það fyrsta sem ég fékk að heyra að ég væri með flott brjóst. Þeir hefðu sko fengið að sjá það á mynd og bentu mér á vegginn þar sem við blasti útprentuð mynd af mér með splunkunýja strákinn minn í fanginu og það sást í brjóstið mitt. Móðir mín sem þekkir leikskólastýruna hafði sent henni myndina, stolt af afkomendum sínum. Ég var ekki svekkt yfir þvÍ að myndin hengi þarna þó það hefði verið óþarfi en að þessir strákkjánar sem voru að vinna á „kvennavinnustað“ skyldu horfa á hana í kynferðislegum tilgangi fannst mér vont.

(#Metoo)

Stíll: „Svanurinn syngur víða“

Signý tók í beltið
en Ingigerður í hár:
„Nú skal hefna níðingsverks
þú veittir fyrr í ár“.

(Ebbadætra kvæði)

mér varð svo illa við að ég snéri mér við og gaf honum á kjaftinn með flötum lófa..hrökklaðist inn í eldhús og fyrsta freyjan mín opnaði inn í flugstj.klefa og hálf henti mér þar inn..

(#Metoo)

Framsetning sagnadansa og #Metoo atburðarsagna er grundvöllur útbreiðslu þeirra. Förinni þar ræður formúlustíll frásagnarhefða kvenna sem miðla reynslu sinni af kynbundnu ofbeldi. Við samanburðarathugun á formúlum sagnadansa og #Metoo atburðarsagna kemur í ljós að þar gilda samskonar byggingarreglur. Fyrst ber að geta þess að atburðarrás sagnanna einkennast í báðum tilfellum af lýsingum á einstökum atburðum. Hér segir Vésteinn Ólason frá einkennum sagnadansa: „Sagan er að jafnaði frekar stutt og er megináhersla lögð á eitt tilfinningaþrungið atvik eða aðstæður, aðdraganda þess og afleiðingar“ (Vésteinn 1979:11). Eftir #Metoo atburðarsögunum að dæma er óhætt að fullyrða að megineinkenni #Metoo frásagna kvenna séu líka; „eitt tilfinningaþrungið atvik eða aðstæður, aðdragandi þess og afleiðingar“, svo ég vitni aftur í orð Vésteins. Enda er notast við orðið atburðarsögur í þessari umfjöllun. Sagnadansar/nauðungarkvæði og #Metoo atburðarsögur byggja iðulega á lýsingum á kynferðisofbeldi, hverfast um áhrifarík augnablik ofbeldis í sögu kvenna: Ég sat þarna klemmd á milli mannanna, enginn kom mér til varnar, ég fór“ (#Metoo).

Annað einkenni þessara kvenlægu frásagnarhátta er frjálsræði í framsetningu og stíl. Sagnadansar og #Metoo atburðarsögur eru einskonar abstraktmálverk bókmenntannna, brjóta gegn viðtekinni rithefð hvers tíma. Frjálsræði í framsetningu sagnadansa birtist í rími, hrynjanda og; „Frelsi þeirra undan lögmálum stuðla og höfuðstafa“ (Vésteinn 1979:34). Frjálsræði í framsetningu #Metoo atburðarsagna gætir í knöppum stíl höfunda sem svipar til talmáls. Því til rökstuðnings má nefna tíðar enskuslettur höfunda; „Ungar, fertílar konur eru vonlaus vinnukraftur, þetta er alltaf fæðandi börn. Það þarf nú bara að þvinga lykkjuna upp á ykkur ungu konurnar á klíníkinni“. Tökuorð sem laga sig ei að beygingarkerfi íslensku eru líka mjög algeng í sagnadönsum samkvæmt Vésteini Ólasyni. Næst ber að geta áhrifamikilla stikkorða í #Metoo atburðasögunum er lýsa tilfinningum höfundarins gagnvart atburðinum: „Ohh. Fæ enn hroll við að rifja þetta kvöld upp“ / „hann gekk á eftir mér…ógeð!!!“. Þessar sögur um kynferðisofbeldi gegn konum endurspegla nútímamálvenjur hvers tíma; heimildir um tungutak brotaþola kynbundins ofbeldis:

Þú lést þína sveina
halda fótum mín
meðan þú, herra kóng Símon,
framdir vilja þín.

