Íslensk kvikmyndaklassík – viðtal við Björn Þór Vilhjálmsson

[cs_text]„Íslensk kvikmyndaklassík“ er fyrirlestrarröð á vegum kvikmyndafræði Háskóla Íslands. Kjartan Már Ómarsson ræðir við Björn Þór Vilhjálmsson, lektor í almennri bókmenntafræði og kvikmyndafræði, um fyrirlestraröðina og hvað felist í orðunum íslensk kvikmyndaklassík.

Hvað er fyrirlestraröðin „Íslensk kvikmyndaklassík“ og hvað liggur henni að baki?

„Íslensk kvikmyndaklassík“ er fyrirlestrarröð á vegum kvikmyndafræði Háskóla Íslands þar sem mikilvægum brautryðjendum íslenskrar kvikmyndagerðar, og athyglisverðum samtímaleikstjórum, er boðið í heimsókn til að ræða um tilurð, framleiðslu og viðtökur tiltekinnar myndar eftir sig. Um er að ræða hádegisfyrirlestra sem haldnir verða einu sinni í mánuði og eru öllum opnir. Þá má gera ráð fyrir að sjálft erindið sé kannski rúmur hálftími upp í þrjú korter en að því búnu verður opnað fyrir umræður. Það er Ágúst Guðmundsson, eitt mikilvægasta kvikmyndaskáld þjóðarinnar, sem ríður á vaðið núna á fimmtudaginn (21. september) og mun hann ræða um kvikmynd sína frá 1980, Land og syni. Í kjölfarið er svo von á Guðnýju Halldórsdóttur, sem mun ræða um kvikmyndaaðlaganir sínar á skáldverkum föður síns, Kristnihald undir Jökli (1989) og Ungfrúin góða og húsið (1999). Þriðji gestur kvikmyndafræðinnar, ef vonir standast, verður svo Nanna Kristín Magnúsdóttir, en hún hefur vakið mikla athygli fyrir stuttmynd sína Ungar, sem frumsýnd var í fyrra og sópað hefur til sín hverjum verðlaunum á fætur öðrum, bæði hérlendis og erlendis. Næstkomandi vor koma svo Kristín Jóhannesdóttir og Friðrik Þór Friðriksson í heimsókn, og fleiri.

Það er svo ýmislegt sem liggur fyrirlestraröðinni til grundvallar. Hugmyndin er í senn sú að fyrirlestrarnir verði gagnlegir áhugafólki um íslenska kvikmyndasögu og að skref verði stigið til að brúa bilið sem hefur e.t.v. myndast milli akademíska heimsins og kvikmyndagerðar á Íslandi eins og henni vindur (eða vatt) fram í „rauntíma“. Með þessum hætti myndi mikilvæg þekkingarmiðlun eiga sér stað frá starfandi kvikmyndagerðarfólki yfir til háskólasamfélagsins. Þótt yfirskriftin sé „kvikmyndaklassík“ – sem er sannarlega réttnefni þar sem gestir kvikmyndafræðinnar þetta árið eiga nær allir það sameiginlegt að hafa gert verk sem klassísk eru orðin í íslenskri kvikmyndasögu, og sumir fleiri en eitt – er staðreyndin sú að þeir eru líka allir starfandi og í fullu fjöri, með spennandi verkefni í gangi og eiga vafalaust enn eftir að leggja heilmikið til okkar sameiginlegu kvikmyndamenningar.

Í öðru lagi hefur kvikmyndafræðin undan farin ár sinnt íslenskri kvikmyndagerð og kvikmyndasögu í auknum mæli, bæði í formi námskeiða og sýningarhalds. Fyrir nokkrum árum var námskeið haldið um Friðrik Þór Friðriksson, höfundarverk hans og stöðu í íslenskri kvikmyndasögu. Farið var kerfisbundið yfir verk hans og þau sett í samhengi, innlent sem og erlent. Þá var námskeið um íslenska kvikmyndahöfunda kennt fyrir skemmstu sem gekk afar vel. Það var Gunnar Tómas Kristófersson, doktorsnemi, sem kenndi það. Í námskeiðinu tók hann fyrir Ágúst Guðmundsson, Dag Kára og Baltasar Kormák og skoðaði út frá höfundarhugtakinu, eins og það hefur þróast og mótast frá því að hugmyndasmiðir frönsku nýbylgjunnar komu því upphaflega á kortið. Svo ekki sé minnst á námskeiðið sem þú kenndir í fyrra um Baltasar Kormák [vísað er til námskeiðsins „Frá 101 til Hollywood“ sem Kjartan Már kenndi]. Fleiri mætti tína til en ekki skiptir minna máli að við Háskóla Íslands eru um þessar mundir upprennandi fræðimenn á sviðinu að skrifa doktorsritgerðir um íslenska kvikmyndamenningu. Að vissu leyti byggir þetta allt á starfi sem kvikmyndafræðingurinn Björn Ægir Norðfjörð og Guðni Elísson, prófessor í almennri bókmenntafræði, hafa unnið á fyrri árum, bæði við að koma kvikmyndafræðinni á laggirnar við HÍ og í margþættri fræðastarfsemi og útgáfum.

Þannig að lagt er upp með að fyrirlestraröðin nái yfir allt kennsluárið. En verður framhald á?

