Bálköstur hégómans

[cs_text]

Rósa Ásgeirsdóttir fór í Bíó Paradís þar sem hún sá The Square. Hún gaf engar stjörnur.

Í upphafi The Square (2017) má sjá fjölmenni ganga um götur Stokkhólms. Fólkið virðist streyma um göturnar, flest í sömu átt, flest í einsleitum fötum. Í mannhafinu miðju stendur sjálfboðaliði fyrir mannúðarsamtök einsamall og kyrr, líkt og öldubrjótur, og spyr vegfarendur hvort þeir vilji bjarga mannslífum. Trekk í trekk er viðkomandi neitað kurteisislega og ósjaldan er hann ekki virtur viðlits. Í fjarska heyrist öskur og nokkrir líta við en enginn hægir verulega á sér. Aftur heyrist öskur og kallað er eftir hjálp og nú líta fleiri við en enginn staldrar við nema í augnablik. Enn aftur heyrist ópið og nú stoppa nánast allir og reyna að átta sig á hvað sé í gangi. Kona kemur hlaupandi, örvingluð, og öskrar eftir hjálp. Það er að koma maður sem ætlar að drepa hana, hrópar hún. Hún hleypur í átt að Christian (Claes Bang), aðalpersónu myndarinnar, og hann getur ekki annað en brugðist við. Fyrst lítur hann þó á næsta mann og með nær mállausum samskiptum biðlar hann til hans um hjálp. Saman slá þessir tveir karlmenn upp eins konar skjaldborg um dauðhrædda konuna og varna árásarmanninum um frekara aðgengi að henni. Þegar hrottinn hverfur á brott er Christian svo upp með sér að hann tekur ekki eftir því að konan lét sig einnig hverfa, og eftir að hafa kvatt hinn nýja vin tekur hann eftir því að búið er að stela öllu lauslegu af honum, þar á meðal síma og veski. Atburðurinn hafði verið sviðsettur og „riddaraskapur“ hans virkjaður í þeim eina tilgangi að hafa af honum fé. Mörg mikilvægustu þemu myndarinnar birtast í þessu upphafsatriði. Fjöldinn sem virðir mannúðarsjálfboðann að vettugi kallast á við þann mikla meirihluta vegfarenda sem er ekki reiðubúinn til að ljá ofsóttu konunni hjálparhönd. Grimmd er hljóðlega samþykkt af fjöldanum. Og sá sem þó er tilbúinn til að gera eitthvað reynist hafður að fífli, eftir að ljóst má vera að engum þykir meira til framtaks hans koma en honum sjálfum.

The Square (2017) eftir hinn sænska Ruben Östlund vann Gullpálmann fyrr á árinu, aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Östlund vakti mikla athygli með sinni síðustu kvikmynd, Turist (2014), sem bæði var tilnefnd til ýmissa verðlauna og hlaut önnur, m.a. Golden Globe og BAFTA verðlaun fyrir bestu erlendu mynd. Áðurnefnd aðalpersóna nýju myndarinnar, Christian, er hávaxinn, ljós í yfirlitum og ávallt vel til fara og myndi teljast „skandinavískur“ í útliti. Nafn hans kemur úr kristinni trú sem er ráðandi trúin í Svíþjóð. Hann er með öðrum orðum táknmynd þess sem valdið hefur í sænsku samfélagi. Hann hakar í alla forréttindakassana; vel efnaður, myndarlegur, gagnkynhneigður, hvítur, efri-/millistéttar karlmaður. Þó þessi lýsing sé kannski ekki óalgeng fyrir aðalpersónur í meginstraumsmyndum er ljóst að í The Square er slík persóna valin til umfjöllunar í þeim tilgangi að skoða stöðu hennar sérstaklega.

