[cs_text]
Ágústa Þorbergsdóttir, málfræðingur hjá Stofnun Árna Magnússonar og Steinþór Steingrímsson, verkefnastjóri hjá sömu stofnun skrifa um val á orði ársins 2018.

Orð ársins 2018, valið á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, er sagnorðið plokka. En hvernig fékkst sú niðurstaða?

Á Árnastofnun er upplýsingum um málnotkun safnað allt árið. Textum af ýmsum toga er safnað kerfisbundið og þeir notaðir í rannsóknum á máli og málfræði og við þróun máltæknibúnaðar. Textarnir eru gefnir út í Risamálheildinni, risastóru textasafni með um 1,3 milljörðum orða. Risamálheildin er uppfærð árlega og er leitarbær á málheildir.árnastofnun.is og í n-stæðuskoðara Árnastofnunar, sem sýnir upplýsingar um tíðni orða í textum eftir árum og er aðgengilegur á n.árnastofnun.is. Við val á orði ársins byggir stofnunin á nýjustu gögnum Risamálheildarinnar.

Kallaðir voru fram þrír tíðnilistar úr Risamálheildinni: Listi yfir ný orð árið 2018 sem aldrei hafa komið fram áður. Listi yfir orð sem birtust tvöfalt oftar árið 2018 en nokkuð annað ár og listi yfir orð sem birtust oftar árið 2018 en samtals næstu fjögur ár á undan. Á árinu voru orð tengd umhverfismálum áberandi á listunum en einnig orð sem tengjast nýrri persónurverndarlöggjöf eða metoo-umræðunni. Þá voru einnig fjölmörg orð sem tengdust fyrst og fremst einstökum málum, yfirleitt leiðindamálum eins og hneykslismálum og glæpamálum sem rata í fjölmiðla en þau orð ná oft nokkrum vinsældum í fáa daga eða vikur en gleymast svo aftur.

Þegar orð ársins 2018 var valið unnum við tólf orða lista úr þessum gögnum. Á slíkum lista er mikill kostur að orðin séu fjölbreytileg, ekki bara með tilliti til orðmyndunar heldur líka þess að þau séu notuð á ólíkum sviðum samfélagsins. Ný orð sem vekja athygli tengjast oft einstökum málum og eiga það til að gleymast með þeim. Þess vegna getur verið hætta á því að helst séu valin orð sem koma fram skömmu áður en svona listar eru gerðir. Með því að nota tíðnilistana fáum við orð sem komu fram allt árið og ekki er gert upp á milli eftir því hvenær ársins þau voru eða urðu vinsæl. Með því að skoða orð sem hafa verið notuð lengi en notkunin að aukast fáum við líka inn á listann orð sem hafa verið að komast í almennari notkun smátt og smátt og orð sem fengið hafa nýja merkingu og náð útbreiðslu með henni.

Þessu öllu er hægt að ná með því að styðjast við tíðnilista. En tíðnilistarnir duga ekki einir og sér. Til að hafa eitthvað fram yfir önnur orð í vali á orði ársins þurfa orðin að uppfylla einhver eða sem flest af eftirfarandi skilyrðum: Þau segja okkur eitthvað um samtímann eða samfélagsumræðuna. Þau hafa möguleika á að lifa áfram í daglegri notkun eða sem minnisvarði um atburði sem áttu sér stað á árinu. Þau eru lýsandi fyrir málnotkun, annaðhvort almennt eða á tilteknu sviði. Þau eru ný í málinu eða eru gömul orð sem fengið hafa nýja merkingu.

Niðurstaða valsins er opinberuð hér að neðan (og reyndar líka í fyrirsögn) en fyrst gerum við lítillega grein fyrir orðunum tólf sem komust í úrslit.

Dúnmelur – no. kk.

Dúnmelur er fjölært gras, svipað melgresi. Eftir að dúnmel var plantað í kringum bragga í Nauthólsvík síðasta sumar varð hann umtalaðasta planta á Íslandi. Þetta er annars mjög sjaldséð tegund hér á landi enda innflutt en hefur verið sáð hér til að sporna við sandfoki. Þó dúnmelur sé ekki orð ársins hlýtur hann að vera jurt ársins.

Pokastöð – no. kvk.