Svo sannarlega. Stefnan hjá okkur í kvikmyndafræðinni er að skipuleggja fyrirlestraraðir á borð við þessa með reglubundnum hætti, jafnvel á hverju ári. En það yrði þá gert með varíasjónum. Næst væri til dæmis afar skemmtilegt að vera með fyrirlestraröð á borð við „Íslensku nýbylgjuna“, fá yngri leikstjóra til að koma í heimsókn og ræða um stöðuna í íslenskri kvikmyndagerð um þessar mundir (eins og Nanna er reyndar dæmi um í þessari fyrstu röð sem nú er verið að gangsetja). Velta upp spurningum um það hvernig kvikmyndalandslagið þessa stundina blasir við þeim sem ólust upp við verk frumherja á borð við Ágúst, Guðnýju, Kristínu og Friðrik. Það eru gríðarlega áhugaverðir hlutir að gerast í íslenskri kvikmyndagerð um þessar mundir. Ný kynslóð leikstjóra hefur verið að hasla sér völl á umliðnum árum. Hin nýfrumsýnda kvikmynd Hafsteins Gunnars, Undir trénu, er framúrskarandi dæmi um það. En einnig mætti nefna grasrótarleikstjóra á borð við Sigurð Anton Friðþjófsson (Webcam, 2015; Snjór og Salóme, 2017). Þá gæti líka verið fróðlegt að fá aðra en leikstjóra í heimsókn, ræða til dæmis við tökufólk, propsara, klippara o.s.frv. Eitt árið mætti taka fyrir tiltekna mynd og fá ólíkt fólk sem kom að gerð sömu myndar til að ræða hana frá ólíkum sjónarhornum.

Hvers vegna var ákveðið að hefja fyrirlestraröðina með Ágústi Guðmundssyni og mynd hans, Landi og sonum?

Það var eiginlega ekki annað hægt. Við erum hér að tala um eina helstu lykilmynd íslenskrar kvikmyndasögu, frábært verk sem hefur elst afskaplega vel, og það þrátt fyrir þær gríðarlega erfiðu aðstæður sem kvikmyndagerðarfólk átti við að etja á fyrstu árum „kvikmyndavorsins“ svokallaða, og jafnvel gott betur lengur en það. Myndin tekur á umfjöllunarefni sem var eitt hið miðlægasta í íslenskum bókmenntum og svo kvikmyndum nær alla síðustu öld; umskiptunum sem áttu sér stað þegar búferlaflutningarnir úr sveit í borg breyttu ásýnd þjóðarinnar og lifnaðarháttum með róttækum og óafturkræfum hætti. Rof átti sér stað sem þurfti að vinna úr, og Land og synir er eitt af meistaraverkunum sem það gera. Þar að auki er leit hérlendis að leikstjórum sem hafa átt sér jafn merkan feril og Ágúst Guðmundsson. Óhræddur lagði hann til atlögu við sagnaarfinn með Útlaganum (1981), en hún er enn þann dag í dag eina kvikmyndin sem með beinum hætti lagar Íslendingasögu að hvíta tjaldinu. Eins og Bergljót Soffía Kristjánsdóttir, prófessor í íslensku, hefur bent á, hefur Útlaginn haft mótandi áhrif á skilning okkar í dag á sögunni um Gísla Súrsson. Vart þarf að minnast á stöðu Með allt á hreinu (1982) í íslenskri menningu, og áfram hélt Ágúst að senda frá sér merkar kvikmyndir, Dansinn (1998) og Mávahlátur (2001) eru aðeins tvö dæmi.

Að lokum, hugmyndin um íslenska kvikmyndaklassík kallar fram vangaveltur um kvikmyndalega arfleifð þjóðarinnar, og aðgengi okkar að henni í dag, ekki satt?

Jú, vissulega. Kvikmyndahefð þjóðarinnar er að sumu leyti köflótt hvað samfellu varðar. Fram eftir öldinni einkennist kvikmyndasagan af tilteknum tímabilum þar sem virkni einstakra aðila rís hátt, en þess á milli er kannski fátt um tíðindi. Þetta breytist auðvitað með stofnun Kvikmyndasjóðs og áðurnefndu „kvikmyndavori“. Í dag er vandamálið hins vegar það hversu miklum erfiðsmunum það er bundið að nálgast stóran hluta kvikmyndarfsins, og þá er ég ekki einvörðungu að vísa til kvikmyndanna sem gerðar voru áður en árstíðabreytingin á sér stað. Íslenskar kvikmyndir níunda áratugarins komu mikið til út á myndbandsspólum á sínum tíma, og þó sú tækni hafi auðvitað verið herfilega vond þá er það eiginlega verra að hafa ekkert aðgengi að þessum myndum, en sú er raunin í dag. Fjöldi lykilmynda er óaðgengilegur; þessar myndir hafa aldrei verið gefnar út á DVD eða á blágeisla. Streymisþjónustur stoppa auðvitað ekki upp í eyðuna, og því grípur maður í tómt hvað eftir annað þegar maður leitar fanga í kvikmyndalegri fortíð okkar, jafnvel þegar um tiltölulega nýlegar myndir er að ræða. Úr þessu þarf auðvitað að bæta.

Ágúst Guðmundsson heldur erindi um Land og syni nk. fimmtudag, þann 21. september, milli 12–13 í Veröld, stofu 108.[/cs_text]

Um höfundinn
Kjartan Már Ómarsson

Kjartan Már Ómarsson

Kjartan Már Ómarsson er með MA gráðu í bókmenntafræði. Hann er stundakennari við íslensku- og menningardeild HÍ þar sem hann kennir jöfnum höndum í bókmennta- og kvikmyndafræði.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

118000781

118000782

118000783

118000784

118000785

118000786

118000787

118000788

118000789

118000790

118000791

118000792

118000793

118000794

118000795

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701