Insomnia: The one with the …

[cs_text]Leikhópurinn Stertabenda flytur verkið Insomnia sem sýnt er í Kassanum í Þjóðleikhúsinu undir leikstjórn Grétu Kristínar Ómarsdóttur. Höfundur verksins er danska leikskáldið Amalie Olesen ásamt leikhópnum Stertabendu sem saman stendur af leikurunum Bjarna Snæbjörnssyni, Maríu Hebu Þorkelsdóttur, Tinnu Sverrisdóttur og Þorleifi Einarssyni og tónlistarkonunum Sigríði Eir Zophoníasardóttur og Völu Höskuldsdóttur. Verkið er rannsókn hópsins á hinni geysivinsælu sjónvarpsþáttaröð Friends, sem sýnd var í línulegri dagskrá frá 1994 til 2004. Eftir sameiginlega rannsóknarvinnu hópsins var það hlutverk Amalie að vinna úr hugmyndunum og skrifa handritið.

Kanóna í poppkúltur

„Hvar varst þú árið 2004 þegar síðasti Friends-þátturinn var sýndur?“ að þessu spyr leikhópurinn sig undir lok sýningarinnar. Spurningin minnir á spurningar eins og: „Hvar varst þú þegar Tvíburaturnarnir féllu árið 2001?“ eða „Hvar varst þú þegar Geir H. Haarde sagði: ,Guð blessi Ísland‘ árið 2008?“. Þó varla megi leggja þessi atvik að jöfnu varpar spurningin ljósi á hversu stór hluti Friends-þættirnir hafa verið af lífi margra eða eins og Gréta Kristín hefur orðað það: „Þættirnir eru kanóna í poppkúltur og hluti af uppeldi heilu kynslóðanna … Þættirnir hafa síast inn í meðvitund okkar, dómgreind og litað afstöðu okkar hvort sem við viðurkennum það eða ekki.“ Á síðustu árum hafa margir komið aftur að Friends. Fólk hefur velt því fyrir sér hvort þættirnir standi tímans tönn og hvort enn sé viðeigandi að hlæja að öllum bröndurunum sem þar eru settir fram. Þættirnir hafa meðal annars verið gagnrýndir fyrir íhaldssamar staðalímyndir, kynjamismunun, hommafóbíu og fitufordóma, sjá áhugaverða samantekt hjá Independent.

Heimur upplýsingarinnar

Í áðurnefndu viðtali lýsir Gréta Kristín því sömuleiðis hvernig túlka megi Friends sem einskonar spegil á nútímasamfélag sem einkennist af „antí-intellektúalisma“. „Við lifum á hátindi síðsannleikans, falskra frétta og afneitunar á vísindalegum staðreyndum. Þessi nýaldarheimspeki snýst um að ef þú trúir einhverju bara nógu mikið þá sé það satt. Þetta grefur undan undirstöðum vísinda og þekkingar. Það er algjör hylling á þessu í þáttunum. Þetta eru tíu ár þar sem sex vinir búa saman og þau þróast ekki neitt. Það verður rúnnun á karakterunum, þeir verða hvorki dýpri né margbrotnari, þeir verða einfaldari, þeir verða meiri steríótýpur, karíkatúrar og innantóm … Allt snýst um að viðhalda „status quo“ og að halda tryggð við þitt hlutverk innan hópsins og ekki fara út fyrir kassann. Ekki sækja þér þekkingu einhvers staðar, ekki efast,“ sagði hún. Með öðrum orðum hvetja persónur Friends ekki til virkrar lýðræðislegrar þátttöku frekar en ævintýrabækurnar eftir Enid Blyton eða ástarsögur Ás-útgáfunnar.

Þessar hugmyndir fá útrás í heimspekilegu upphafi verksins Insomnia þó tengingin sé síður en svo augljós í fyrstu. Heimurinn er að verða til að nýju. Sex hvítklæddar verur leggja sig fram við að reisa samfélag byggt á „bestu gildunum“ það er umburðarlyndi, fjölbreytileika og víðsýni, en ekki lýðræði. Verurnar vilja allar vera upplýstar en hafa þó allar sýnilega fordóma. Að endingu verða þær sammála um að grunngildi samfélagsins skuli vera svefnleysi, samanber merkingu orðsins „insomnia“. En heimurinn þeirra reynist ekki fullkominn og upp koma ýmis álitamál sem hafa beina skírskotun í samtíma okkar. Bannað er að nota plaströr – vegna fiskana í sjónum. Bannað er að mála á sér andlitin – það er ólögmædd menningarupptaka. Bannað er að minnast á kyn og kynhneigð, bannað er að minnast á Kína og bannað er að koma með hrútskýringar.