(Kvæði af herra kóng Símoni)

…. ýmsir karlmenn meika mig ekki og eru sífellt að reyna að skrúfa mig niður.. .. nokkrir ganga lengra, niðrandi komment og niðurrif, örfáir en fleiri en tveir, káf og tilraunir til að komast lengra….

(#Metoo)

Annað sameinkenni sagnadansa og #Metoo atburðarsagna eru samtölin sem þar er vitnað í, en umhverfi sögunnar fær lítinn sem engan sess. Afl samtalsfrásagnarinnar er oft mikið, ekki síst þegar eiginlegt samtal brotaþola og ofbeldismanns er söguframvindan. Hér fyrir neðan eru sýnisdæmi um slík samtöl í sagnadönsum annars vegar og í #Metoo atburðarsögum hins vegar:

„Hvort viljið þið heldur láta ykkar líf
eða vera mitt eigið víf?“

Svaraði Katrín ljósa:
„Vant er um að kjósa“.

Svaraði sú hin yngri:
„Hvor mun þrautin þyngri?“

„Fyrr viljum við láta okkar líf
en að vera þitt eigið víf“.

(Kvæði af vallara systrabana)

Flugstjórinn, sem í þetta skipti var farþegi, hvæsir á mig: Afhverju!? Afhverju þurfið þið stelpurnar alltaf að skella hurðinni!? Ha!?”. Þetta kom skiljanlega mjög flatt upp á mig og ég byrja að útskýra eitthvað sem ég taldi liggja í augum uppi þegar hann grípur fram í fyrir mér: “Ég meina, hvernig þætti þér að ég slái þig? Ha? Finnst þér kannski gott að vera slegin?!!Finnst þér það gott?!!”

(#Metoo)

Samtöl í sagnadönsum og atburðarsögum samtímakvenna miðla sjónarmiðum kvenkyns brotaþola og oft á tíðum sjónarmiðum ofbeldismannsins, í beinni eða óbeinni ræðu:

„Ungir voru Ívars synir,
báru saman ráð:
„Við skulum okkur í hægaloft,
vinna meyjum háð.
Við skulum okkur í hægaloft,
vinna meyjum mein“.

(Ebbadætra kvæði)

Þá horfir hann á mig með fyrirlitningu og segir: Ekki datt mér í hug að þú værir SVONA kvenmaður!

(#Metoo)

Samtalsformið gerir konum sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi kleift að birta sjónarmið ofbeldismannanna. Þetta má sjá í hluta meðfylgjandi atburðarsagna þar sem annarlegar athugasemdir ofbeldismanna vitna um brenglaða sýn þeirra. Í hérlendum atburðarsögum og sagnadönsum fyrri alda takast sjónarmið á, gjarnan í samtölum, frásögnum sem rata sjaldan í íslenskar sögubækur. Við lestur sagnadansa og #Metoo atburðarsagna verður að hafa hugfast að sjónarmið ofbeldismannsins eru ekki minna lýsandi fyrir samfélagsástandið hverju sinni en sjónarmið kvennanna: „Þetta er auðvitað karlavandamál og nú eiga karlar að láta til sín taka á ótal vegu. Það versta væri ef þeir fara í einhvers konar vörn eða fórnarlambshlutverk“ sagði Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta í sambandi við #Metoo byltinguna. Það virðist hins vegar vera lenskan þegar kona stígur fram, að þá stígi í kjölfarið fram karl sem telur sig vera fórnarlamb kvenna sem miðla reynslusögum af kynferðisofbeldi. Í reynd væri sérlega áhugavert að greina formúlustíl slíkra frásagna manna, í því skyni að fræðast meira um þá augljósu þöggunartilburði feðraveldisins. En hér er ekki rúm fyrir þá umfjöllun. Fer því ekki frekari sögum af frásagnarhætti karla er upplifa sig sem fórnarlömb kvenna, sem miðla reynslu sinni af kynbundnu ofbeldi.

