Þjórfé gefið til björgunarsveita

[cs_text]Samhliða auknum straumi ferðamanna til landsins verður sífellt algengara að starfsfólk veitingastaða og hótela fái þjórfé fyrir vel unnin störf. Þar sem starfsfólki er almennt greitt samkvæmt kjarasamningum, og það reiðir sig því ekki á þjórfé til að framfleyta sér, er misjafnt hvernig peningunum er ráðstafað. Starfsmenn Bryggjunnar Brugghúss nýta það til að gera sér glaðan dag. Á Hótel Rangá hefur allt þjórfé, frá byrjun árs 2016, verið gefið til björgunarsveitanna á Hellu og Hvolsvelli; upphæðin nemur samtals 2,4 milljónum króna. Þá hefur Akureyri Fish and Chips safnað þjórfé til styrktar Hjálparsveitinni Dalbjörgu frá 2017.

Gera sér glaðan dag

Skiptar skoðanir hafa verið um greiðslu þjórfjár á Íslandi. Sumir telja að á sama tíma og upplýsa eigi ferðamenn um íslenska siði sé óþarfi að letja þá eða banna þeim að sýna ánægju sína með góða þjónustu með því að greiða örlítið aukalega. Laun í ferðaþjónustu séu ekki svo há og það kæti starfsfólk að fá smá auka pening.

Mynd: pina messina af Unsplash

Eins er orðið nokkuð algengt að starfsmannafélög safni saman þjórfé og noti upphæðina til að halda stafsmannagleði. Bryggjan Brugghús er dæmi um slíkan vinnustað. „Við stjórnendur höfum svo sem enga sérstaka skoðun á þróun þjórfjármenningarinnar en þar sem hún er til staðar finnst okkur mikilvægt að halda vel utan um hana, bjóða upp á nýstárlegri hætti til mótttöku á þjórfé og passa sérstaklega vel upp á að ferðamönnum sé sagt rétt og satt frá því að ekki er ætlast til þess að þjórfé sé veitt,“ segir Ásgeir Guðmundsson, viðburðastjóri staðarins. Til að koma til móts við óskir erlendra viðskiptavina setti Bryggjan upp rafrænt kerfi sem býður viðskiptavinum upp á að borga þjórfé. Eins og Vísir greindi frá síðastliðið haust þótti fyrirkomulagið óheppilegt. Til stóð að greiðslumöguleikinn kæmi ekki upp nema þegar greitt væri með erlendu greiðslukorti og því var bent á að nýjungin gæti falið í sér mismunun eftir þjóðerni. Ásgeir tekur fram að stjórnendur Bryggjunnar telji mikilvægt að litið sé á þjórfé sem kjarabót fyrir starfsmenn í þjónustustörfum og að það megi ekki verða til þess að grunnkjör skerðist.

Gefa þjórfé til góðra málefna

Tvö ár eru síðan Hótel Rangá mótaði sér ákveðna stefnu varðandi þjórfé. Friðrik Pálsson, eigandi og framkvæmdastjóri staðarins, segist „mjög andvígur því að við Íslendingar förum að innleiða þá menningu hérlendis að greiða þjónustufólki lág laun og bæta það upp með þjórfé, sem stundum heimtist vel og stundum illa“. Þrátt fyrir andúð sína á þjórfé þóttist Friðrik vita að erlendir ferðamenn, þá helst Bandaríkjamenn, sem vanir væru að greiða þjórfé til að sýna þakklætisvott fyrir góða þjónustu, vildu launa starfsfólki Hótel Rangá á sama hátt og í heimalandi sínu. „Það væru svolítið skrýtin skilaboð ef við segðum bara: við tökum ekki á móti þjórfé,“ segir hann. Þá séu fyrirtæki gjarnan hvött til að leggja eitthvað til umhverfis síns, það er til góðgerðarmála, og því hafi komið upp sú hugmynd að gefa þjórféð.

Mynd: Hótel Rangá.

