Þegar barnæskan er vígvöllur

[cs_text]
„Aldrei á ævi minni hefur mín verið gætt jafn vel og í þessu stríði. Óvinir eru óvinir og vinir eru vinir. Það er ekki um neina ömurlega samblöndun að ræða“ (64).
Anne-Catherine Riebnitzsky
Krakkaskrattar
þýð. Ísak Harðarson
JPV, 2015
Krakkaskrattar segir frá danskri fjölskyldu sem stendur frammi fyrir veikindum í fjölskyldunni. Yngsta systirin Marie liggur inni á geðdeild vegna sjálfsmorðstilraunar og systkini hennar þrjú koma saman til þess að styðja hana og glíma um leið við grimma drauga fortíðar.

Elsta systirin, Lisa, segir söguna á leið heim frá herþjónustu í Afganistan. Þar hafa hún og elsti bróðirinn Ivan gegnt störfum um hríð, á meðan yngri systirin Marie nemur píanó og yngsti bróðirinn Peter stundar áhættuíþróttir.
Það flettist ofan af fjölskyldusögunni við undirspil huggandi tónlistar sem skapar mótvægi við harðneskjulegt uppeldi þeirra:

„Þess í stað heyri ég Beethoven þruma yfir vaxandi heyrnarleysi sínu […] Útvarpið tengir mig við annað fólk. Það er líflínan mín, naflastrengurinn sem festir mig við umheiminn“ (106).

Ofbeldi, vanmáttur og vanræksla markar líf þessara fjögurra barna
Ofbeldi, vanmáttur og vanræksla markar líf þessara fjögurra barna, sem mega ekki sýna minnstu veikleikamerki út á við. Faðir þeirra stjórnar heimilinu með harðri hendi á meðan móðir þeirra stíar þeim í sundur með því að spila á tilfinningar þeirra. Með tímanum vaxa systkinin í sundur og ber hvert þeirra sinn kross sem setur blett á alla ævi þeirra.

Ivan og Lisa finna öryggi sitt í hernum, þar sem baráttan er skýr og óvinurinn augljós. Átökin eru heiðarleg. Marie sökkvir sér í tónlistina en Peter stundar lífshættulegar íþróttir sem gera hann að lokum örkumla.

Móðir þeirra arfleiðir börnin að sínum eigin fjölskylduharmleik
Móðir þeirra reynist vera hin leynda ógn í barnæskunni sem brýtur þau niður á hátt sem faðir þeirra er ófær um. Ofbeldi föðurins er beinskeytt og uppi á borðinu, svo börnin geta að lokum sameinast gegn því og notið stuðnings hvers annars. Móðirin beitir hins vegar tilfinningakúgun og sáir fræjum efa í hjarta barnanna. Tilfinningar Lisu eru í forgrunni, enda sögumaður verksins. Segir hún meðal annars frá því hvernig móðir hennar lætur hana ráða því, barnunga, hvort hún eigi að skilja við föður Lisu eður ei. Lisa óttast hvað muni gerast við skilnað og neitar, en það reynist ákvörðun sem hún sér ætíð eftir og finnst hún bera alla ábyrgð á. Sálfræðingur Marie, sem talar við Lisu til þess að skilja fjölskyldusöguna, áttar sig samstundis á hinu sjúka fjölskyldumynstri og óheilbrigðum samskiptum móðurinnar og styður því við Lisu ekki síður en systur hennar. Hann hjálpar henni að sjá hvernig móðir þeirra arfleiðir börnin að sínum eigin fjölskylduharmleik. Sem barn var hún afskaplega illa vanrækt og móðir hennar, amma barnanna, segir henni átta ára að hún væri betur komin undir grænni torfu. Seinna notar hún sömu orð til að svívirða Lisu og móðir hennar notaði til að svívirða hana. Ofbeldið er þó aldrei blátt áfram, hún skrifar þessi orð í rykið á kommóðu Lisu þegar hún hefur ekki tekið nógu vel til og setur á herðar hennar ýmiss konar ábyrgð sem barnið Lisa á ekkert með að taka á sig. Sem fullorðin kona skilur Lisa þó ofbeldi móður sinnar og ber mikla biturð til konunnar sem ól hana upp:

„Það skal enginn segja mér að mamma hafi ekki vitað hvað hún var að gera. Hún hefur ekki sjálfkrafa réttinn sín megin. Það að hún var þunglynd og sjúk leysir hana ekki undan ábyrgð á öllum þeim skaða sem hún hefur valdið. Fjögur börn. Eða tvö. Hefði það verið öðruvísi ef aðeins eitt barn hefði beðið skaða? Væri það frekar í lagi?“ (178).

Það er mamma sem er sólin – og við erum öll orðin blind af því að stara á hana
Eftir því sem líður á verkið losnar um tilfinningahnúta Lisu og leiðir systkinanna liggja saman á ný. Að lokum enda þau öll undir sama þaki, berskjölduð gagnvart tilfinningum sínum og hvort öðru. Þau leggja niður vopnin og ná saman í einlægni. Verkið endar með uppgjöri þeirra; fortíðin er jafn sár, móðir þeirra er þeim enn jafn ógnandi en hún getur ekki lengur stíað þeim í sundur. Sameinuð á ný styðja systkinin hvert annað í átt að tilveru sem einkennist af hlýju og kærleik og gróandi sárum: „Það er mamma sem er sólin – og við erum öll orðin blind af því að stara á hana […] hvert á sinn hátt“ (367).

Krakkaskrattar er verk mikillar sorgar og djúprar einsemdar, drifin áfram af neista vonar. Umgjörð sögunnar sjálfrar, frásögn Lisu í flugvélinni og tilfinningar hennar til sessunautar síns, nær aldrei sömu hæðum og fjölskyldufrásögnin sjálf. Frekar er sú saga farvegur sem fortíð Lisu og systkina hennar rennur í gegnum. Sú saga nístir hins vegar lesandann inn að beini, enda aldrei auðvelt að lesa um upplifanir sem slíkar, sannar eða skáldaðar. Ofbeldi foreldra sem er slíkt að börnin upplifa sig öruggari í raunverulegu stríði getur ekki annað en hreyft við hverjum þeim sem leggur í að lesa um slíkt. Verkið vann bæði Dönsku bóksalaverðlaunin og Skáldsagnaverðlaun Politiken og er vel að þeim verðlaunum komin. Þjáning systkininna, hefnd þeirra og uppgjör er erfið saga en vel þess virði, þeim sem hugnast að leggja í það ferðalag sem verkið býður lesandanum upp á.[/cs_text]

Um höfundinn
Kolbrún Lilja Kolbeinsdóttir

Kolbrún Lilja Kolbeinsdóttir

Kolbrún Lilja Kolbeinsdóttir er með mastersgráðu í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands. Hún er sérhæfð í mesópótamískum bókmenntum og vinnur að þýðingum þeirra, ýmist af súmersku eða akkadísku.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701