Fjarverandi fáfnisbanar

[cs_text]Loftsteinn lendir í mýri í Bandaríkjunum og myndar út frá sér gagnsæjan hjúp sem stækkar hægt og bítandi. Þegar hermaðurinn Kane (Oscar Isaac) snýr veikur heim til konu sinnar, Lenu (Natalie Portman), eftir dvöl í hjúpnum ákveður hún að fara þangað sjálf ásamt fjórum öðrum konum í von um að finna lækningu fyrir hann. Það hefur þó aðeins einn maður átt afturkvæmt úr martraðarkenndum veruleika hjúpsins og það er Kane sjálfur.

Annihilation (2018, Alex Garland) átti upphaflega að vera sýnd í kvikmyndahúsum um allan heim en þegar framleiðendur sáu myndina fannst þeim breytinga vera þörf. Garland gaf sig hins vegar ekki og fékk framleiðandann Scott Rudin til liðs við sig, en sá síðarnefndi hafði hinn mikilvæga klippirétt, og stóð hann með Garland gegn stúdíókerfinu sem vildi breyta bæði persónunum og endalokunum. Fór svo að myndinni var einungis dreift í kvikmyndahús í Bandaríkjunum en Netflix sá síðar um að gera myndina aðgengilega á alþjóðavísu. Því fylgir mikill missir þar sem flatskjáum tekst svo sannarlega ekki að endurskapa töfra breiðtjaldsins. Ógnvænleiki „glitursins“ (e. Shimmer) minnkar samhliða því að merkingarmiðuð smáatriði hverfa inn í heildarmyndina. Líkt og í Ex Machina (2014), fyrri mynd Garlands, hefst frásögnin án mikils undirbúnings en síðar er fyllt í eyður hennar með endurlitum, og kann þessi aðferð að virka misjafnlega á áhorfendur. Ljóst er í öllu falli að tilfinningaleg hleðsla myndarinnar verður dreifðari fyrir vikið og þótt Garland komist upp með þetta er jafnljóst að um vandmeðfarna frásagnarbyggingu er að ræða sem lakari leikstjórar ættu að forðast.

Kvikmyndin er aðlöguð af Garland sjálfum úr fyrstu bókinni um Suðurjaðarinn (e. Southern Reach), þríleik eftir Jeff VanderMeer. Garland á jafnframt rætur að rekja til bókmennta eftir að hafa stigið fram á sviðið með metsölubókinni The Beach (sem þýdd var á íslensku árið 2000 af Birni Þór Vilhjálmssyni). Það er þessi bakgrunnur sem gerir Garland forvitnilegan þar sem myndir hans eru stútfullar af tæknibrellum en hann sjálfur einblínir hinsvegar meira á persónurnar. Í hans augum er hið skrifaða orð mikilvægara en innihaldslausir tölvufimleikar. Persónur Garlands þurfa að horfast í augu við aðstæður sem þær ráða ekki við og er Annihilation þar engin undantekning. Hún fjallar hins vegar ekki um þrautseigju mannsandans andspænis einhverju sem höfundur hefur fyrir fram ákveðið að sé hægt að sigra heldur um það hvernig fólk bregst við þegar það veit að það er sigrað. Í stuttu máli sagt þá eru engir Fáfnisbanar í heimi Garlands.

Þótt konurnar fimm haldi í hjúpinn til að leita svara við spurningum einblínir Garland alfarið á ferðalag þeirra fremur en áfangastaðinn. Allar hafa þær sitt sérsvið og þykja hæfar til að takast á við hið óþekkta en eins og áður segir eru hér engir Fáfnisbanar á ferð og reynir verkefnið svo sannarlega á þær. Meginógnin er hins vegar ekki falin í martröðum „glitursins“, heldur konunum sjálfum, viðhorfum þeirra til eigin sjálfs og hvor annarrar. Þær búa allar yfir göllum og myndar Garland auk þess snilldarleg tengsl milli þessara skapgerðarbresta og krabbameins sem sjúkdóms – sem jafnframt er gegnumgangandi tákn myndarinnar. Í fyrsta skotinu er Jörðin sýnd eins og fruma sem er sýkt af loftsteininum og sjá áhorfendur skömmu síðar Lenu kenna háskólanemum um krabbamein. Síðar tengir hún þau örlög – að eldast og deyja – við galla í frumuuppbyggingu en þeir sem þekkja krabbamein af eigin raun vita að það er eins og að verða fyrir loftstein. Spurningin sem vaknar er einfaldlega þessi: Afhverju ég?

Útskýringuna má auðvitað rekja til margra líffræðilegra þátta (BRCA genið kemur sérstaklega til hugar) þó svo við höfum ekki svarið á reiðum höndum þegar þetta hendir okkur. Spurningin sem Garland setur fram er þó umfangsmeiri en sem nemur sjúkdómnum sjálfum og á við um okkur öll: Afhverju gerði ég þetta?

Það er nefnilega svo, í kvikmyndum og raunveruleikanum, að við spyrjum okkur sjaldan þessarar spurningar. Manneskjur halda með sjálfum sér og réttlæta gjörðir sínar með flóknum hætti. Ef þær gera mistök þá er það vegna aðstæðna; einhvers ókennilegs sem lét þær breyta rangt. Þótt persónur í kvikmyndum séu skáldaðar og búi því ekki yfir sjálfstæðum vilja má spyrja hvort raunveruleikinn sé svo ýkja ólíkur. Sannleikurinn sem við seljum okkur er að við höfum sjálfstæðan og frjálsan vilja og ef við leggjum okkur fram þá sé allt mögulegt. Þegar við fáum stöðuhækkun í vinnunni eða skorum mark í fótbolta er það vegna þess að við lögðum hart að okkur og verðskuldum velgengnina – en þegar illa gengur köstum við sannleikanum okkar út í hafsauga og leitum að öðrum skýringum. Spurningin er sjaldan: Afhverju gerði ég þetta? Eða, Afhverju lagði ég ekki harðar að mér? Ábyrgðin hverfur inní innihaldslausar afsakanir sem rýma fallega við stjórnmálamenninguna. Þá er auðvelt að afsala sér hinum sjálfstæða og frjálsa vilja.

Garland setur þessa hugrænu ferla í líffræðilegt samhengi. Persónur hans reyna að horfast í augu við að þær eru gallaðar en vita ekki afhverju. Með hverri ákvörðuninni sem konurnar taka verður erfiðara fyrir þær að taka þá næstu því þær vita ekki hvort ákvarðanirnar séu yfir höfuð réttar og efinn byrjar að smita út frá sér eins og krabbamein. Þeir sem fara of djúpt ofan í þessa kanínuholu munu á endanum eflaust ríghalda í möntru Decartes; „Cogito, ergo sum“, – Ég hugsa, þess vegna er ég. Spurningin í Annihilation er hinsvegar: Ef ég er ekki ég, hvað er ég?

Vefsvæði Engra stjarna.[/cs_text]

Um höfundinn
Vilhjálmur Ólafsson

Vilhjálmur Ólafsson

Vilhjálmur Ólafsson er nemandi í kvikmyndafræði við Íslensku– og menningardeild Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701