Lér konungur í öðru veldi

[cs_text][pullquote type=”right”]Lér konungur
The Old Vic.
Leikstjórn: Deborah Warner
/
Royal Shakespeare Company.
Leikstjórn: Gregory Daran
[/pullquote]Samræður við ókunnuga eru ekki beinlínis það sem karlmenn hafa í huga þegar þeir standa við þvagskálarnar og sinna verkefni náttúrunnar í leikhúshléinu, en á þessu geta verið undantekningar; ég stóð um daginn við eina skálina í Old Vic leikhúsinu í Lundúnum, algerlega hrekklaus og annars hugar eins maður oftast er í þessum aðstæðum. Inn kom ungur maður, hálfþrítugur í hæsta lagi, og ávarpaði mig eins og ég væri gamall kunningi. „Glenda Jackson er alveg frábær, finnst þér ekki? Hvílík útgeislun og kraftur!“ Ég hélt fyrst að hann væri að tala við einhvern annan, en hann horfði beint framan í mig, brosandi glaður á meðan hann renndi niður buxnaklaufinni og hófst handa af krafti þarfar og æsku. Ég svaraði eftir örlítið hik, jú, sérstakt hvað rödd hennar væri sterk, verandi áttræð að aldri, sami árgangur og faðir minn. Ungi maðurinn lauk sér af og sagðist varla trúa því, gekk út og tók upp símann.

glenda-jackson-in-king-lear-at-the-old-vic-photos-by-manuel-harlan_hugras
Glenda Jackson í hlutverki Lés konungs í uppsetningu The Old Vic. Ljósmynd: Manuel Harlan. © The Old Vic.
Nú gæti ég fengið að sjá Lé konung tvisvar á sömu helgi.
Glenda Jackson er ein frægasta leikkona sem England hefur alið, tvenn Óskarsverðlaun og nokkrar tilnefningar til viðbótar, auk fjölda annarra verðlauna segja allt um það sem þarf. Hún lét ekki þar við sitja heldur bauð sig fram til þings fyrir Verkamannaflokkinn 1992 og sat þar fram að síðustu kosningum. Þótti hún ekki alltaf rekast vel í flokki og gagnrýndi Tony Blair oft hart. Síðan snýr hún aftur á sviðið í hlutverki Lés konungs skömmu eftir áttræðisafmælið. Þetta vakti vitanlega athygli og þegar ég las gagnrýnina í The Observer og The Guardian var mér ljóst að ég yrði að grípa tækifærið. Beint á netið og pantaði miða; kom svolítið á óvart hvað mörg sæti voru laus framarlega, en það var bara betra. En þegar ég hafði gengið frá greiðslunni og fór að skoða nánar vef leikhússins áttaði ég mig á því að ég hafði keypt miða á aðra sýningu, hjá Royal Shakespeare Company í Barbican leikhúsinu, Jackson væri í Old Vic. Það var ekki um annað að ræða en að reyna þar líka og það tókst símleiðis, sennilega fékk ég síðasta miðann og það uppi í rjáfri, en hvað um það, nú gæti ég fengið að sjá Lé konung tvisvar á sömu helgi.

Glenda Jackson stal vissulega senunni, eiginlega gat vart annað gerst
Sýningin í Old Vic var algjörlega í anda naumhyggju, ekkert á sviðinu nema hvítur dúkur og síðar risastór plastdúkur til að tákna storminn með dálitlum stuðningi hljóðs og skjávarpa, þótt regnið væri engan veginn „raunsætt“. Glenda Jackson stal vissulega senunni, eiginlega gat vart annað gerst, en það var ekki vegna fornrar frægðar eingöngu, hún náði að draga fram egóisma og tækifærismennsku konungsins, undirliggjandi húmornum líka þegar hann er að prútta við dætur sínar um hversu marga riddara hann megi hafa með sér við veisluhöld í þeirra húsum. Í skugganum af Jackson missir maður aðeins af öðrum leikurum, dæturnar vondu, Goneril og Regan (Celia Imrie og Jane Horrocks) eru dálítið lengi í gang, enda eru hlutverk þeirra kannski með þeim erfiðustu að leysa í þessu verki; Kordelía heldur bernsk, en þar er kannski fremur við leikaraval að athuga. Gagnrýnandi The Observer tætir aðra leikara í sig með litlum rökstuðningi og finnst mér hún gera það á fremur ódýran hátt. Játmundur gengur býsna langt með því að sýna á sér afturendann og fróa sér, en það er kannski frekar við leikstjórann (Deborah Warner) að sakast þar en leikarann (Simon Mayonda).

simon-manyonda-in-king-lear-at-the-old-vic-photos-by-manuel-harlan-hugras
Simon Mayonda í hlutverki Játmundar í uppsetningu The Old Vic. Ljósmynd: Manuel Harlan. © The Old Vic.

