[cs_text]Hver er staða náttúrunnar í Biblíunni og kristinni hefð? Hvernig túlka guðfræðingar í samtímanum þá hugmynd að maðurinn sé kóróna sköpunarverksins? Hvaða leiðsögn geta guðfræðingar veitt til að takast á við afleiðingar loftslagsbreytinga með réttlátum og ábyrgum hætti? Og hvað merkir það að vinna að réttlæti í loftslagsmálum í guðfræðilegu samhengi?

Þetta eru meðal þeirra spurninga sem tekist er á við í bókinni Guð og gróðurhúsaáhrif. Kristin siðfræði á tímum loftslagsbreytinga sem Háskólaútgáfan hefur gefið út. Höfundur bókarinnar er Sólveig Anna Bóasdóttir, prófessor í guðfræðilegri siðfræði, við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.

Nú fer fram kröftug umræða innan kristinnar guðfræði eins og í öðrum fræðigreinum um umhverfið, náttúruna og hnattræna hlýnun, enda hafa guðfræðingar löngum tekið alvarlega þá gagnrýni að kristni sé einstaklega mannhverf. Í bókinni Guð og gróðurhúsaáhrif er tekist á við spurningar sem lúta að kristnum áhrifum og hugmyndum um náttúruna í fortíð og nútíð.

Hugrás hitti Sólveigu Önnu (SAB) og bar undir hana nokkrar spurningar um umfjöllunarefni bókarinnar.

Hverjar eru stóru línurnar í þróun afstöðu kristinnar kirkju til umhverfismála?

SAB: Aðkoma kristins fólks að umhverfismálum á sér langa sögu og tengist friðarmálum en það mun hafa verið upp úr 1960 sem ýmis kristin trúarsamtök og söfnuðir hófu að beita sér gegn notkun kjarnorkuvopna, mengun af ýmsu tagi, eyðingu skóglendis, virkjun fallvatna, útrýmingu dýrategunda og fjölmörgu fleiru. Hæst ber starf Alkirkjuráðsins, sem eru stærstu samkirkjulegu samtök heims með 345 réttrúnaðarkirkjur og mótmælendakirkjur í 110 löndum. Þótt Rómversk-kaþólska kirkjan sé ekki í Alkirkjuráðinu starfar hún náið með því í ýmsum málaflokkum, þ.á.m. umhverfismálum. Tengsl réttlætis, friðar og friðhelgi náttúrunnar hafa alltaf verið áberandi í starfi Alkirkjuráðsins. Alkirkjuráðið hélt ráðstefnu um loftslagsbreytingar hér á landi 11. – 12. október s.l. með þátttöku fjölmargra kirkna í heiminum, þar á meðal þeirrar íslensku og tóku fulltrúar ráðstefnunnar síðan virkan þátt í Artic Circle ráðstefnunni.

Sólveig Anna Bóasdóttir prófessor.
Kristnir trúarleiðtogar, bæði lútherskir og kaþólskir, hafa hvatt til róttækra aðgerða í loftslagsmálum. Er einhver munur á nálgun þeirra á viðfangsefnið?

SAB: Ég myndi ekki segja að neinn áberandi munur sé í áherslum þessara kirkjudeilda, eiginlega þvert á móti. Framsetning og umræða um vandamálið ber vissulega svip af orðfæri viðkomandi hefðar og þar má skynja vissan blæbrigðamun. En í öllum meginatriðum er málefnið rætt á sams konar nótum; áhersla lögð á jörðina sem sköpunarverk Guðs sem mönnum beri skylda til að gæta og forða frá eyðingu. Syndugt framferði mannsins, s.s. hroki, græðgi og ofneysla, eru meginorsakir loftslagsbreytinga af mannavöldum. Mannkyn hefur gleymt uppruna sínum, gleymt að það er af sama meiði og jörðin. Maður og jörð eru jafningjar, mannkyn allt þarf að skilja stöðu sína innan sköpunarverksins. Maðurinn er ekki drottnari og yfirboðari jarðarinnar heldur ráðsmaður og vökull ármaður.

Hefur sama þróun orðið hjá stofnunum annarra trúarbragða?

