Grafreitir og samfélagsleg mörk

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”]
Sá hvati að koma jarðneskum leifum látinna fyrir á endanlegum og viðeigandi stað hefur sennilega fylgt mannkyninu frá öndverðu. Hvatinn getur verið margskonar, mótaður af trúarlegum siðum, hugmyndum um persónulegan eða menningarbundinn eignarrétt, samkennd, þjóðernisrómantík eða einfaldlega byggt á meðaumkun með þeim sem minna mega sín og geta ekki lengur varið sig.
Oft endurspegla þannig hverskyns grafreitir viðkvæm samfélagsleg mörk. Það kann því að hljóma þversagnakennt að fjölmörg dæmi eru um að líkamsleifar séu ýmist fluttar út fyrir þessi mörk eða inn fyrir þau.

Eitt merkilegasta dæmi um tilfærslu beina er ef til vill það þegar ákveðið var að grafa upp og flytja bein skáldsins Jónasar Hallgrímssonar frá Kaupmannahöfn til Íslands árið 1946. Óljóst er raunar hvort rétt gröf hafi verið opnuð ytra en eftir að uppgrafnar leifar höfðu verið fluttar heim fór af stað farsakennd atburðarás þar sem beinunum var á endanum stolið í skjóli nætur. Upp spruttu síðan hatrammar deilur um það hvar þau ættu að enda: á heimaslóðum skáldsins í Öxnadal eða í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, sem raunar var markmiðið í upphafi.[1] Þetta dæmi sýnir að ástæður fyrir tilfærslu beina og líkamsleifa geta vissulega verið margslungnar en í tilviki Jónasar var deilt um það í hvaða kirkjugarði bein hans áttu að enda – ekki um það hvort þau myndu enda innan eða utan vígðra marka.

Þjóðargrafreiturinn á Þingvöllum. Legsteinar Jónasar og Einars eru næst kirkjunni.
Þjóðargrafreiturinn á Þingvöllum. Legsteinar Jónasar og Einars eru næst kirkjunni.

Oft eru bein raunar grafin upp úr vígðum mörkum kirkjugarða í þágu vísinda og flutt til geymslu á safni, án mikilla athugasemda, en þegar tilfærslan á sér stað til þess að rýma fyrir nýjum samfélagslegum gildum getur flutningurinn á hinn bóginn orkað tvímælis, eins og bent hefur verið á vegna yfirstandandi uppgraftar á Víkurkirkjugarði á lóð fyrir framan Landsímahúsið í miðbæ Reykjavíkur. Verður hluti þessa elsta þekkta grafreitar Reykvíkinga tæmdur og bein flutt burtu en lóðin gerð að garði við 16 hæða hótel sem þar mun rísa.

Skjáskot úr frétt RÚV (20.12'15) um uppgröftinn við Landsímahúsið.
Skjáskot úr frétt RÚV (20.12’15) um uppgröftinn við Landsímahúsið.

Því fer hins vegar fjarri að jarðneskar leifar fólks hafi einungis verið fluttar til vegna þjóðernisrómantíkur, hugmynda um eignarrétt eða í þágu vísinda og fræða. Kvikmynd Baltasar Kormáks frá 2015, Everest, byggir á sannsögulegum atburðum um það þegar átta fjallgöngumenn fórust í hlíðum þessa hæsta fjalls veraldar í maí árið 1996. Frægast þeirra er lík af ónefndum manni sem hlaut heitið „Grænu stígvélin“ (e. Green boots) vegna grænna stígvéla sem hann var í á göngu sinni. „Grænu stígvélin“ urðu smám saman að kennileiti göngumanna á leið á fjallið.

Green_Boots_sm
Ljósmynd sem Everest göngumaður tók af “grænu stígvélunum”. Sjá hér.

Það var þó sérstaklega eftir að annar fjallgöngumaður, Breti að nafni David Sharp, lést í sama hellisskúta á fjallinu áratug síðar, í maí árið 2006. Lík hans var flutt þaðan árið eftir, þrátt fyrir mikinn fjárhagslegan kostnað og áhættu við flutninginn sem kostaði einn mann lífið. Fjallgöngumenn tóku síðan eftir því að árið 2014 var búið að fjarlægja „Grænu stígvélin“ – sumsé hið svonefnda lík. Sögusagnir segja að það hafi verið jarðsett en ekki er vitað hvar.

Fjölmörg önnnur dæmi má nefna. Meðal kristinna áttu dauðadæmdir lengi vel ekki rétt á greftrun innan kirkjugarðs, ekki frekar en börn sem dóu óskírð eða þeir sem höfðu tekið eigið líf. Um þetta giltu strangar reglur en ekki síður siðir sem fylgt var, svo dæmi sé tekið, hér á landi langt fram eftir síðustu öld. Svo virðist hins vegar sem að fólk hafi oftar en einu sinni tekið sig til og laumað jarðneskum leifum sakamanna á viðeignandi staði. Þetta gerðist til dæmis eftir að Agnes Magnúsdóttir, vinnukona á Illugastöðum, og Friðrik Sigurðsson, bóndasonur frá Katadal, voru tekin af lífi fyrir brot á landslögum, síðust Íslendinga, við Vatnsdalshóla í A-Húnavatnssýslu hinn 12. janúar 1830. Voru þau hálshöggvin, höfuð þeirra sett á stangir og andlitin látin snúa í alfaraleið eftir aftökuna sem fór fram að viðstöddum öllum bændum í sýslunni, 150 talsins, til áminningar fyrir eftirlifandi.[2]

Vatnsdalshólar. Ljósmynd: Christian Bickel.

