Sögur sem hafa lítið heyrst á sviði

[cs_text]Sjálfstæði leikhópurinn Lakehouse stendur fyrir uppsetningu nýs íslensks leikverks sem frumsýnt verður í Tjarnarbíói í lok nóvember. Verkið er Rejúníon eftir Sóleyju Ómarsdóttur. Það gerist í íslenskum samtíma og fjallar um Júlíu, eftirsóttan ferlafræðing sem rekur sitt eigið ráðgjafafyrirtæki, er með níu þúsund fylgjendur á Snapchat og skipuleggur grunnskólarejúníon aldarinnar með æskuvinkonu sinni. Það er bara eitt sem reynist ofurkonunni erfitt og það er að fóta sig í móðurhlutverkinu. Rejúníon er ætlað að varpa ljósi á barneignir, sambönd og samfélagspressu. Verkið hreif strax stofnendur Lakehouse, hjónin Árna Kristjánsson, leikstjóra og Hörpu Fönn Sigurjónsdóttur, tónskáld og framleiðanda, því svo skemmtilega vildi til að handritið rataði í hendur þeirra um það bil mánuði eftir að þau komust að því að þau áttu von á barni.

Sóley Ómarsdóttir, Árni Kristjánsson og Harpa Fönn Sigurjónsdóttir.

Ástríða og endurskrif

Síðastliðið eitt og hálft ár hafa Árni og Harpa ritstýrt verki Sóleyjar. Uppköstin hafa verið ófá. „Í raun hefur engin setning fengið að vera í friði. Í Rejúníon er þessi ástríða sem þú finnur eiginlega bara í fyrsta verki höfundar, þetta er svona þessi saga sem brennur á höfundi, og það er þessi ástríða sem þú þarft til að keyra í gegnum áttatíu uppköst af verki. Þetta þriggja manna samstarf ögrar því að höfundurinn sitji einn heima hjá sér og verkið hans standi og falli með því hvort leikstjóri skilji það eða ekki.“ Árni segir það hæfa samtímaverki að samband sé á milli leikstjórans og höfundarins. „Þetta snýst allt um að forðast að vera föst í rótgrónum vinnubrögðum bara vegna þess að þau eru rótgróin. Þegar maður er með sjálfstæðan leikhóp er maður með svo gott tækifæri til að finna ný vinnubrögð, því þú ert þín eigin yfirbygging.“ 

Valið í hlutverk fyrir ári síðan

Lakehouse leggur upp með að tengja saman íslenskt og breskt leikhús. Árni segist sækjast eftir þessari hráu „æ, gerum þetta bara“-stemningu frá íslenska leikhúsinu en fagmennskunni frá breska leikhúsinu. „Þar er leikhús iðn frekar en svona flæðandi listform, í minni reynslu,“ segir Árni. „Bresku leikhúsi fylgja ákveðin fagleg vinnubrögð sem eru kannski eðlilegri í stærra samhengi, stærra samfélagi, en eru mikilvæg í okkar samfélagi til að muna að við erum að stækka sem leiklistarsamfélag.“ Í þessu sambandi finnst Árna mikilvægt að halda prufur fyrir hverja uppsetningu í stað þess að setja alltaf upp sýningar með sama fólkinu. Leikarateymi Rejúníon var valið í september 2017. Það eru þau Sólveig Guðmundsdóttir, sem þá var nýbúin að fá Grímuverðlaun fyrir Sóleyju Rós ræstitækni, og Orri Huginn Ágústsson sem fara með hlutverk Júlíu og eiginmanns hennar. Alexía Björg Jóhannesdóttir átti að leika æskuvinkonu Júlíu en þurfti frá að hverfa. Í hennar stað kom því Sara Martí Guðmundsdóttir í júlí 2018.

Fyrst leikgleði, svo greining

Lakehouse-hópurinn hefur það að markmiði að endurspegla mannlega sögu og fá leikara sem geta tengt persónulega við þær. „Verkin sem við veljum erum mjög femínísk, ekki af því að þau segja „fuck you“ við feðraveldið í efninu en kynjahlutfallið er alltaf mjög kvenlægt og persónurnar sem við viljum fjalla um eru í raun sögur kvenna sem hafa lítið heyrst á sviði. Við reynum að vera með nýja vinnuaðferð af því við erum líka að vinna með nýjar sögur,“ segir Árni og vísar til þeirrar aðferðar sem hann tileinkaði sér í námi sínu við Bristol Old Vic Theatre School. „Núna erum við búin með fyrstu viku og leikararnir eru byrjaðir að læra inn á hvað ég byrja hratt. Sem dæmi eru þau núna búin að leika sýninguna út í gegn, úti á gólfi, tvisvar án þess að vera með handrit. Þeir þurfa bara að treysta á mótleikara sinn.“ Aðferðin felist í því að snúa æfingaferlinu á hvolf og byrja ekki á langri greiningu fyrr en leikararnir hafa kynnst verkinu, svo að segja á eigin skinni. Leikararnir fái einn aðstoðarmann hver sem segi þeim textann, línu fyrir línu. Verkið er því helmingi lengra í flutningi á slíkri æfingu. „Þú ert með mótleikara þínum á gólfinu og færð svo mikinn tíma bara í að rækta þau tengsl. Það sem maður lærir um persónur sínar út frá þessari tengingu er svo það sem við greinum, festum á blað. Þannig að þetta er ekki hefðbundin kerfisgreining eins og tíðkast yfirleitt í íslensku leikhúsi. Þetta er hvorki spunaleikhús né klassískt textaleikhús en nær leikgleðinni úr spunanum og greiningunni sem kemur eftir á.“