Christian starfar sem sýningarstjóri á Konunglega listasafninu í Stokkhólmi og er þar með afar háttsettur í norrænum – og alþjóðlegum – listaheimi og allt yfirbragð hans gefur til kynna að hann sé með hlutina á hreinu. Áhorfendur eru reyndar aldrei alveg sammála honum með það, en í blábyrjun sjáum við hann hálfpartinn klúðra sjónvarpsviðtali við sjónvarpskonuna Anne (Elisabeth Moss). Viðtalið snýst um inntak nútímalistviðburðar sem Christian hafði skipulagt fyrir hönd safnsins, en andspænis beinum spurningum um merkingu listagjörningsins verður sýningastjóranum svarafátt. Samskiptin við fjölmiðlakonuna eru í vissum skilningi upptaktur að umfjöllun myndarinnar um nútímalist. Röð atburða vindur svo fram er kollvarpa lífi Christians, en allir eiga atburðirnir það sameiginlegt, líkt og atriðið sem rætt er hér að ofan um konuna sem (ekki) varð fyrir árás, að tengjast samfélagslegum og siðferðilegum málefnum á einhvern hátt, sem og samfélagslærðri hegðun. Kvikmyndin er raunar fyrst og fremst háðsádeila á heim listar og sköpunar í fyrsta heims ríki sem rembist við að vera í fremstu röð og komast áfram í huglægum og akademískum málum en gleymir í leiðinni umhyggju og mannlegu eðli.

Kjarnast það öðru fremur í nýjasta verkefni Christians sem er að koma fyrir nýkeyptu listaverki sem ber heitið The Square. Þar er um að ræða verk sem skilgreinir afmarkaðan reit á torginu fyrir utan listasafnið sem friðlendi mannúðar. Innan marka reitsins er gert skilyrði um fullkomið jafnrétti og er fólk beðið um að sýna náungakærleik, og birtist þar klassísk þrá listamanna í gegnum tíðina um að verk þeirra hafi áhrif á gang lífsins. Fátt í myndinni gefur þó til kynna að ímyndað rými sem þetta sé flytjanlegt úr öryggi og einangrun listasafnsins út í raunveruleikann.

The Square vísar ítrekað í fyrirbæri sem virðist vera á allra vörum á síðustu árum. Pólitísk rétthugsun (e. political correctness) er ýmist álitið eitur eða meðal nútímasamfélags, eftir því hvern er spurt, og getur sú deila skapað svo mikla ringulreið að meira er rætt um fyrirbærið sjálft en þá galla samfélagsins sem því er ætlað að bæta úr. The Square túlkar þessa hringiðu samfélagsins með tökustíl þar sem nokkur skot snúast heilu hringina þannig að áhorfandi veit ekki lengur hvernig hann snýr og skapar jafnvel ógleðistilfinningu.

Ýmsar senur fjalla um pólitíska rétthugsun með beinum hætti og má þar nefna blaðamannafundinn sem stjórn listasafnsins boðar til í kjölfar þess að kynningarmyndband á vegum safnsins er harðlega gagnrýnt. Í myndbandinu, sem er ætlað að kynna áðurnefnt titilverk myndarinnar, The Square, gefur að líta litla ljóshærða stúlku í betlaraklæðum stíga inn í reitinn. Skeiðklukka fer af stað og telur niður frá tíu á meðan áhorfendur eru spurðir hvort þeir ætli að bregðast við. Að lokum er litla stúlkan sprengd í loft upp. Myndbandið er hvoru tveggja gagnrýnt fyrir ofbeldi og grófleika sem og að notast við sæta hvíta og ljóshærða sænska stelpu til að leika betlarabarnið. Betlarar eru fjölmennir á götum Stokkhólms, nokkuð sem sýnt er í framrás myndarinnar, en nær án undantekninga eru þeir innflytjendur eða flóttamenn og dekkri á þelið en hinn „venjulegi“ Svíi. Í allri umræðunni sem blossar upp útaf myndbandinu eru betlararnir sjálfir hins vegar og vandamálin sem þeir holdklæða hundsuð. Ekki er nóg með að ekkert sé gert til að bæta stöðu þeirra, þeir koma umræðunni varla við. Á blaðamannafundinum lýsir Christian yfir ábyrgð á myndbandinu og biðst afsökunar á birtingu þess. Viðbrögð viðstaddra eru ýmist reiði yfir innihaldi myndbandsins eða yfir afsökunarbeiðninni. Einn blaðamannanna segir að með því að draga auglýsinguna til baka sé verið að hefta tjáningarfrelsi listamanna. Safnið er gagnrýnt fyrir að birta myndbandið en einnig gagnrýnt fyrir að draga það til baka.