Hlutverk: „frúrnar tvær í loftinu, / báru ráðin saman“

Á hverjum vígvelli sögunnar er kallað eftir frelsi í einni eða annarri mynd. Á vígvelli jafnréttisbaráttu kvenna er það þráin eftir kvenfrelsi. Þráin eftir frelsi kvenna til jafns við karla sem birtist í frjálsræði í tjáningu kvenna. Slíkt frelsi í tjáningu þeirra kallar eftir falli feðraveldisins og upprætir eina af undirstöðum þess, þöggun kvenna. Styrkur sagnadansa og styrkur #Metoo grundvallast á mætti hópsins og framsetningu frásagna kvenna. Hvoru tveggja tryggir að reynslusögur kvenna sem hafa verið beittar kynferðisofbeldi berast áfram með iðuköstum frelsishugsjóna kvenna, uns brestur karlheimur. Hér eru á ferðinni frásagnarform er gefa „raddrými“ fyrir tilfinningar kvenna, hvort sem um er að ræða sorg eður reiði. Tilfinningar sem konum hefur ætíð verið meinað að tjá í sögu fortíðarinnar og í samtímanum.  Tilfinningar sem berast ekki einungis um alla afkima veraldarvefsins, vegna þess að munnlega hefðin skilar þeim jafnframt sem fyrr munn af munni og mann frá manni. Tilfinningar sem ómuðu forðum í orðum og danssporum sagnadansanna:

Sagnadansar fjalla um tilfinningar, sem í daglegu lífi áttu fáar leiðir til útrásar, tengja þær athöfnum og afleiðingum athafna, gera þær að hreyfiafli söguferlis. Með þessu gafst auðvitað staðfesting á tilvist og mikilvægi þessara tilfinninga. Með nokkrum hætti má segja að þeim hafi verið gefin merking með því að sýna dæmi um möguleika sem í þeim fólust (Vésteinn 1979:85).

Sagnadansar og #Metoo atburðarsögur gera öllum konum sem lesa og/eða kveða slíkar frásagnir, ennfremur kleift að öðlast ákveðna friðþægingu. Réttlæti sem felst í því að sagan er sögð, en í því felst ákveðin hefnd gagnvart ofbeldismönnunum, oftast sú eina sem í boði er. Eitt grunnstef sagnadansa fyrri alda er einmitt hefnd kvennanna sem brotið var á, í samfélagi sem gaf brotaþolum kynferðisofbeldis ekkert færi á réttlæti, líkt og reyndin er oftast nær enn í dag:

Auðvitað eru kvenhetjur stundum eingöngu þolendur, eins og algengast er í ævintýrum og mörgum greinum fornsagna, en margar þeirra taka virkan þátt í atburðarás. Þær hefna fyrir nauðgun með hörku og grimmd, þótt það kosti þær oftast að springa af harmi eða ganga í klaustur. Þær sýna dirfsku og hyggindi… Einnig eiga þær til bragðvísi og fórnarlund (Vésteinn 1979:68).

Atburðarsögur samtímans gefa ekki einungis færi að tjá sig um kynferðisglæpi, því þær skila bæði konum og körlum tilfinningu sem kallar á andspyrnu við feðraveldið.

Nú er komið að því að hverfa frá því hvert sé gildi orða og lögmála sagnadansa og #Metoo atburðarsagna. Nú er mál að hverfa að dansgólfinu sjálfu sem staðið hefur autt um aldir. Allt frá því að dansleikir íslenskra sagna lögðust niður á ofanverðri 18. öld vegna afskipta lútherskra biskupa. Á því dansgólfi dansa konur og karlar hringdans við nauðungarkvæði. Orðin glymja hátt, konur þramma og karlar snúa sér í hring, eftir hring. Á því gólfi hefja konurnar upp raddir sínar í hlutverki kvæðakvenna og segja sögur af örlagaríkum atburðum í lífi kvenpersónanna. Dansinn var hafinn, en hann varði alltof stutt í kvennasögunni. Þruskið í gólffjölunum hljóðnaði, og raddir kvennanna með. Slíkt var markmið kirkjunnar og hennar embættismanna.

Nú í tilefni af siðbótarafmæli Lúthers er markaði upphaf endaloka íslenskra sagnadansa og tilheyrandi dansleikja, þá stofna ég að nýju til dansleiks á grunni íslenskra #Metoo atburðarsagna. Sá hringdans vorrar þjóðar fer fram á hálu gólfi réttarkerfisins og þar gildir að landsmenn hreyfi sig í takti við #Metoo. Þar hljóma sagnadansar fortíðarinnar, og Reykjavíkurdætur rappa nútímasagnadansinn #Metoo uns ljósin verða kveikt. Þjóðin dansar í hring, og konurnar leiða dansinn. Þramm, þramm, klapp, klapp og konur öðlast frelsi. Við dönsum á gólfi réttarkerfisins uns réttlætið nær fram til kvenna. Þramm, þramm, klapp, klapp. Við dönsum við orðin ein.

