Björgunarbátar ár og síð

[x_text]
Erum við á flótta undan alls konar ósvöruðum spurningum um ábyrgð Íslendinga gagnvart því að fólk sé yfirleitt að hætta lífi sínu á lekum og yfirfullum björgunarbátum á Miðjarðarhafinu?

Eitt af þessu er örlát stefna í innflytjendamálum, sem er aðeins eitt af mörgum dæmum um flokk af stefnum sem eru á rangri braut með því að leiða til harmsögu almenninganna (Hardin 1968). Þessar sjálfsmorðsstefnur sýnast aðlaðandi vegna þess að þær falla að því sem við álítum í hugsunarleysi vera hugsjónir „góða fólksins.“[1]

Þessi tilvitnun kemur ekki úr nýlegu íslensku bloggi eða vefpistli heldur er hún rúmlega fjörutíu ára gömul og frá Bandaríkjunum. Hún er úr greininni „Living on a Lifeboat“ eða „Líf um borð í björgunarbát“, eftir vistfræðinginn Garrett Hardin, sem gengur út á að færa rök gegn því að ríkar þjóðir hjálpi hinum fátækari. Hardin lýsir heiminum þannig að ríkustu þjóðirnar séu eins og björgunarbátar með takmarkaðan sætafjölda en fólkið úr fátæku þjóðunum svamlandi í sjónum í kring, og í bátunum séu allt of fá sæti. Eina leiðin til að forða því að gríðarleg offjölgun mannkyns valdi allsherjarhungursneyð sé því að hver hugsi um eigin hag og gæti sinna eigna. Þótt leiðinlegt sé til þess að hugsa þá verði bara að fórna hinum fátæku því það sé ekki til nóg handa öllum. Greinin er augljóslega skrifuð frá sjónarhóli manns sem tilheyrir ríkri þjóð; „við“ þurfum fyrst og fremst að hugsa um hag „okkar“ og verja fyrir ágangi hinna. Þannig má hugsa sér að ef Hardin hefði tilheyrt fátækri þjóð þá hefði greinin orðið allt öðruvísi, kannski hefði hún snúist um rétt hans til að ryðjast upp í björgunarbátinn og kasta öðrum fyrir borð sem væru þar fyrir.

Okkur er svo annt um að gæta landamæra „okkar“ fyrir „þeim“ að við höfum sett reglur sem gera þeim ókleift að notast við annan ferðamáta en þann að borga vopnuðum mafíósum fúlgur fyrir að stafla sér í ofhlaðna björgunarbáta.
Mér varð hugsað til þessara skrifa Hardins út af yfirfullum björgunarbátum sem eru reglulega í fréttum þessa dagana. Í þessum bátum erum „við“ ekki, við þurfum ekki á þeim að halda því við sitjum örugg á þurru landi. Fólkið í bátunum fer yfirleitt ekki í þá vegna þess að það sé fátækt eða svangt, oftast er það að flýja stríð eða ofsóknir. Í umræðum um þau sem eru í bátunum og hvort við eigum að bjóða einhverjum þeirra hingað til Íslands heyrast stundum svipuð sjónarmið og hjá Hardin, að við þurfum fyrst og fremst að líta okkur nær og hugsa um „okkur“. Það er einmitt vegna slíkrar hugsunar sem fólk neyðist til að fá sér far með björgunarbátum sem eru svo fullir að það komast ekki allir á leiðarenda og fólk dettur bókstaflega útbyrðis. Okkur er svo annt um að gæta landamæra „okkar“ fyrir „þeim“ að við höfum sett reglur sem gera þeim ókleift að notast við annan ferðamáta en þann að borga vopnuðum mafíósum fúlgur fyrir að stafla sér í ofhlaðna björgunarbáta. Þetta er afar þægilegt fyrir okkur hér á Íslandi því það siglir auðvitað enginn frá Afríku eða Asíu á slíku farartæki beint til Íslands og fyrir vikið getum við í nafni Dyflinnar sent alla hælisleitendur um hæl til Ítalíu, Grikklands eða Ungverjalands. Eða við gátum það alla vega, eitthvað babb er komið í (björgunar)bátinn núna.