Pokastöðvar spruttu upp víða um land í plastlausum september. Á pokastöðvum getur fólk fengið lánaða taupoka og notað í stað plastpoka. Þær eru oft í matvöruverslunum en einnig á bókasöfnum eða öðrum stöðum þar sem fólk gæti þurft á burðarpoka að halda. Pokastöðvar eru ekki alveg glænýjar af nálinni á Íslandi. Sú fyrsta var sett upp á Hornafirði vorið 2016.

Kraftbjór – no. kk.

Kraftbjór er bjór sem er framleiddur í litlum brugghúsum og í minna magni en annar bjór og þar af leiðandi er hann oft meira handgerður en bjór sem er framleiddur í miklu magni í stærri verksmiðjum. Kraftbjór er kallaður craft beer á ensku. Ýmis íslensk heiti hafa verið notuð um bjór sem er framleiddur með þessum hætti, íðbjór, sælkerabjór og handbjór hafa ekki náð mikilli útbreiðslu en flestir sem á annað borð um þetta tala notað ýmist handverksbjór og kraftbjór. Samkvæmt talningu í textum frá árinu 2018 er kraftbjór notað meira og virðist ætla að verða ofan á. Segja má að hér sé um hreint tökuorð að ræða en það hefur þó þann kost að vera af saman stofni. Ekki þarf að fara mikið lengur en 1000 ár aftur í tímann til að finna sameiginlegan uppruna enska orðsins craft og forliðarins kraft-.

Bálkakeðja – no. kvk

Bálkakeðjur hafa verið nokkuð í umræðunni hjá þeim sem hafa áhuga á nýjungum í tölvutækni og fjármálum. Bálkakeðjur eru dulkóðunartækni sem rafmyntir byggja á en þær hafa rutt sér rúms á ákveðnum sviðum samfélagsins undanfarin ár. Bálkakeðja er kölluð blockchain á ensku en íslenska orðið er sjálfsprottið og er nokkuð áberandi í umræðu ársins um það sem tengist þessari tækni.

Viðreynsla – no. kvk.

Orðasambandið „að reyna við e-n“ hefur verið notað yfir það þegar einhver gefur öðrum til kynna að hann laðist að viðkomandi og kannar hvort að áhuginn sé gagnkvæmur. Úr þessu orðasambandi hefur nafnorðið viðreynsla verið myndað. Nafnorðið hefur, eðli málsins samkvæmt, líklega verið notað mest af yngri kynslóðum fram að þessu en elstu prentheimildir sem við finnum um orðið eru frá því snemma á 10. áratug síðustu aldar. Samkvæmt okkar gögnum hefur notkun orðsins á prenti margfaldast á síðustu tveimur árum, sérstaklega á því ári sem nú er að ljúka. Þó orðið sjálft vísi alla jafna til einhvers sem í sjálfu sér er ekki neikvætt þá hefur það birst ítrekað í fjölmiðlum í tengslum við mál þar sem brotið hefur verið gegn fólki eða gengið mjög nærri því. Þá hefur málum í sumum tilvikum verið drepið á dreif með vangaveltum um hvort hugsanlega hafi verið um viðreynslu eða jafnvel misheppnaða viðreynslu að ræða.

Borgarlína – no. kvk.

Borgarlína var eitt af kosningarmálunum í sveitarstjórnarkosningunum í maí og var því mikið í umræðunni. Borgarlínan á að draga úr notkun einkabílsins með öflugum almenningssamgöngum og jafnframt að draga úr mengun og dýrum fjárfestingum í stofnvegum. Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu.

Gámagrams – no. hk.

Gámagrams er ekki nýtt fyrirbæri en var meira í fréttum í ár en áður. Gámagrams er þekkt fyrirbæri víða um heim og kallast dumpster diving á ensku. Það snýst um að fara í gáma fyrir utan matvöruverslanir og veiða upp úr ruslinu þann mat sem er í góðu lagi. Hér á landi er gámagrams bæði stundað af neyð og af hugsjón. Hugsunin með gámagramsi er að það sé ekki réttlætanlegt að láta mat fara til spillis og ýmsir sem þetta stunda vilja mótmæla þeirri matarsóun sem viðgengst, svo sem þegar verslunareigendur henda ætilegum mat vegna þess að maturinn er farinn að nálgast síðasta söludag eða er í beygluðum umbúðum. Orðið ruslarót hefur einnig verið notað um þetta fyrirbæri.