Írski leikstjórinn Donnacadh O‘Briain hefur verið Árna mikil fyrirmynd. Leiðir þeirra lágu saman þegar Árni var við nám í Bristol Old Vic og fékk að fylgja O‘Briain eftir í einskonar starfsnámi. „Á þeim tímapunkti þegar ég var aðstoðarleikstjóri hjá honum var hann að fá Olivier-verðlaun fyrir bestu sýningu sjálfstæðs leikhóps fyrir verk sem heitir Rotterdam. Hann kynnir mér fyrir þessum aðferðum sem snúa allar að því að færa vinnuna frá leikstjóranum yfir á leikarann og að einfalda greiningarvinnuna. Þetta snýst ekki um að segja gáfuðustu hlutina heldur að ná að vinna þá, fókusa meira á leiklist en rökhyggju.“

„Næstum því jafngild handritinu“

Lakehouse-hópurinn vinnur mikið með miðla svo sem vídeó og tónlist. „Það er kannski nýlunda við það hvernig við vinnum að Harpa tekur upp fyrsta samlestur og semur í raun tónlist út frá honum. Þannig að hún notar það eins og svona kvikmyndaskor,“ segir Árni. „Hún er með það í eyrunum á meðan hún semur tónlistina. Og er að semja tónlistina frá fyrsta degi æfinga. Þegar við erum búin að fullæfa verkið, þá hliðrar Harpa aðeins til, en í rauninni fara leikararnir að æfa eftir tónlistinni seinna meir. Af því hún er orðin næstum því jafngild handritinu.“ Árni bendir á að þetta hafi verið skýrt í uppsetningu Lakehouse á Í samhengi við stjörnurnar. „Þá vorum við með senu þar sem þau eru að hittast í samkvæmisdansanámskeiði og eru að eiga samtal eftir að hafa hætt saman og eru að reyna að ná saman aftur. Það kemur tónlist sem tengist atriðinu og þau dansa í takt við tónlistina á meðan þau tala í takt við tónlistina líka. Tónlistin tók innblástur af lestrinum en sviðsetningin tekur síðan innblástur af tónlistinni þegar við erum komin á síðustu metrana.“

Fæðingarþunglyndi er tabú

Árni Kristjánsson.

Rejúníon fjallar um fæðingarþunglyndi og foreldrahlutverkið. „Fæðingarþunglyndi er eitt faldasta þunglyndi sem þú finnur,“ segir Árni. „Það er tabú í samfélagsumræðunni. Hvernig getur þú sagt einhverjum að þú efist um að þú elskir barnið þitt?“

Árni segist tengja sterkt við verkið. Það er þó engin ein persóna frekar en önnur sem hann tengir við. Hann segist miklu frekar tengja við spurningarnar í verkinu og átökin sem það býr til. „Það var stundum „scary“ þegar ég fékk alltaf nýtt og nýtt uppkast að verkinu. Það var eins og Sóley væri bara með kameru á okkur af því þetta talaði svo mikið til okkar. Þetta var bókstaflega það sem við vorum að ganga í gegnum á meðan við vorum að ritstýra því. En hún kom alltaf með innihaldið.“ Sóley hafi alls ekki byggt á upplifun þeirra Hörpu enda hafi þau aðallega átt samskipti í gegnum tölvupóst og símtöl á þeim tíma. Þau hafi bara tengt svo sterkt við frásöguna. „Í raun hefur þetta verk haft mjög mikil áhrif á að við gátum tæklað fæðingarþunglyndið sem var á byrjunarstigi hjá okkur,“ segir Árni. „Að mörgu leyti var þetta verk bara krúsíal í vegferð okkar Hörpu.“

Árni lýsir þeim Hörpu sem nútímafólki, líkt og Júlíu, sem er með marga bolta á lofti. „Ég myndi segja að við höfum bæði gengið í gegnum mjög miklar lífsbreytingar enda bæði svona múltítaskerar og stöðugt að skilgreina okkur út frá því sem við gerum. Og erfitt að taka því að nú verður lífið aldrei eins, eða þú veist, eins og það var. Maður einhvern veginn syrgir gamalt líf þangað til maður fattar að næsta líf er bara betra,“ segir hann.[/cs_text]

Um höfundinn
Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir er með meistarapróf í ritlist frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

news-1701