Greining á Friends

Skörp skil eiga sér stað í verkinu þegar hvítklæddu verurnar skipta um föt og fara að rannsaka sexmenningana í Friends, þau Ross, Monicu, Rachel, Phoebe, Joey og Chandler. Persónurnar skipta með sér verkum en eru ekki alls kostar sammála um hver eigi að leika hvern. Búningarnir eru stílhreinir, allir svartir og hvítir að lit, en um leið eru persónueinkenni sexmenningana skýr (Alexía Rós Gylfadóttir og Eva Signý Berger). Það fer ekki á milli mála hver er hvað. Þorleifur lék Chandler af mikilli sannfæringu. Hann náði töktunum hans vel. Þá kom Sigríður Eir á óvart í túlkun sinni á Moniku í keppnisham. Guðmundur Erlingsson, sýningarstjóri, var einnig með óvænt hlutverk sem Gunther, starfsmaðurinn á kaffihúsinu sem var annað heimili sexmenningana. Honum fórst það vel úr hendi og uppskar mikinn hlátur.

Það sem eftir var sýningar hétu senurnar allar eitthvað eins og þættirnir í Friends, til dæmis: II þáttur – The one with the casting. Nokkrar valdar senur úr þáttunum voru sviðsettar, ástarsaga Ross og Rachel var rakin og persónueinkennum sexmenningana var lýst í gegnum söngva með hallærislegu rími í anda Phoebe – Ross rímar við gloss, hross, foss og Monika við harmonika. Það var þó Sigríður Eir sem lék Monicu, en ekki Phobe, sem spilaði undir á gítar.

Það kemur varla á óvart að mikið var um beinar vísanir í Friends í verkinu. Við sögu komu til dæmis „The naked guy“,  kalkúnninn sem festist á höfðinu á Joey, „pivot“-taktar Ross þegar hann bar inn sófann og hvíta hundstytta Joey og Chandlers. Þá var fyndið þegar Rachel kom endurtekið hlaupandi yfir sviðið í hvítum brúðarkjól. Ekki þurfti dolfallinn Friends-aðdáanda til að koma auga á vísanir í þættina en sýningin krafðist þess þó að maður þekkti nokkuð vel til þeirra. Af og til var skipt yfir í ensku og frasar eða heilar setningar hafðar eftir sexmenningunum.

Leikhúsmiðillinn sjálfur kannaður

Eftir hlé kom á óvart að leikararnir fóru að kynna sig með nöfnum og brutu því hinn ósýnilega fjórða vegg meira en áður. Það fór að verða meira áberandi hvernig leikararnir (og tónlistarkonurnar) brugðust við salnum. Þeir gerðu stundum hlé á leiknum á meðan helgið var eða hneigðu sig, að því er virtist óvænt. Með því kom uppistandsbragur á sýninguna. Í anda sexmenningana fóru leikararnir í keppni um hvaða persóna í Friends væri mest sympatísk eða hafði upplifað flestu áföllin. Það var áhugaverð nálgun. Þessi breyting í framkomu leikaranna og afstöðu þeirra til persónanna er áhugaverð í ljósi þess að leikhópurinn lagði upp með að rannsaka sjálfan leikhúsmiðilinn í verkinu. Gréta Kristín sagði í áðurnefndu viðtali: „Það er áhugavert að sjá persónur verða til á sviði. Það er ákveðið samkomulag sem er gert við áhorfendur því þeir ganga inn í „samþykkta blekkingu“. Þarna er einhver sannleikur sem er samt ekki veruleiki.“

„VII þáttur: The one with the lokaþáttur“

Eftir að hafa rakið framvindu Friends í megindráttum bjó leikhópurinn til óvæntan endi. Ross var látinn deyja. Hann var skrifaður út úr handritinu líkt og Dr. Drake Ramoray, persónan sem Joey lék í þáttunum Days of Our Lives. Eftirlifandi persónur sungu endurtekið: „kaþarsis, kaþarsis“. Sýningin endaði svo á sömu nótum og hún hófst, farið var heilan hring frá upphafi til endaloka. Blái silkihanskinn sem í upphafi var sagður tákna líf og dauða birtist á sviðinu. Og aftur var talað um svefn og drauma.

Að mínu mati er verkið ekki auðskilið. Tengingin á milli fyrsta hluta sýningarinnar, þar sem hvítu verurnar reisa samfélag, og seinni hluta sýningarinnar þegar allt hverfist um Friends er óskýr. Mér fannst á köflum eins og þetta væru tvö sjálfstæð verk. Það hefði mátt brúa betur bilið á milli heimspekilegra vangaveltna og Friends atriða. Verkið fær nýja og dýpri merkingu þegar það er skoðað með vangaveltur leikstjórans, frá undirbúningsferlinu síðastliðið vor, í huga. En sýningin sjálf miðlar þeim ekki nógu vel.[/cs_text]

Um höfundinn
Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir er með meistarapróf í ritlist frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701