Dagskrárvald – no. hk.

Dagskrárvald er ekki nýtt orð í íslensku en komst í hámæli  í nóvember þegar mennta- og menningarmálaráðherra sagði í tengslum við svonefnt Klausturmál að ofbeldismenn ættu ekki að hafa dagskrárvald í íslensku samfélagi. Dagskrárvald, sem kallast á ensku agenda setting, snýst um það að geta ákveðið hvaða mál eru sett á dagskrá í samfélaginu og hver ekki. Mikil völd fylgja því að geta stjórnað því hvaða mál eru sett á dagskrá, svo sem að geta lagt fram frumvörp og að taka ákveðin málefni fyrir.

Ketó – no. hk.

Ketó-mataræðið náði vinsældum árið 2018 og snýst um að borða mestmegnis fitu og prótein en mjög takmarkað af kolvetnum, svo sem kornmeti, kartöflum, pasta, hrísgrjónum og ávöxtum. Ketó er stytt­ing á ketósa (enska: ketos­is) og er  notað um ástand sem lík­am­inn kemst í þegar kolvetni í mataræði er takmarkað verulega en í staðinn er neytt mikillar fitu. Afleið­ing þess verður sú að lifrin fer að fram­leiða ketóna sem lík­am­inn sem nýtir sem orkugjafa í stað glúkósa og brennir fituforða sem eldsneyti.

Skjáfíkn – no. kvk.

Skjáfíkn er það að vera háður snjalltækjum. Umræða um skjáfíkn var áberandi á árinu og talið að það væri vaxandi vandamál í þjóðfélaginu að einstaklingar hyrfu inn í heim snjalltækjanna. Þeir sem haldnir eru skjáfíkn geta eytt mörgum klukkutímum á dag í tölvum og snjalltækjum og skjáfíknin getur truflað önnur verkefni og haft áhrif á samskipti við annað fólk.

Vefkaka – no. kvk.

Vefkökur eru upplýsingapakkar sem vafraforrit vista á notendatölvum að beiðni vefþjóna. Þegar vafrinn biður síðar sama vefþjón um vefsíðu er kakan send til þjónsins með beiðninni. Notkun á vefkökum hefur verið gagnrýnd vegna þess að sum fyrirtæki hafa notað þær til að safna upplýsingum um hegðunarmynstur einstaklinga á vefnum og hafa sum verið sökuð um að tengja slíkar upplýsingar við aðrar upplýsingar svo sem innkaupamynstur. Með persónuverndarlögunum, sem tóku gildi í ár, þurfa notendur að samþykkja skilmála um notkun á vefkökum. Orðið vefkaka hefur því verið áberandi í ár en einnig hafa verið önnur orð fyrir þetta fyrirbæri sem kallast cookie á ensku, svo sem fótspor og smygildi, smákaka, vafrakaka eða einfaldlega kaka.

Og orð ársins 2018:

Plokka – so.

Orðið fellur vel að öllum viðmiðum okkar um orð ársins. Þetta er gamalt orð sem fengið hefur nýja merkingu en er um leið tökuorð úr erlendu máli. Þeir sem plokka tína upp rusl meðan skokkað er eða gengið. Þannig sameinar fólk áhuga á umhverfisvernd og heilsusamlegu líferni. Siðurinn á rætur að rekja til Svíþjóðar en þar í landi kallast þetta plogga og er orðið myndað af  plocka (tína upp) og jogga (skokka). Plokk komst í hámæli á fyrri hluta ársins og var mikið iðkað í sumar. Á Facebook var stofnaður hópurinn Plokk á Íslandi þar sem meðlimir deila myndum og sögum úr plokkinu.

Plokka er gamalt orð sem notað hefur verið í ýmsu samhengi. Oftast hefur það merkinguna að reyta, t.d. fiður, augabrúnir eða jafnvel peninga af öðrum. Það getur merkt að hreinsa eitthvað úr einhverju og áhugamenn um tónlist þekkja margir strengjaplokk. Þessi nýja merking orðsins fellur því vel að eldri merkingu og rímar þar að auki við skokkið sem margir plokkarar stunda.

[/cs_text]
 
[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701