Á veitingastað hótelsins var því komið fyrir sérstöku skjali fremst í matseðlunum þar sem greint var frá því nýja fyrirkomulagi að gefa þjórfé til góðra málefna. Til að byrja með ákváðu starfsmenn að kalla þetta „Tips for search and rescue“ eða „Styrk til björgunarsveitar“. Ástæðan fyrir því að hjálparsveitirnar Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli urðu fyrir valinu er að sögn Friðriks fyrst og fremst sú að um er að ræða störf sem unnin eru í sjálfboðavinnu. „Við metum starf þeirra afar mikils. Sveitirnar vinna bæði mikið með okkur og eru okkur gríðarlega hjálplegar þegar við höfum þurft á þeim að halda. Og okkur fannst bara að þær ættu þetta skilið.“

Að láta allt þjórfé renna til góðgerðarmála hefur gefið góða raun hjá Hótel Rangá. Viðskiptavinir eru yfirleitt mjög ánægðir og minnist Friðrik þess að þó Íslendingar gefi yfirleitt ekki þjórfé hafi einn gestur gert það þegar hann vissi í hvað peningarnir myndu fara. Starfsfólkið hefur sýnt verkefninu fullan stuðning en Hótel Rangá veitir starfsmannafélaginu fjárstuðning, sem er óskyldur þjórfénu, til að það geti gert sér glaðan dag. Björgunarsveitirnar hafa verið mjög þakklátar og ánægðar.

Björgunarsveitarmenn á Akureyri. Mynd: Akureyri Fish and Chips.
Gera vel við starfsfólk sitt

Akureyri Fish and Chips hefur kosið að fara sömu leið og Hótel Rangá en hundrað þúsund krónur hafa safnast á því rúma ári sem staðurinn hefur látið þjórfé renna til Hjálparsveitarinnar Dalbjargar á Akureyri. Peningunum er safnað í lítið box sem er á afgreiðsluborðinu. Eins og Friðrik hjá Hótel Rangá benti á, þegar hann gaf sig á tal við mig, var um tíma algengt að rekast á bauka til styrktar góðum málefnum, svo sem Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna eða ABC barnaþorpum. Enn má finna slíka bauka en auk þeirra eru víða komnir baukar sem á stendur „tips“. Það má því segja að Akureyri Fish and Chips hafi sameinað þetta tvennt.

Andri á flandri setur sitt framlag í söfnunarbaukinn á Akureyri Fish and Chips.

Hjörleifur Árnason, eigandi staðarins, segir að þetta fyrirkomulag hafi komið til af því að „það er mikið rennsli á starfsfólki á skyndibitastöðum og alltaf vesen á því hver á að fá að njóta þjórfjár og hver ekki svo einfaldast var að gefa það.“ Spurður af hverju Hjálparsveitin Dalbjörg hafi orðið fyrir valinu segir hann á léttu nótunum: „Þeim mun fleiri ferðamönnum sem björgunarsveitin bjargar, þeim mun fleiri gesti fáum við.“ Síðan bætir hann við að björgunarsveitirnar séu að gera ótrúlega hluti í sjálfboðavinnu og að sú vinna sé ekki alltaf metin að verðleikum.

Reynsla Akureyri Fish and Chips af þessu fyrirkomulagi er góð. „Það eru allir í skýjunum með þetta. Staffið þarf ekki að slást um þjórféð og útlendingunum finnst alltaf jafn ótrúlegt að heyra um starfið hjá íslensku björgunarsveitunum.“ Hjörleifur telur að fyrirtæki þurfi að vera tilbúin að gera vel við starfsfólk sitt svo að þetta þjórfjárfyrirkomulag gangi upp. Starfsfólki Akureyri Fish and Chips er til að mynda boðið tvisvar á ári út að borða og á tónleika eða aðra sambærilega skemmtun. „Ef fleiri fylgja okkar fordæmi og gefa allt þjórfé gæti skapast svolítið sérstök þjórfjármenning á Íslandi sem allir myndu vilja að fólk segði frá í heimalandi sínu,“ segir Hjörleifur.

Aðalmynd: Mathieu Turle af Unsplash

Þessi umfjöllun var hluti af verkefnavinnu í námskeiðinu „Loksins, loksins: Vinnustofa í menningarblaðamennsku“ á vorönn 2018.[/cs_text]

Um höfundinn
Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir er með meistarapróf í ritlist frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701