Fyrsti sjónlistar-módernistinn

[cs_text]
Pétur H. Ármannsson
Gunnlaugur Halldórsson, arkitekt
Hið íslenska bókmenntafélag, 2014
Á undanförnum misserum hefur mikið farið fyrir umræðu um arkitektúr í miðbæ Reykjavíkur. Þar hafa helst hlotið umfjöllun hugmyndir manna um byggingu nýrrar skrifstofubyggingar Alþingis eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar sem og framkvæmdirnar við hið svokallaða Hafnartorg. Oft virðist sem nýklassisminn hljóti mikið lof í umræðu um byggingar en módernismi eigi stundum undir högg að sækja, þá meðal annars í orðum fyrrverandi forsætisráðherra, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, sem oft lét sig málið varða. Módernisminn skaut upp kollinum rétt fyrir miðja síðustu öld, nokkuð samhliða fúnksjónalismanum sem þó steig sín fyrstu skref örlítið fyrr. Byggingarlistasaga Íslands er stutt og þróun hröð. Vert er að gefa flestum stigum hennar gaum og er það mikið fagnaðarefni þegar hún er færð í prent.

Árið 2014 kom út bók um íslenska arkitektinn Gunnlaug Halldórsson sem lengi hefur verið talinn fyrsti móderníski íslenski sjónlistarmaðurinn. Þetta segir meðal annars arkitektinn og ritstjóri bókarinnar, Pétur H. Ármannsson, sem unnið hefur gjöfult verk við að skrá íslenskan arkitektúr af ýmsu tagi. Er þetta önnur bókin í hugsanlegri ritröð Péturs, en sú fyrsta fjallaði um starfsævi hins merka arkitekts Manfreðs Vilhjálmssonar.

Í Danmörku kynnist hann hinni alþjóðlegu stefnu fúnksjónalismans. Þennan stíl tekur hann með sér til Íslands og einkennist ferill hans af verkum í þeim stíl.
Gunnlaugur Halldórsson er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum. Hann heldur ungur út til náms við Arkitektaskóla listakademíunnar í Kaupmannahöfn. Þar útskrifast hann árið 1933 sem yngsti nemandi skólans frá upphafi. Í Danmörku kynnist hann hinni alþjóðlegu stefnu fúnksjónalismans. Þennan stíl tekur hann með sér til Íslands og einkennist ferill hans af verkum í þeim stíl. Gunnlaugur vann fyrst hjá Sigurði Guðmundssyni arkitekt og verður stíll Gunnlaugs fljótt sýnilegur í verkum Sigurðar. Fellur því nafn Gunnlaugs í skuggann af velgengni Sigurðar þegar litið er yfir söguna. En segja má að Gunnlaugur Halldórsson hafi setti svip sinn á íslenska byggingarsögu á síðustu öld.

Gunnlaugur er nefnilega fyrir margar sakir merkilegur maður. Með einskærri fágun sinni teiknaði hann byggingar af ýmsum toga. Hann var aldrei opinber starfsmaður og birtist ferill hans því í smærri verkum. Um þetta fjallar Pétur í bók sinni á skemmtilegan hátt þar sem flest smærri verka Gunnlaugs, ein- eða fjölbýli, eru sýnd í máli og myndum. Eftir hann standa líka stærri byggingar eins og samkomusalir, skólahús, bókasafn, bankabyggingar og viðbætur af ýmsum toga.

Ljósmyndin er fengin að láni af síðu forsetaembættisins.
Ljósmyndin er fengin að láni af vefnum forseti.is, sjá hér.
Móttökusalur Bessastaða. Ljósmynd fengin að láni af vef forseta.
Móttökusalur Bessastaða. Ljósmynd fengin að láni af vefnum forseti.is, sjá hér.
Í ljósi gagnrýni á módernismann er gaman að nefna tvö merk verk Gunnlaugs sem Pétur fjallar um. Þetta er annars vegar móttökusalurinn á Bessastöðum og hins vegar viðbygging Landsbankans í Kvosinni. Byggingar þessar eru mjög ólíkar en þarna fæst arkitektinn við að teikna viðbyggingar við nýklassísk hús. Gunnlaugur hlýtur verkefnið að umbreytingu Bessastaða af vinsemd við Sigurð Jónasson sem gaf ríkinu jörðina. Slíkt verk hefði annars fallið í hendur Guðjóns Samúelssonar á þeim tíma. Gunnlaugur fór mjúkum höndum um svæðið í öllum endurbótum og segir svo í bókinni:

Fyrirmynd að endurreisn Bessastaða sótti Gunnlaugur ekki aðeins í gamla steinhúsið sjálft heldur einnig þá dönsku byggingarhefð sem það var hluti af og hann kynntist á námsárunum. Hann mótaði heildarsvip hins íslenska þjóðhöfðingjaseturs í mynd dansks herragarðs og var því trúr sérstakri sögu staðarins. (71)

Ljóst er að módernískur arkitektinn vissi vel hvernig átti að taka á verkinu. Hann lét þó ekki klassíkina alveg ráða því blómaskálinn sem tengir móttökusal við Bessastaðastofu er í anda fúnksjónalismans. Þetta verk hefur hlotið mikið lof, ólíkt viðbyggingu Landsbankans sem þó gaf bankanum glæsilegan afgreiðslusal. Þar nálgast Gunnlaugur verkið með öðrum hætti enda saga og samhengi gamla Landsbankans allt annað en Bessastaðastofu. Þar leggur hann í eina sæng klassík og módernisma. Hafa ber í huga að þeirri byggingu Gunnlaugs hefur verið breytt í seinni tíð.[/cs_text]

