[cs_text]

Hvernig líður þeim, sem leggur öruggur út á ísinn, sem hann treystir svo vel, að hann notar ekki broddstaf, en fellur svo allt í einu í feigðarvök. Hvernig líður þeim, sem vaknar af værum blundi og sér ekkert umhverfis sig annað en eld og reyk. Hvernig líður þeim, sem gengur í náttmyrkri öruggur um rétta leið, en fellur andvaralaus fram af björgum ósyndur í ískaldan sjó.

(Jófríður Þorkelsdóttir, förukona)

Saga förukvenna er samofin sögu íslensku þjóðarinnar. Þá sögu hef ég rannsakað að hluta, fyrst í BA-ritgerð minni, Sytrur minninga úr Mýrdalnum: Rannsókn á munnlegri sögu (2013),[i] en einnig með öðrum nálgunum s.s. heimildarmynd um síðustu förukonur Íslands sem lokið verður við fyrir árslok. Síðasta verk mitt þar sem förukonur voru viðfangsefni mitt, er grein sem birt var eftir mig í fræðitímartinu Feminist Research nú í sumar (15. júní). Greinin bar yfirskriftina „Drifting: Feminist Oral History and the Study of the Last Female Drifters in Iceland“. Efni greinarinnar var í grunninn byggt á ýmsum rituðum heimildum og ennfremur viðtölum sem ég tók við átján einstaklinga sem mundu eftir förukonum úr barnæsku sinni. Í þessum skrifum mínum hér á Hugrás legg ég út frá þeim greinarskrifum.

Í grein minni „Drifting: Feminist Oral History and the Study of the Last Female Drifters in Iceland“ var ímynd förukvenna á Íslandi í forgrunni.[ii]  Í reynd var þessi nýja nálgun að skilgreina og greina ímynd förukvenna nauðsynleg. Með því að fá þann skilning á förukonugoðsögninni var kleift að skyggnast á bakvið þá ímynd. Það gerði ég með því að styðjast við reynsluheim kvenna á Íslandi.

Í því skyni að greina ímynd förukvenna notaðist ég við aðferðir minningafræðinnar, auk þess sem ég sótti í sarp þjóðsagnanna. Í þeim tilgangi að öðlast skilning á reynsluheimi förukvenna notaðist ég við viðtöl sem ég tók við konur sem höfðu kynnst förukonum, börn að aldri. Þær sögur þeirra fullorðnu kvenna sem þekkja reynsluheim kvenna, vörpuðu mikilvægu ljósi á ýmsa ráðandi þætti er vörðuðu líf förukvenna.

Förukonur/farandkonur/göngukonur/flökkukonur/umferðakonur voru heimilislausar konur sem flökkuðu á milli bæja og báðu sér beina, þær síðustu fram eftir 20. öldinni. Konur sem lifðu á útmörkum hins karllæga bændasamfélags og jafnframt utan einkasviðs kvenna (e. private sphere), heimilisins. Þessi staða farandkvennanna á skilum náttúrunnar og samfélagsins kallaði fram persónusköpun þeirra í sögunni. Við rannsókn mína kom nefnilega í ljós að lýsingar á förukonum eru alla jafnan með sama móti, líkt og verið sé að lýsa sömu konunni, þrátt fyrir að persónurnar og tilvist þeirra í tíma og rúmi væri mismunandi. Hér er um að ræða ímynd af förukonu sem teygir sig allt frá Helgu Bárðardóttur í Bárðar sögu Snæfellsáss til síðustu förukonunnar Möngu (1869-1962) sem frá segir í bók Ómars Ragnarssonar Manga með svartan vanga: Sagan öll. Ímynd förukvenna hefur ákveðna samsvörun í kvenpersónum þjóðsagna okkar og þar liggja um leið ákveðnar rætur sem fólk speglaði líf þessara kvenna í.  Huldukonur, tröllskessur og útilegukonur eru dæmi um slíkar sögupersónur. Frásagnarháttur sagnanna er líka gjarnan með sama móti. Saga kvennanna er oftast tvískipt; sagan fyrir flakkið og sagan eftir flakkið. Fyrir flakkið var konunum var lýst sem fögrum og efnilegum konum sem sinntu kvenhlutverkum móðurinnar og ástkonunnar, áður en þær urðu förukonur, urðu náttúra. Ástæðan fyrir því að konurnar fóru að flakka liggur ekki alltaf fyrir, en ástarsorg er algeng ástæða sem nefnd er til sögunnar. Ástarsorgin risti þá einatt fögru konuna þeim rúnum að eftir sat kerling er klæddist mörgum lögum af tötrum, með harðneskjulegt andlit og brátt skap: Kona án manns er kona án róta.

