[cs_text]Árið 2003 gerði óþekktur og atvinnulaus leikari með óljósan bakgrunn, og enn óljósari ríkisborgararétt, kvikmynd. Maðurinn sem hér um ræðir heitir Tommy Wiseau. Þetta væri ekki í frásögur færandi nema fyrir það að kvikmyndin sem búin var til heitir The Room, mynd sem náði að yfirstíga allar mögulegar og ómögulegar hindranir – þ. á m. þá staðreynd að hún er arfavond – til að verða samtímaklassík. Að vísu ekki klassík í sama skilningi og sumar aðrar myndir heldur klassík í krafti upphafins vondleika síns, klassísk í krafti þess að myndin er vond á öðru plani en venjulegar myndir eru vondar. The Room ber öll merki þess að vera búin til af afdala einsetumanni sem þekkir hegðun fjár síns en skortir öll mannleg tengsl, nema þá helst við póstmanninn sem kemur á vorin. Kvikmyndir eru ekki til í fjárhúsum hans.

Kemur þá að bókinni The Disaster Artist: My Life Inside The Room, the Greatest Bad Movie Ever Made eftir Greg Sestero, sem kom út árið 2013. Sestero lék annað burðarhlutverkið í The Room – að sjálfsögðu lék Tommy Wiseau aðalhlutverkið – og greinir bókin frá sambandi Sestero og Wiseau allt frá upphafi vináttu þeirra fram til þess að samstarfsverkefni þeirra, kvikmyndin alræmda, er fullgerð og frumsýnd. Auk þess að leika aðahlutverkið í The Room skrifaði Wiseau handritið, leikstýrði myndinni, fjármagnaði og framleiddi hana, en rétt er að geta í þessu samhengi að kvikmyndin var fjarri því að vera hin hefðbundna hræódýra hrákasmíð er fyllir mengi ástsælla slæmmynda, heldur slagaði framreiknaður kostnaðurinn við gerð hennar upp í milljarð króna. Það kostaði með öðrum orðum nær milljarð að gera bestu lélegastu kvikmynd sem nokkurn tíma hefur verið framleidd.

The Distaster Artist (2017) í leikstjórn James Franco byggir á fyrrnefndri bók og leikur hann jafnframt Wiseau sjálfan. Eins og áður segir er The Room fyrir löngu orðin goðsagnakennd költmynd og er sýnd víðsvegar um heiminn með virkri þáttöku áhorfenda. Myndin þykir átakanlega léleg að öllu leyti en á efsta tindi vondleikans trónir frammistaða Wiseau sjálfs í myndinni, en með þykkum hreimi sínum, sérkennilegum barkahlátri og ekki minnsta votti af leikhæfileikum reynist þetta dularfulla viðundur ómótstæðilegt.

Fjarstæðukenndum karaktereinkennum nær James Franco alveg undursamlega vel, en afar vel framkvæmd förðun hnykkir svo á innbyggðum útlitslíkindum Franco og Wiseau. Með hlutverk Sestero fer yngri bróðir James Franco, Dave Franco, og náin tengsl leikaranna kunna að skila sér í því hversu tilgerðarlaust og raunsæislega átakasaga Sestero og Wiseau skilar sér á hvíta tjaldið. Sjálfur hefur James Franco verið afkastamikið ólíkindatól í Hollywood og m.a. leikstýrt nokkrum undarlegum myndum, en er þar helst að nefna verkin sem byggja á skáldverkum bæði Williams Faulkner og Cormacs McCarthy, en þessum myndum svipar til The Room að mörgu leyti, þótt ekki sé vondleiki þeirra jafn dásamlegur. Leikarahlutverkið virðist oftast leika við honum og hefur hann sýnt afburða frammistöðu í fjölda kvikmynda, sem er hver annarri ólík, en einnig hefur hann tekið að sér auðgleymanleg stærri sem smærri hlutverk. Í þetta sinn tekst James Franco frábærlega vel upp beggja megin kvikmyndatökuvélinnar.

Myndin leggur áherslu á andlega hvetjandi þætti þess að trúa á sjálfan sig og fylgja draumum sínum eftir. Í meðförum Franco birtist Wiseau sem afkáralegur utangarðsmaður sem þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir nær ekki að vekja athygli á sjálfum sér – allavega ekki á þeim forsendum sem hann óskar – en finnur lángþráða vináttu í Sestero, auk sameiginlegra markmiða, en Sestero heillast af ákefð hans og óttaleysi. Báðir eru þeir taldir álíka vonlausir af leiklistarkennurum sínum, en fundum þeirra ber einmitt fyrst saman í kvöldnámi í leiklist. Þrátt fyrir mótlætið og hverfandi líkur á velgengni innan kvikmyndaiðnaðarins flytja þeir saman til Los Angeles til að hefja þar vegferð sína í átt að frægð, frama og viðurkenningu. En vitaskuld fer það ekki á þann veg; Sestero fær lítil hlutverk en þó helst eingöngu áheyrnarprufur en Wiseau er nánast sniðgenginn með öllu. Á barmi örvæntingar, en bersýnilega ekki gjaldþrots, ákveður Wiseau að fjármagna eigin kvikmynd, og fá Sestero til liðs við sig. Þessi ákvörðun átti eftir að breyta lífi þeirra beggja til frambúðar á óvæntan hátt.

Þrátt fyrir hæfileikaleysi og vægast sagt undarlega háttsemi Wiseau á alla vegu er um mjög symptískan karakter að ræða í The Disaster Artist. Uppruni hans er óræður og peningavöld hans eru óskiljanleg en umfram allt vill hann vera týpískur Ameríkani með göfug og háleit markmið. Það sem átti að verða dramatíska meistaraverk hans og mesti leiksigur síðan James Dean var og hét varð að athlægi strax á frumsýningu. Mótlætinu snéri hann engu að síður í sigurgöngu og hefur allar götur síðan lýst því yfir að hann hafi meðvitað verið að vinna að grínmynd sem stenst þó engan veginn samkvæmt frásögn Sestero – eða skoðun á myndinni sjálfri.

Um fjórtán ár eru síðan The Room kom út og hún nýtur enn gífurlegra vinsælda. En hvernig er hægt að staðsetja hana og ljá henni merkingu nú þegar sagan á bakvið hana – og myndin sjálf – er orðin að Hollywood mynd? Er hún ennþá költmynd þegar tilvist hennar og aðdragandi hefur náð til meginstraumsins? Forkröfurnar fyrir áhorfi á The Disaster Artist eru ekki endilega þær að hafa séð The Room, hennar er hægt að njóta hvort heldur sem er, bæði beint og óbeint í gegnum endursköpun James Franco. Þá stendur hún auk þess traust á eigin fótum – sem óviðjafnanleg og djúplistfræðileg ráðgáta um hvernig hægt var að gera mynd sem þessa. En vafalaust hafa þeir sem ekki hafa séð mynd Wiseau einnig fyllst forvitni, og ásókn í The Room eykst enn frekar. Þannig hefur hún sannað sig í tvígang á hreint alveg undraverðan hátt. En sjálfsagt sá Tommy Wiseau þetta allt saman fyrir.[/cs_text]

Um höfundinn
Sigurður Arnar Guðmundsson

Sigurður Arnar Guðmundsson

Facebook

Sigurður er nemandi í kvikmyndafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og meðlimur Engra stjarna.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701