En svo er það spurningin um það hverja við teljum til „okkar“. Það er svo sem alveg skiljanlegt að fólk finni til mestrar ábyrgðar gagnvart eigin fjölskyldu. Þá á ég við það að við áfellumst líklega engan fyrir að gefa sínu eigin barni að borða eða útvega því húsaskjól áður en hann fer að huga að þörfum annarra. En þegar það er víkkað út, hver tilheyrir þá „okkur“ og hver ekki? Fyrr í þessum mánuði vísaði Hæstiréttur frá umsóknum tveggja manna, Martins Omulu og Christians Kwaki Boadi, um hælisvist. Báðir mennirnir eru frá Afríku, Martin frá Nígeríu og Christian frá Ghana. Martin er samkynhneigður og á það á hættu að verða dæmdur til dauða fyrir kynhneigð sína ef hann verður sendur aftur til Nígeríu. Báðir mennirnir hafa verið á Íslandi í nokkur ár, eiga vini á Íslandi, annar er í vinnu. Þetta virðist ekki duga til að tilheyra „okkur“. Ekki getum við afsakað okkur með því að þeir séu það langt í burtu að við vitum ekki af neyð þeirra; þeir eru beint fyrir framan okkur og hafa verið í mörg ár. En reyndar finn ég hvorugan þeirra þegar ég leita í Íslendingabók – ætli það sé mælikvarðinn? Kannski er lykilatriðið að geta rakið ættir sínar til Jóns Arasonar. Í netathugasemdum við fréttir af málum þeirra hafa þeir verið kallaðir „skrítin múltíkúltí-gæludýr“, „drasl“ og „rusl“. Mennirnir sem viðhöfðu þau orð eru víst bátsfélagar „okkar“, alla vega fann ég einhverja þeirra í Íslendingabók.

Ég veit ekki hvernig þeir Christian og Martin komust upphaflega til Evrópu. Kannski sat annar þeirra einhvern tímann í yfirfullum björgunarbát. Raunar eru þeirra mál ekkert sérstaklega frábrugðin málum annarra hælisleitenda hérlendis, sem oft er vísað frá. Það sem ég verð hugsi yfir er þessi hringur sem hefur verið dreginn utan um „okkur“ og sem virðist svona gríðarlega erfitt að fá að komast inn í. Hvers vegna ætti samkennd að vera bundin við þjóðerni? Stundum er að vísu talað um „frændur okkar“ Dani eða Norðmenn. Það þýðir þá kannski að Dani á flótta undan dauðadómi fengi náðarsamlegast hæli hér á landi og slyppi jafnvel líka við að vera kallaður rusl.

Þau okkar sem þrýsta á að Íslendingar sjái sóma sinn í að bjóða flóttamenn velkomna til landsins, hvort sem um er að ræða fólk sem nú streymir yfir Miðjarðarhafið í björgunarbátum, er í flóttamannabúðum án þess að hafa lagt upp í þá hættuför eða fólk sem nú þegar er komið til landsins, erum stundum uppnefnd „góða fólkið“. Eins og sjá má var sambærilegt hugtak til í Bandaríkjunum fyrir fjórum áratugum. Hugmyndin er sú að um sé að ræða tóma sýndarmennsku, allt snúist þetta um að segja réttu hlutina til að sýnast vera góð manneskja en auðvitað sé viðkomandi, rétt eins og allir aðrir, óhjákvæmilega bara knúinn áfram af eiginhagsmunapoti og hégómagirnd. Þetta má raunar túlka á tvo vegu. Annars vegar þannig að hjá „góða fólkinu“ fylgi hugur ekki máli, það sé bara að hafa eftir einhverja frasa sem hljómi vel en lýsi ekki raunverulegum skoðunum þess. Þetta þarf þó ekki að vera það sem er átt við. Hin túlkunin er að hið svokallaða „góða fólk“ noti tilteknar skoðanir til að upphefja sig, þegar í raun þurfi eitthvað meira en fallegar skoðanir til að vera góð manneskja. Með öðrum orðum þurfi að láta verkin tala. Hardin talar á þessum nótum í grein sinni um möguleikann á að einhverjir um borð í björgunarbátnum fari að segjast finna til sektarkenndar yfir því að sitja um borð meðan aðrir drukkni í sjónum. Hann talar heldur hæðnislega um þá, kallar þá sektarfíkla og segir að þeir geti þá bara gefið eftir sæti sitt og stokkið út í.