Mannlegt eðli er í brennidepli í öðru listaverki sem Christian ber ábyrgð á og birtist þar í senn dýrsleg hegðun mannsins og tilhneiging hans til að láta eftir sjálfsbjargarhvöt sinni. Verkið er sköpun listamannsins Olegs en hluta þess vindur fram í formi gjörnings. Þar læst Oleg vera mannapi og „verkið“ er flutt í veislu sem haldin er af safninu þar sem hann gengur um ógnandi og ræðst á nokkra gestina. Þeim er tilkynnt í byrjun verksins að betra sé að bregðast ekki við ófriðlegum tilburðum listamannsins og láta lítið fyrir sér fara. Þá muni dýrið, hafandi lokið sér af, færa sig yfir á næstu bráð. Þetta gengur nokkurn veginn eftir og meirihlutinn í veislunni situr kyrr og hljóðlaus. Nokkrir láta þó ekki yfir sig ganga og rjúka út en gjörningum er þó leyft að halda áfram. Þegar „mannapinn“ ræðst að lokum á konu er þó sem nú sé of langt gengið. Hún biður hún um hjálp, fyrst rólega en svo af meiri krafti en enginn kemur henni til aðstoðar. Konan reynir að ganga í burtu en er þá haldið niðri af Oleg, sem leggst ofan á hana og byrjar að afklæða. Atriðið er það óþægilegasta og lengsta í myndinni fyrir áhorfendur sem horfa á sal af aðgerðarlausu fólki fylgjast með konu í neyð. Áhorfendur í bíósal verða að veislugestum og veislugestir verða að áhorfendum og enginn gerir neitt. Það er að segja, enginn gerir neitt fyrr en það er löngu orðið of seint, og þá hefur þessi virðulegi hópur listneytenda umbreyst í trylltan múg, sem ræðst að listamanninum líkt og rífa eigi hann á hol. Fyrst einn, svo tveir og loks allir. Allir eru orðnir að öpum.[/cs_text]

Um höfundinn
Rósa Ásgeirsdóttir

Rósa Ásgeirsdóttir

Rósa Ásgeirsdóttir er nemandi í kvikmyndafræðum við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000646

118000647

118000648

118000649

118000650

118000651

118000652

118000653

118000654

118000655

118000656

118000657

118000658

118000659

118000660

118000661

118000662

118000663

118000664

118000665

118000666

118000667

118000668

118000669

118000670

118000671

118000672

118000673

118000674

118000675

118000676

118000677

118000678

118000679

118000680

118000681

118000682

118000683

118000684

118000685

118000686

118000687

118000688

118000689

118000690

118000691

118000692

118000693

118000694

118000695

118000696

118000697

118000698

118000699

118000700

118000701

118000702

118000703

118000704

118000705

118000706

118000707

118000708

118000709

118000710

118000711

118000712

118000713

118000714

118000715

118000716

118000717

118000718

118000719

118000720

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000710

128000711

128000712

128000713

128000714

128000715

128000716

128000717

128000718

128000719

128000720

128000721

128000722

128000723

128000724

128000725

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

128000731

128000732

128000733

128000734

128000735

128000736

128000737

128000738

128000739

128000740

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

138000426

138000427

138000428

138000429

138000430

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

228000051

228000052

228000053

228000054

228000055

228000056

228000057

228000058

228000059

228000060

228000061

228000062

228000063

228000064

228000065

228000066

228000067

228000068

228000069

228000070

228000071

228000072

228000073

228000074

228000075

228000076

228000077

228000078

228000079

228000080

228000081

228000082

228000083

228000084

228000085

238000211

238000212

238000213

238000214

238000215

238000216

238000217

238000218

238000219

238000220

238000221

238000222

238000223

238000224

238000225

238000226

238000227

238000228

238000229

238000230

news-1701