(Ritað í lok árs 2017)

Heimildir:

Tilvitnanir í #Metoo atburðarsögur byggja á birtingu þeirra sagna (endurbirtingu) í Fréttablaðinu og DV. Aukinheldur viðtal sem tekið var við Guðrúnu Jónsdóttur talskonu Stígamóta sem birt var í Fréttablaðinu.

Vésteinn Ólason. Sagnadansar (Rannsóknastofnun í bókmenntafræði og Menningarsjóður, 1979).

Myndir:

Samsettar myndir greinarinnar byggja á teikningum Guðbrandar Ásmundssonar og klippimyndum Dalrúnar J. Eygerðardóttur.[/cs_text]

Um höfundinn
Dalrún J. Eygerðardóttir

Dalrún J. Eygerðardóttir

Dalrún J. Eygerðardóttir er doktorsnemi í sagnfræði við Háskóla Íslands og meistaranemi í umhverfis- og auðlindafræðum. Hún hefur einnig lokið BA-gráðu í kvikmyndafræði.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

\

sabung ayam online

sabung ayam online

SLOT MAHJONG

sabung ayam online

invoice 00026

invoice 00027

invoice 00028

invoice 00029

invoice 00030

invoice 00031

invoice 00032

invoice 00033

invoice 00034

invoice 00035

invoice 00036

invoice 00037

invoice 00038

invoice 00039

invoice 00040

invoice 00041

invoice 00042

invoice 00043

invoice 00044

invoice 00045

invoice 00046

invoice 00047

invoice 00048

invoice 00049

invoice 00050

invoice 00051

invoice 00052

invoice 00053

invoice 00054

invoice 00055

article 2000021

article 2000022

article 2000023

article 2000024

article 2000025

article 2000026

article 2000027

article 2000028

article 2000029

article 2000030

article 2000031

article 2000032

article 2000033

article 2000034

article 2000035

article 2000036

article 2000037

article 2000038

article 2000039

article 2000040

article 2000041

article 2000042

article 2000043

article 2000044

article 2000045

article 2000046

article 2000047

article 2000048

article 2000049

article 2000050

article 2000051

article 2000052

article 2000053

article 2000054

article 2000055

article 2000056

article 2000057

article 2000058

article 2000059

article 2000060

article 2000061

article 2000062

article 2000063

article 2000064

article 2000065

article 2000066

article 2000067

article 2000068

article 2000069

article 2000070

article 2000071

article 2000072

article 2000073

article 2000074

article 2000075

article 2000076

article 2000077

article 2000078

article 2000079

article 2000080

pusdataru 00021

pusdataru 00022

pusdataru 00023

pusdataru 00024

pusdataru 00025

pusdataru 00026

pusdataru 00027

pusdataru 00028

pusdataru 00029

pusdataru 00030

pusdataru 00031

pusdataru 00032

pusdataru 00033

pusdataru 00034

pusdataru 00035

pusdataru 00036

pusdataru 00037

pusdataru 00038

pusdataru 00039

pusdataru 00040

pusdataru 00041

pusdataru 00042

pusdataru 00043

pusdataru 00044

pusdataru 00045

pusdataru 00046

pusdataru 00047

pusdataru 00048

pusdataru 00049

pusdataru 00050

pusdataru 00051

pusdataru 00052

pusdataru 00053

pusdataru 00054

pusdataru 00055

pusdataru 00056

pusdataru 00057

pusdataru 00058

pusdataru 00059

pusdataru 00060

article 00000031

article 00000032

article 00000033

article 00000034

article 00000035

article 00000036

article 00000037

article 00000038

article 00000039

article 00000040

article 00000041

article 00000042

article 00000043

article 00000044

article 00000045

article 00000046

article 00000047

article 00000048

article 00000049

article 00000050

article 00000051

article 00000052

article 00000053

article 00000054

article 00000055

article 00000056

article 00000057

article 00000058

article 00000059

article 00000060

article 00000061

article 00000062

article 00000063

article 00000064

article 00000065

article 00000066

article 00000067

article 00000068

article 00000069

article 00000070

article 00000071

article 00000072

article 00000073

article 00000074