 
[cs_text]Pétur H. Ármannson er arkitekt FÍA og starfsmaður Minjastofnunar Íslands. Hann hefur lagt mikið til söguskráningar arkitektasögu Íslands í hinu ýmsu formi. Þar á meðal í bókum, blöðum, fyrirlestrum, sögugöngum, útvarpsviðtölum sem og kennslu við arkitektadeild Listaháskóla Íslands. Eins og fram hefur komið hljóta byggingar og stefnur í arkitektúr reglulega gagnrýni og stundum virðist sem arkitektúr sé ekki metinn jafnt á við aðrar greinar innan listsköpunar. Aukin skrif um fagið hafa þó ýtt undir faglega orðræðu og varpa bækur sem þessi góðu ljósi á listrænt gildi fagsins. Má þar nefna bækur um skipulag hérlendis, frásagnir af byggingartillögum fyrir Reykjarvíkurborg og einstök önnur verkasöfn arkitekta. Um er að ræða stórt fag listar í heiminum og það er hefur mest áhrif á okkar daglega líf og hegðun. Arkitektúr mótar nefnilega allt mannlegt umhverfi. Arkitektar falla jafnan í skuggann af öðrum listamönnum og eru gjarnan ekki nefndir á nafn þegar lýsa á stefnum eða straumum lista. Pétur sparar þó ekki stóru orðin í verki sínu til þess að koma Gunnlaugi á sinn rétta stall, segir hann fyrsta sjónlistar-módernista síðustu aldar og stillir honum upp við hlið Sigurjóns Ólafssonar, Svavars Guðnasonar og Þorvalds Skúlasonar sem allir eru þjóðkunnir myndlistarmenn.

Saga Gunnlaugs og umfjöllun um verk hans er sérstaklega vel skrifuð og hefur höfundur lagt í mikla heimildavinnu við úrvinnslu verksins. Honum tekst vel að kynna fyrir hinum almenna lesanda byggingarnar, hugmyndirnar á bak við þær og samhengi hönnunarinnar.
Samantekt Péturs er vönduð bók og ítarlegt yfirlit yfir starfsferil Gunnlaugs. Þar má finna allar hans helstu byggingar í máli og myndum, sem og fullunna skrá yfir verk arkitektsins aftast í ritinu. Saga Gunnlaugs og umfjöllun um verk hans er sérstaklega vel skrifuð og hefur höfundur lagt í mikla heimildavinnu við úrvinnslu verksins. Honum tekst vel að kynna fyrir hinum almenna lesanda byggingarnar, hugmyndirnar á bak við þær og samhengi hönnunarinnar. Verkið er á þægilegu máli sem hentar bæði áhugamönnum sem og fagmönnum stéttarinnar. Lýsingarnar ríma vel við myndefnið sem vegur jafnframt vel upp á móti textanum, enda er æskilegt að verkin tali að einhverju leyti fyrir sig sjálf. Teikningar Gunnlaugs eru margar hverjar mjög fallegar og mættu þær þó njóta sín mun betur sem stærri myndfletir. Það gæti gert bókina veglegri og hentað vel fagstéttinni sem óskar gjarnan eftir því að geta lesið í teikningarnar. Slíkt yrði þó kostnaðarsamt fyrir útgáfuna og dýrara verk myndi hugsanlega fæla frá hinn almenna lesanda. Þess í stað sér gott safn smærri mynda um að skýra verkin og gera fræðilegt rit að glæsilegri sófaborðsbók. Innbundið verkið er veglegur gripur og innlegg í söguskráningu byggingarlistar á Íslandi. Það er fágað í útliti þar sem hörð kápan er klædd grófu taui þar sem búið er að þrykkja allar merkingar. Hana skortir þó á köflum ákveðinn glæsileika sem bók af þessari gerð á skilið. Uppsetningu og umbrot mætti bæta að mínu persónulega mati og finnst mér oft sem leturval sé ekki nógu fágað fyrir bók af þessari gerð.

Umfjöllun og samantekt Péturs er hins vegar ekki ábótarvant og fjallar hann faglega um efnið út frá sérþekkingu sinni. Bókin hefur að hluta yfirbragð skóla- eða kennslubókar. En hana er einnig hugsanlegt að umgangast sem uppflettirit um einstök verk eða tímabil og er afmörkun kafla og verka nokkuð hentug til slíks brúks. Ekki er endilega þörf á að lesa bókina spjaldanna á milli og gera má ráð fyrir því að fæstir eigendur hennar geri slíkt. Í ljósi umræðu um byggingar og skipulag í borginni væri áhugavert fyrir alla að kynna sér til að mynda módernistann Gunnlaug Halldórsson, hans verk og hugmyndir. Unnendur fagsins bíða spenntir eftir næstu samantekt Péturs sem líklega fer jafn vel í hillu og þessi.
[line]Grein þessi var unnin sem verkefni í námskeiðinu Gagnrýni og ritdómar við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.[/cs_text]

Um höfundinn
Kristinn Pálsson

Kristinn Pálsson

Kristinn Pálsson er með BA-gráðu í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands. Hann er nú MA-nemi í Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

118000781

118000782

118000783

118000784

118000785

118000786

118000787

118000788

118000789

118000790

118000791

118000792

118000793

118000794

118000795

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701