Smásögur heimsins – Asía og Eyjaálfa

Út er komið þriðja bindi ritraðarinnar Smásögur heimsins sem geymir snjallar smásögur frá öllum heimshornum. Í þessu bindi er að finna sögur frá 20 löndum í Asíu og Eyjaálfu en markmið ritraðarinnar er að birta sögur frá eins mörgum löndum og kostur er.

Asía og Eyjaálfa spanna marga menningarheima eins og bindið endurspeglar. Þar getur að líta smásögur allt frá arabísku og persnesku ríkjunum í vestri, til Indlands og Japans í austri og Ástralíu og Nýja-Sjálands í suðri. Frá sumum þeirra landa sem eiga fulltrúa í bókinni berast sjaldan sögur til Íslands. Má þar nefna Kúveit, Íran, Norður-Kóreu, Malasíu, Pakistan, Víetnam og Filippseyjar.

Margar sagnanna voru þýddar úr frummáli, s.s. arabísku, taílensku, ensku, kóresku og japönsku, aðrar hafa verið þýddar úr millimáli en íslenska þýðingin síðan borin saman við frumtexta. Alls koma tólf þýðendur við sögu.

Ritstjórar eru Rúnar Helgi Vignisson, Jón Karl Helgason og Kristín Guðrún Jónsdóttir en öll kenna þau á Hugvísindasviði.

Ritstjórar Smásagna heimsins, þau Rúnar Helgi Vignisson, Kristín Guðrún Jónsdóttir og Jón Karl Helgason.
Um höfundinn
Guðmundur Hörður Guðmundsson

Guðmundur Hörður Guðmundsson

Guðmundur Hörður Guðmundsson er kynningar- og vefstjóri Hugvísindasviðs HÍ. Sjá nánar

[fblike]

Deila