Djöfullinn kemur í bæinn

[cs_text]Það tók lækninn Mikhaíl Bulgakov (1891-1940) tólf ár að skrifa skáldsöguna Meistarann og Margaritu. Vinnuskilyrði hans hefðu getað verið betri. Þetta voru herfilegustu ár Stalínstímabilsins með tilheyrandi harðstjórn, ofsóknum, uppljóstrunum og falsréttarhöldum. Bulgakov var í ónáð hjá yfirvöldum menningarmála í Moskvu og hin mikla skáldsaga hans kom ekki út í Rússlandi fyrr en meira en tveimur áratugum eftir dauða hans, 1967, og þá í mjög styttri útgáfu. Fyrsta óritskoðaða útgáfan kom út í Rússlandi 1973.

Meistarinn og Margarita var “költ-bók” þegar ég var í Háskóla á níunda áratug síðustu aldar, “allir” höfðu lesið hana og þeim sem ekki höfðu lesið hana fannst að þeir hefðu lesið hana líka – hún var “hin þegar lesna bók” minnar kynslóðar.

Undur og stórmerki

Meistarinn og Margarita er flókin furðusaga, margradda, marglaga, full af táknum og tilvísunum. Þó að mörgum sögum fari þar fram eru tvær sögur ráðandi, önnur fjallar um hinn fræga dóm Pontíusar Pílatusar yfir Jesúa nokkrum Ha-Notsri sem Pílatus veit að er saklaus og vill ekki dæma til dauða en gerir samt af því að Kaífas segir honum það. Glæpur Pílatusar er heigulsháttur, hann er með mígreni, hitinn er kæfandi, hann er í vondri trú en skýtur sér á bak við vilja valdsins.

Sagan af Pílatusi og Jesúa Ha-Notsri kallast á við atburði sem gerast í Moskvuborg löngu síðar þar sem djöfullinn, sem kallar sig Doktor Woland (Sigurður Sigurjónsson), kemur til Moskvu með “fríðu” föruneyti, kettinum Behemot (Oddur Júlíusson), samstarfsmanninum Korovév (Ebba Katrín Finnsdóttir) og blóðsugunni Hellu (María Thelma Smáradóttir).  Þar hittir doktorinn skáldið og rithöfundinn Ivan Nikolajevits (Stefán Hallur Stefánsson), skáldanafn Bésdomní, sem er í ástarsambandi við gifta konu, Margaritu (Birgittu Birgisdóttur) en hún kallar hann Meistarann, tilbiður hann og er sannfærð um að skáldsaga hans um Pílatus sé meistaraverk. Meistarinn er hins vegar í ónáð hjá menningarelítunni, hann fær ekki bók sína útgefna, er níddur og brotinn niður í fjölmiðlum, brennir handritið og er sendur á geðveikrahæli.

Það hefur verið haft eftir Dostójevskí að þegar menn hætti að trúa á Guð geti allt gerst.

Moskvubúar trúa ekki á Guð og segja að hann sé ekki til og þar af leiðandi er Djöfulinn ekki heldur til. Það getur doktor Woland ekki látið viðgangast. Í hans leikstjórn eru Moskvubúar ærðir og dregnir á asnaeyrum, boðið er til illmenna og morðingjadansleiks, heilbrigðir lokaðir inni á geðveikrahæli og kátar nornir fljúga yfir borgina.

Tilþrifamikil sýning

Bulgakov var vinsælt leikritaskáld, meðal annars, og leikhússstjóri á tímabili en hann kaus sem sagt form skáldsögunnar/furðusögunnar fyrir Meistarann og Margarítu enda flækjustig bókarinnar umtalsvert eins og að framan segir.

Leikgerð sænska rithöfundarins Niklas Rådström er lögð til grundvallar jólasýningu Þjóðleikhússins í þýðingu leikstjórans, Hilmars Jónssonar.  Leikgerðin fylgir skáldsögunni eftir af miklum trúnaði, lykilsamtöl eru tekin beint upp og helstu senum er raðað upp eins og perlum á streng.  Ef meiningin er að endursegja söguna er þetta eins vel gert og hægt er, söguþráður verður frekar skýr þó að fjöldi persóna með rússnesk nöfn geti þvælst fyrir áhorfanda. Þetta er sú leið sem farin var og ekkert til sparað í að sýna með tilþrifum furður og fljúgandi fólk. Önnur leið og kannski heppilegri hefði verið að stokka verkið upp, einfalda það og endurskapa með vísun til samtímans.