SAB: Trúarsamfélög um allan heim nálgast loftslagsbreytingar út frá eigin hefð, tungumáli, sögu og samfélagi. Vestræn eingyðistrúarbrögð, gyðingdómur, kristni og íslam, tjá sig gjarnan með orðfæri sköpunarguðfræði og leggja áherslu á að Guð hafi skapað jörðina og hún sé góð, óháð nytjum manna af henni. Austræn trúarbrögð, eins og t.d. búddismi, hindúismi og taóismi, eru ólíklegri til að nota þetta orðfæri, en eiga það sameiginlegt að líta svo á að allt í heiminum sé nátengt og verði einhver fyrir hluti jarðarinnar fyrir skaða þá hafi það neikvæð áhrif á allt í heiminum. Séð frá þessum sjónarhóli beita þau sér gegn loftslagsbreytingum með ýmsum hætti og benda á vanvirðingu jarðarinnar af völdum loftslagsbreytinga af mannavöldum.

Guðfræðistofnun Háskóla Íslands hélt nýverið ráðstefnu um aðsteðjandi umhverfisógn og þörfina á nýrri siðbót. Hver er hugmyndin um þessa nýju siðbót?

SAB: Hin klassíska, lútherska hugmynd um siðbót er að kirkjan þurfi alltaf að vera opin fyrir endurbótum. Þetta þýðir bara að við þurfum að vera gagnrýnin, frjó og skapandi, tilbúin að taka til verka þar sem þess gerist þörf.

Á þessu málþingi var einnig fjallað um málið út frá raunvísindum. Er ástæða fyrir fræðafólk á sviði hugvísinda að vinna í meira mæli með raunvísindafólki á vettvangi loftslagsumræðu?

SAB: Yfirleitt er allt samstarf þvert á fræðigreinar gefandi, af þeirri einföldu ástæðu að það stækkar hugmyndaheiminn og bendir á nýjar leiðir. Guðfræðin eins og hún er ástunduð nú um stundir í okkar heimshluta, er almennt opin fyrir samtali og samstarfi við aðrar greinar.

Hefur kristin siðfræði mikilvægu hlutverki að gegna við að leysa þá loftslagsvá sem við stöndum frammi fyrir?

SAB: Loftslagsbreytingar eru heiti yfir mjög flókið fyrirbæri sem á sér enga eina, varanlega lausn. Við getum velt því fyrir okkur út frá raunvísindalegu, tæknilegu, umhverfislegu, pólitísku og efnahagslegu sjónarhorni, og sjálfsagt fleirum. Kristin siðfræði er gagnrýnið fræðasvið sem tekur tillit til allra þessara sjónarmiða og virðir þau en bætir við siðfræðilegum og trúarlegum þáttum eða víddum. Þau sjónarmið eru síst ómerkilegi en þau sem á undan voru nefnd. Milljónir og aftur milljónir  manna og kvenna líta á sig sem trúað fólk í heiminum í dag og fyrir þau er mikilvægt að setja þetta vandamál í trúarlegt samhengi. Kristin siðfræði hefur því mikilvægu hlutverki að gegna en er að sjálfsögðu ekki með lausnina á vandamálinu, ekki fremur en nokkurt annað svið. Öflugt og heiðarlegt samtal og samstarf milli vísinda og kristinnar siðfræði er af hinu góða.[/cs_text]

Um höfundinn
Guðmundur Hörður Guðmundsson

Guðmundur Hörður Guðmundsson

Guðmundur Hörður Guðmundsson er kynningar- og vefstjóri Hugvísindasviðs HÍ. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000491

118000492

118000493

118000494

118000495

118000496

118000497

118000498

118000499

118000500

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

128000546

128000547

128000548

128000549

128000550

128000551

128000552

128000553

128000554

128000555

128000556

128000557

128000558

128000559

128000560

128000561

128000562

128000563

128000564

128000565

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

158000326

158000327

158000328

158000329

158000330

158000331

158000332

158000333

158000334

158000335

158000336

158000337

158000338

158000339

158000340

158000341

158000342

158000343

158000344

158000345

178000746

178000747

178000748

178000749

178000750

178000751

178000752

178000753

178000754

178000755

178000756

178000757

178000758

178000759

178000760

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000206

208000207

208000208

208000209

208000210

208000211

208000212

208000213

208000215

208000216

208000218

208000219

208000220

208000221

208000222

208000223

208000224

208000225

208000226

208000227

208000228

208000229

208000230

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000237

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000255

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

news-1701