Rannsóknin dró fram fleiri ástæður er lágu að baki því hversu samstíga lýsingarnar á förukonunum voru, nefnilega þá einföldu staðreynd að sjónarhorn barna er um marg einsleitt og að barnæskuminningar eru ráðandi í tiltækum heimildum um förukonur fyrr og síðar. Minningar einstaklinga um göngukonur sem komu á bernskuheimili þeirra sýna okkur líkt og minningarfræðin tiltekur, að börn hafa þann eiginleika að festa sér í minni það sem er óvenjulegt. Vegna þessa gat ég sett upp rannsókn er byggði á viðtölum við fullorðna einstaklinga sem höfðu kynnst förukonum í barnæsku sinni. Í kjölfarið hófst för mín sem sagnfræðingur inn í hina lifandi sögu með aðferðum munnlegrar sögu. Heimur kvennatjáningar opnaðist og kynni tókust við möguleikana sem fólgnir eru í því að nýta sér þá reynslu sem þar er að finna.

Kvennaviðtölin (e. woman-on-woman interview) að baki rannsókn minni á síðustu förukonum Íslands endurspegla mátt þess að konur geti fjallað sín á milli um málefni kvenna á grunni reynsluheims kvenna. Þeim viðtölum líkti ég í greininni við aðrar þekktar tjáningaleiðir kvenna á Íslandi til að miðla reynsluheimi sínum, nefnilega sagnadansa fyrri alda og #Metoo atburðasagnir nútímans. Rýmið sem konur skapa með þessum leiðum skapa í senn samstöðu um málefni þeirra og draga fram upplýsingar er lúta að þeim með skýrari hætti en ella væri mögulegt.  Vettvangurinn og viðtalið lúta eðli kvenna er þátt taka, og á þeim grunni þróaði ég aðferðafræði í tengslum við kvennaviðtöl. Aðferðafræði sem grundvallaðist á sýn Virginia Woolf á mikilvægi samtalslistarinnar þ.m.t. þess kjörlendis sem hún sprettur upp af. En sú aðferðafræði mín byggðist einnig á skrifum fræðikvenna á borð við Erlu Huldu Halldórsdóttir[iii] og Helgu Kress[iiii] um tjáningu og þagnir kvenna í Íslandssögunni. Þessi aðferðafræði ljáir hinni rituðu sögu sjónarhorn kvenna sem reynsluheimur kvenna gefur einn innsýn í.

Hér má nálgast greinina „Drifting: Feminist Oral History and the Study of the Last Female Drifters in Iceland“

Kynningarmyndskeið fyrir heimildarmyndina um síðustu förukonur Íslands

 

Mynd 1. Vigdís Ingvadóttir (1864-1957).

Mynd 2. Líkan sem ég gerði sem sýnir efnislegt frásagnarrými kvenna, s.s. kvennaviðtal, sagnadans kvenna, samtal milli kvenna.

Heimildir:

[i] Erla Hulda Halldórsdóttir, „The Narrative of Silence“, Life Writing 7 (1) (2010), 37-50.

[ii] Helga Kress, Máttugar meyjar. Íslensk fornbókmenntasaga. (Reykjavík: Háskólaútgáfan 1993).

[iii] Ritgerðin, Sytrur minninga úr Mýrdalnum: Rannsókn á munnlegri sögu (2013), var skrifuð undir leiðsögn Þorsteins Helgasonar.

[iiii] Þess ber þó að geta að ímynd förukvenna var aukinheldur viðfangsefni mitt í BA-ritgerð í sagnfræði.[/cs_text]

Um höfundinn
Dalrún J. Eygerðardóttir

Dalrún J. Eygerðardóttir

Dalrún J. Eygerðardóttir er doktorsnemi í sagnfræði við Háskóla Íslands og meistaranemi í umhverfis- og auðlindafræðum. Hún hefur einnig lokið BA-gráðu í kvikmyndafræði.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701