Þær Eva Signý Berger og Sigríður Sunna Reynisdóttir skiptast á hlutverkum því að Eva Signý hannar hér búningana og Sigríður Sunna sviðsmyndina. Sviðsmynd Sigríðar Sunnu er afar einföld, rómverskur virkisveggur Pílatusar í upphafssenunni snýst og verður (járnbrautar?) brú í Moskvu, íburðarmikil lýsing Halldórs Arnar Óskarssonar er mikilvægur hluti leikmyndar og einkar glæsileg á draugaballinu.  Búningar Evu Signýjar endurspegla ritunartíma Meistararns þ.e. fjórða áratug tuttugustu aldar og eru afar hugmyndaríkir.

Þó sýningin sé löng, þrír tímar, er ágætur hraði í henni, flestir leikararnir leika mörg hlutverk og hljóðmynd, sviðshreyfingar og lýsing skapa gott rennsli. Leikgervin eru mikið sjónarspil því að leikarar þurfa að bregða sér í allra kvikinda líki í orðsins fyllstu merkingu. Kötturinn Behemot (Oddur Júlíusson) er stundum sá eini sem talinn er upp af þrenningunni sem fylgir Woland því hann er er klár, grimmur, reiðigjarn og hégómlegur – en hættulegur. Talandi dýr eru fastagestir í barnaleikritum og Oddur fór á stöku stað of nálægt þeim leikstíl í túlkun og raddbreytingu.

Djöfullinn (Sigurður Sigurjónsson) í þessu verki gegnir sérkennilegu hlutverki því takist honum ekki að efla ástina og trúna á hið góða missir hið illa gildi sitt og því gerir hann og hyski hans allt sem þeirra valdi stendur til að styðja samband Meistarans og Margarítu og ástina. Erfitt var að skilja gervi og lögn prófessors Wolands í sýningunni, Sigurður var fremur lágstemmdur og í bakgrunni án þess að nærvera hans og tvöfeldni yrði sá segull sem allt snýst um. Meira fór fyrir áberandi aðstoðarmönnum hans, Korovev (Ebba Katrín Finnsdóttir) vóg salt á milli þess að vera býrókrat og sá grimmdarseggur sem hann er hjá Bulgakov. Gervi blóðsugunnar Hellu var of krúttað til að vera ógnandi.

Skýrasta sögnin í sýningunni var ástarsaga Meistarans og Margarítu. Stefán Hallur fór afar vel með hið tvöfalda hlutverk Meistarans, annars vegar sem hins áhrifamikla farandheimspekings Jesúa Ha-Notsri sem trúir á eigin boðskap og hlutverk, hins vegar þess lánlitla rithöfundar Ívans Nikolajevits/Meistarans sem veit ekki hver hann er og hefur ekkert hlutverk. Atriðið þegar Meistarinn brennir handritið, lífsverk sitt og trúarjátningu, er oft talið hápunktur verksins og það var mjög áhrifamikið. Sömuleiðis bjó Birgitta Birgisdóttir til fjölbreytta og fallega mynd af Margarítu sem eins og Fást selur djöflinum sál sína en öfugt við hann er henni alveg sama um hvað verður um þessa sál, það er miklu skemmtilegra að vera norn en gyðja! Það eina sem mér líkaði stórilla voru skríkjurnar og vá-in í flugi hennar yfir Moskvu. Í bók Bulgakovs er Margaríta ekki “sæt” á þessu flugi, frelsið leysir úr læðingi gífurlega, bælda reiði hennar og hún rústar íbúð gagnrýnandans sem “drap” elskhuga hennar og kveikir þar með í heilu háhýsi – slíkur er krafturinn!

Ég gæti best trúað að Höfuð konunnar, hið dásamlega ljóð Ingibjargar Haraldsdóttur sem þýddi Meistarann á íslensku, sé undir áhrifum af flugi Margaritu.

Að lokum

Það er eðlilegt að spyrja þegar sögulegt stórvirki er valið til sýningar hvers vegna það sé valið og hvernig það hafi elst?  Í þessu tilfelli myndi ég segja að Meistarinn og Margaríta hafi bæði elst vel og illa. Hinar trúarlegu pælingar bókarinnar eru enn í gildi og sömuleiðis þær félagslegu og pólitísku. Ýmislegt í bókinni minnir á dystópíu Orwells 1984. Sameiginlegt þeim eru spilling og forréttindi þeirra sem flokkurinn hefur velþóknun á og uppljóstrarasamfélagið þar sem fólk sendir hvert annað í dauðann til að komast yfir húsnæði eða meint hlunnindi. Þetta er ennþá í góðu gildi í einræðisríkjum okkar tíma og við getum svosem líka litið í eigin barm.

Við þurfum ekki lengi að leita að spillingu á Íslandi í dag eins og dæmin sanna og  samfélagsmiðlar hafa tekið að sér uppljóstrarahlutverkið. Listalífið er ekkert kærleiksheimili heldur ef út í það er farið. Fáir trúa á Guð og enn færri á Satan.

Það hefði vel mátt ávarpa allt þetta skýrar í þessari sýningu.[/cs_text]

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701