Ásökunin sem felst í uppnefninu „góða fólkið“ er gagngert notuð til að drepa hinu raunverulega umræðuefni á dreif. Þegar notast er við áróðurstækni eins og uppnefni bendir það til þess að verið sé að koma sér hjá umræðu sem annars þætti erfið.
Vissulega er það rétt að skoðun jafngildir ekki hegðun og við þekkjum sjálfsagt flest fólk sem virðist hafa fallegar og góðar skoðanir í orði en hegðar sér svo eins og verstu bullur þegar á reynir. Að hafa þá skoðun að tiltekin athöfn sé rétt veitir viðkomandi ekki sjálfkrafa heiðurinn af því að hafa framkvæmt athöfnina – þá væru þær nú margar, hetjurnar. Og auðvitað er líka til fólk sem virðist einhvern veginn halda að það að hafa einhverjar tilteknar skoðanir sé það sem helst gildir og fer að metast um að vera með (að eigin mati) fínustu skoðanirnar. Slíkt þykir öðrum nú yfirleitt til merkis um þroskaleysi. En hinar sífelldu ásakanir um óheilindi af þessu tagi í hvert sinn sem einhver viðrar tiltekna gerð af skoðun eru áróðurstaktík sem beitt er til þöggunar. Það er engin ástæða til að ætla að hver sá sem setur fram skoðun sem er eitthvað annað en sjálfselsk sé að reyna að upphefja sjálfan sig og eigna sér heiður af góðverkum eða stilla sér upp sem eitthvað sérstaklega „góðu fólki“. Ásökunin sem felst í uppnefninu „góða fólkið“ er gagngert notuð til að drepa hinu raunverulega umræðuefni á dreif.

Þegar notast er við áróðurstækni eins og uppnefni bendir það til þess að verið sé að koma sér hjá umræðu sem annars þætti erfið. Því að þrátt fyrir að skoðanir sem slíkar vinni ekki verkin þá eru þær auðvitað stefnumótandi og það hvaða skoðanir við höfum segir á endanum eitthvað um það hvaða lífi við viljum lifa, hvernig við viljum hafa heiminn og hvernig tengsl við viljum mynda við annað fólk. Ef útgangspunkturinn er: „Látum okkur bara annt um „okkur“ sem erum hvít og íslensk og hleypum engum öðrum að“ og lokað er á umræðu með því að notast við uppnefni þá er það flótti undan því að takast á við umræðu um öll þessi atriði. Það er líka flótti undan því að svara því hvort það sé siðferðilega ábyrg afstaða að setja alltaf sjálfan sig, og síðan þjóð sína, hvað svo sem það merkir, í fyrsta sæti og virða ekki allar manneskjur jafnt. Og það er flótti undan alls konar ósvöruðum spurningum um ábyrgð Íslendinga gagnvart því að fólk sé yfirleitt að hætta lífi sínu á lekum og yfirfullum björgunarbátum á Miðjarðarhafinu.

Og þá erum við komin með enn einn flóttamannahópinn, á flótta undan spurningum. Ég veit ekki hvers konar farartæki hentar best til björgunar í þessu tilviki.


[1] „One of these is a generous immigration policy, which is only a particular instance of a class of policies that are in error because they lead to the tragedy of the commons (Hardin 1968). These suicidal policies are attractive because they mesh with what we unthinkingly take to be the ideals of “the best people.”” Garrett Hardin (1974), „Living on a Lifeboat“, BioScience 24 (10), bls. 561-568.[/x_text]
Um höfundinn
Eyja M. Brynjarsdóttir

Eyja M. Brynjarsdóttir

Eyja M. Brynjarsdóttir er prófessor í heimspeki við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar eru félagsleg frumspeki, femínísk heimspeki og hagnýt siðfræði.

[x_text][fblike][/x_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701