Játgeir/Tumi skinnið er kannski ekki raddsterkur, en hann fer þó alla leið þegar hann heldur eina einræðuna kviknakinn og það er ekki vegna duttlunga leikstjórans, heldur er ítrekað sagt í textanum að hann sé nakinn. Þetta er venjulega leyst á „penni“ hátt, en þarna tekst leikaranum (Harry Melling) að tjá hið algjöra umkomuleysi fígúrunnar, allsnakinn á auðu sviðinu.

king-lear-production-photos_-2016_2016_photo-by-ellie-kurttz-_c_-rsc_202320
Antony Sher í hlutverki Lés konungs og David Troughton í hlutverki jarlsins af Glouchester. Ljósmynd: Ellie Kurttz. © The Royal Shakespeare Company.
Sýningin í Barbican leikhúsinu á vegum Royal Shakespeare Company í leikstjórn Gregorys Dorans er hefðbundnari hvað sviðsetningu og búninga snertir
Sýningin í Barbican leikhúsinu á vegum Royal Shakespeare Company í leikstjórn Gregorys Dorans er hefðbundnari hvað sviðsetningu og búninga snertir og þar leikur Anthony Sher konunginn (elli)æra, vel þekktur leikari, en kannski er ekki gott að meta frammistöðu hans svo skömmu eftir að hafa séð Jackson fara með sama hlutverk; hann reynir ekkert að orga sig hásan, en er dálítið til baka, dregur kannski fremur fram elliglöpin hjá kónginum aldna, og það er kannski eitt þemað í þessu verki, hvað er gert við gamla fólkið eftir að það hefur lokið formlegu hlutverki sínu? Lér konungur lítur á það sem sjálfsagt að sér og vinum sínum sé haldið uppi af dætrunum sem hann gaf ríki sitt, en þeim þykir hann brátt heldur frekur til fjörsins og vilja bara leyfa honum eitthvað lítið. Þessi hugmynd er kannski ekki á yfirborðinu í verkinu, en skein einhvern veginn í gegn hjá gömlu mönnunum, Lé konungi og hertoganum af Glostri (David Troughton). Illmennið og svikarinn Játmundur (Paapa Essiedu) er mjög sannfærandi og þarf ekki að grípa til ofláta þar sem hann beitir röddinni á tilkomumikinn hátt og tekst að ná í svolitla samkennd með „bastarðinum“. Á hinn bóginn er Játgeir/Tumi skinnið (Oliver Johnstone) orðinn dálítið mikill vælukjói og maður á erfitt með að sjá umskiptin á honum í lokin sem sannfærandi. Dæturnar Goneril og Regan (Nia Gwynne og Kelly Williams) náðu mér ekki í þessari uppsetningu, en kannski hefði Shakespeare getað vandað sig betur við þessi hlutverk á sínum tíma. Sýningin hefur fengið ágæta dóma, ekki síst frá hinum þekkta Michael Billington í The Guardian, en stallsystir hans hjá The Observer, Susannah Clapp, er minna hrifin þótt ekki sé hún neitt fjúkandi.

rhys-ifans-in-king-lear-at-the-old-vic-photos-by-manuel-harlan-2
Rhys Ifans í hlutverki fíflsins í uppsetningu The Old Vic. Ljósmynd: Manuel Harlan. © The Old Vic.

Tvær sýningar á sama verki, séðar sömu helgi, kalla vitaskuld á samanburð og það var mjög ánægjulegt að sjá muninn á þessum sýningum. Fíflin voru reyndar bæði fremur lágstemmd, en Rhys Ifans, sem lék hann í Old Vic, beitti kannski aðeins fleiri brellum eins og að vísa til Bobs Dylans með munnhörpuspili. Mér fannst eins og ég hefði oft lesið eða séð fíflin í stærra hlutverki en í þessum sýningum. Eitt atriði er kannski einna snúnast í þessu stykki og það er hið hryllilega augnablik þegar augun eru stungin úr hertoganum af Glostri. Báðir leikstjórar reyna eitthvað frumlegt, í Old Vic tekur Regan augnkúluna og fleygir henni til áhorfenda; í seinna tilfellinu var skotið upp glerbúri utan um fórnarlambið og gerandann og blóðið spýttist á glerið í kring, aðeins verið kinka kolli til svokallaðra „slægjumynda“. Raunar tókst að vekja augljósan hroll hjá áhorfendum í bæði skiptin. Annað sem báðir leikstjórarnir nýttu sér var að opna fyrir áhorfendur þegar leikarar voru að fara með einræður; sumir leikaranna ruddu þeim ekki aðeins upp eins og eintali við eigin sál, heldur mæltu þær fremur sem ávarp til áhorfenda, þetta gekk einnig ágætlega upp.

Lér konungur Shakespeares á greinilega enn erindi og kannski meira en oft áður í því pólitíska og samfélagslega ástandi sem nú ríkir
Lér konungur Shakespeares á greinilega enn erindi og kannski meira en oft áður í því pólitíska og samfélagslega ástandi sem nú ríkir; verkið talar um misneytingu valds, geðþóttaákvarðanir og hversu stutt getur verið í grófasta ofbeldi þegar valdahagsmunir eru annars vegar. Mér finnst það einnig snúast almennt um örlög manna þegar aldurinn tekur völdin og afkvæmin eru að vandræðast með foreldrana. Ef kynslóðirnar geta ekki talað saman nema með því heimta hver frá annarri, þá er kannski lítil von til þess að þau samskipti endi með öðru en harmleik þar sem allir tapa.[/cs_text]
Um höfundinn
Gauti Kristmannsson

Gauti Kristmannsson

Gauti Kristmannsson er prófessor í þýðingafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Rannsóknasvið hans eru almenn þýðingafræði, enskar og þýskar bókmenntir, upplýsingin í Evrópu, þýðingasaga, málstefna á Íslandi og annars staðar og íslenskar samtímabókmenntir. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

118000556

118000557

118000558

118000559

118000560

118000561

118000562

118000563

118000564

118000565

118000566

118000567

118000568

118000569

118000570

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

128000621

128000622

128000623

128000624

128000625

128000626

128000627

128000628

128000629

128000630

128000631

128000632

128000633

128000634

128000635

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

208000296

208000297

208000298

208000299

208000300

208000301

208000302

208000303

208000304

208000305

208000306

208000307

208000308

208000309

208000310

news-1701