article 00000075

article 00000076

article 00000077

article 00000078

article 00000079

article 00000080

pemohonan 000001

pemohonan 000002

pemohonan 000003

pemohonan 000004

pemohonan 000005

pemohonan 000006

pemohonan 000007

pemohonan 000008

pemohonan 000009

pemohonan 000010

pemohonan 000011

pemohonan 000012

pemohonan 000013

pemohonan 000014

pemohonan 000015

pemohonan 000016

pemohonan 000017

pemohonan 000018

pemohonan 000019

pemohonan 000020

pemohonan 000021

pemohonan 000022

pemohonan 000023

pemohonan 000024

pemohonan 000025

pemohonan 000026

pemohonan 000027

pemohonan 000028

pemohonan 000029

pemohonan 000030

artikel 000000081

artikel 000000082

artikel 000000083

artikel 000000084

artikel 000000085

artikel 000000086

artikel 000000087

artikel 000000088

artikel 000000089

artikel 000000090

artikel 000000091

artikel 000000092

artikel 000000093

artikel 000000094

artikel 000000095

artikel 000000096

artikel 000000097

artikel 000000098

artikel 000000099

artikel 000000100

artikel 000000101

artikel 000000102

artikel 000000103

artikel 000000104

artikel 000000105

artikel 000000106

artikel 000000107

artikel 000000108

artikel 000000109

artikel 000000110

artikel 000000111

artikel 000000112

artikel 000000113

artikel 000000114

artikel 000000115

artikel 000000116

artikel 000000117

artikel 000000118

artikel 000000119

artikel 000000120

pengadilan 000061

pengadilan 000062

pengadilan 000063

pengadilan 000064

pengadilan 000065

pengadilan 000066

pengadilan 000067

pengadilan 000068

pengadilan 000069

pengadilan 000070

pengadilan 000071

pengadilan 000072

pengadilan 000073

pengadilan 000074

pengadilan 000075

pengadilan 000076

pengadilan 000077

pengadilan 000078

pengadilan 000079

pengadilan 000080

pengadilan 000081

pengadilan 000082

pengadilan 000083

pengadilan 000084

pengadilan 000085

pengadilan 000086

pengadilan 000087

pengadilan 000088

pengadilan 000089

pengadilan 000090

perkara 0000066

perkara 0000067

perkara 0000068

perkara 0000069

perkara 0000070

perkara 0000071

perkara 0000072

perkara 0000073

perkara 0000074

perkara 0000075

perkara 0000076

perkara 0000077

perkara 0000078

perkara 0000079

perkara 0000080

perkara 0000081

perkara 0000082

perkara 0000083

perkara 0000084

perkara 0000085

perkara 0000086

perkara 0000087

perkara 0000088

perkara 0000089

perkara 0000090

article 0000021

article 0000022

article 0000023

article 0000024

article 0000025

article 0000026

article 0000027

article 0000028

article 0000029

article 0000030

article 0000031

article 0000032

article 0000033

article 0000034

article 0000035

article 0000036

article 0000037

article 0000038

article 0000039

article 0000040

article 0000041

article 0000042

article 0000043

article 0000044

article 0000045

article 0000046

article 0000047

article 0000048

article 0000049

article 0000050

article 0000051

article 0000052

article 0000053

article 0000054

article 0000055

article 0000056

article 0000057

article 0000058

article 0000059

article 0000060

article 0000061

article 0000062

article 0000063

article 0000064

article 0000065

article 0000066

article 0000067

article 0000068

article 0000069

article 0000070

article 3000031

article 3000032

article 3000033

article 3000034

article 3000035

article 3000036

article 3000037

article 3000038

article 3000039

article 3000040

article 3000041

article 3000042

article 3000043

article 3000044

article 3000045

article 3000046

article 3000047

article 3000048

article 3000049

article 3000050

article 3000051

article 3000052

article 3000053

article 3000054

article 3000055

article 3000056

article 3000057

article 3000058

article 3000059

article 3000060

news-1701