Þrjár greinar birtast utan þema. Fyrst seinni grein Hjalta Hugasonar guðfræðings um áhrif Lúthers og siðbótarinnar á Íslandi en fyrri greinin birtist í Ritinu 1/2019. Bókmenntafræðineminn Xinyu Zhang fjallar í sinni grein um sagnritunarsjálfsögur og skáldsöguna Hundadaga eftir Einar Má Guðmundsson. Að lokum er birt grein Davíðs Kristinssonar heimspekings um fræðamörk eða markalínur milli heimspeki og grannvísinda hennar í rannsóknum á hruninu.
Þemaritstjóri Ritsins að þessu sinni er Björn Þór Vilhjálmsson bókmennta- og kvikmyndafræðingur en aðalritstjóri þess er Rannveig Sverrisdóttir. Forsíðuna prýðir mynd úr fyrstu íslensku hrollvekjunni, Húsinu, með góðfúslegu leyfi Egils Eðvarssonar. Um umbrot sá Helgi Hilmarsson og Lúther Jónsson um prófarkarlestur.
Ritið er gefið út í rafrænu formi og það má nálgast hér. Auk þess eru öll tölublöð Ritsins sem eru fimm ára og eldri nú aðgengileg á vefnum timarit.is.[/cs_text]
Deila