Skömmu eftir aftökuna hurfu höfuð Agnesar og Friðriks af stöngunum en líkamar þeirra höfðu þá þegar verið dysjaðir á aftökustað. Ýmsar sögur fóru á kreik um hvarfið. Sagt var að Guðrún Runólfsdóttir, húsfreyja á Þingeyrum, hafi sent vinnumann af bænum til þess að taka höfuðin niður og jarða í kirkjugarðinum þar. Í annarri sögu segir að smaladrengur frá Sveinsstöðum hafi hræðst þessi höfuð svo mikið að hann hafi tekið þau niður og grafið á staðnum. Síðari sagan kann að vera sönn, því þessi grimmilega aftaka sat svo lengi í sveitungum nyrðra að 100 árum síðar var ákveðið – að fengnu leyfi frá biskupi – að grafa kistur Agnesar og Friðriks upp úr dysjum þeirra og jarða þau í kyrrþey í hinum vígða kirkjugarði á Tjörn á Vatnsnesi. Skammt frá dysjunum tveimur fundust svo höfuðin tvö, ásamt 10 cm löngu broti úr annarri stönginni.[3] Þau höfðu þá eftir allt verið dysjuð á sama stað – enda þótt enginn viti hver sá um það verk eða hvenær – en bæði líkamar og höfuð lágu alltént utan við þau samfélagslegu mörk sem grafreitir mynda meðal almennings.[4]

Millur sem fundust við bein Agnesar. Þær benda til þess að hún hafi verið prúðbúin við aftökuna. Ljósmyndari: Sólveig Benjamínsdóttir safnstjóri Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna.
Millur sem fundust við bein Agnesar. Þær benda til þess að hún hafi verið prúðbúin við aftökuna.
Ljósmyndari: Sólveig Benjamínsdóttir safnstjóri Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna.

Ljósmynd: Gísli Magnússon
Ljósmynd: Gísli Magnússon
En þetta er heldur ekki eina þekkta dæmið um það að lík sakamanna hafi verið grafin upp og flutt á viðeigandi stað – sennilega vegna meðaumkunar og samúðar almennings gagnvart þeim sem voru berskjaldaðir fyrir hvers kyns auðmýkingu. Leynd hvíldi þá gjarnan yfir uppgreftinum en líka útförinni, eins og í tilviki Agnesar og Friðriks. Nafna mín, hin dauðadæmda Steinunn frá Sjöundá á Rauðasandi, var urðuð í trékistu á Skólavörðuholtinu eftir að hún andaðist 31. ágúst 1805 í tukthúsinu á Skólavörðustíg. Nokkrir samfangar hennar báru kistuna upp á holtið og grófu niður í grunna gröf sem þeir huldu grjóti. Síðan stækkaði dysin af því að hún var í alfaraleið en vegfarendur köstuðu gjarnan steini á hana. Þar lá jú sakakvendið Steinunn Sveinsdóttir sem hafði verið dæmd til dauða, ásamt Bjarna Bjarnasyni frá sama bæ, fyrir að hafa í ást sinni á hvort öðru myrt maka sína. Skyldu þau hálshöggvin og höfuð sett á stengur. Var Bjarni fluttur til Kristiansands í Noregi þar sem dómnum var framfylgt síðar um haustið 1805. Stjakinn sem höfuð Steinunnar átti að standa á var aftur á móti settur á gröf hennar, því hún lést jú áður en aftakan fór fram. Það var síðan 110 árum seinna að kista Steinunnar var grafin upp í látlausri athöfn og beinin greftruð í vígðri mold í suðurvesturhorni kirkjugarðsins við Suðurgötu í Reykjavík.[5]

Sakamenn töldust einnig þeir sem tóku eigið líf eða dóu óskírðir. Til eru ótal frásagnir af því þegar þeir voru jarðaðir, ýmist utan garð eða innan garðs í laumi, allt fram á miðja síðustu öld. Í endurminningum sínum segir Hulda Á. Stefánsdóttir húsfreyja á Þingeyrum í Húnaþingi svo frá:

Þá var einnig merkt ofan á garðinn, hvar líkkistu hafði verið skotið yfir hann. Sjúkur maður hafði fyrirfarið sér nokkrum árum áður en ég fluttist vestur. Urðu um það talsverðar deilur, hvort leyfilegt væri, að hann fengi leg í kirkjugarðinum á Þingeyrum. Þar hafði hann óskað eftir að hvíla, enda hafði hann átt heima í sókninni. Leyfi fékkst með því skilyrði, að kistan yrði ekki borin inn um sáluhliðið, heldur yrði henni lyft yfir garðinn, skammt sunnan við hliðið. Mörgum kann að þykja þetta ótrúlegt, en það er satt; kunningi minn sýndi mér mynd af því, þegar kistunni var lyft inn í garðinn.“[6]

Þarna var farið á svig við lög Guðs og manna og séð til þess að ungi maðurinn fengi að hvíla innan garðs.

Það kann að vera að kjarni þessa viðkvæma og þversagnarkennda en ríka hvata til þess að færa jarðneskar leifar látinna í öruggt skjól liggi öðru fremur í menningarbundinni samkennd en líka meðaumkun með þeim sem ekki geta varið sig sjálfir, burtséð frá trú eða siðum. Áminningin um grimmileg örlög sakamanna, eins og t.d. Agnesar, Friðriks og Steinunnar, eða fjallgöngumannanna tveggja, fyrst Grænu stígvélanna og síðan Davids Sharp, kveiktu án efa hvatann að því að færa þau öll á vísa staði – hver svo sem hinn endanlegi staður er.

[line]

[1] Jón Karl Helgason (2003). Ferðalok. Reykjavík: Bjartur.

[2] Guðlaugur Guðmundsson (1984). Enginn má undan líta. Reykjavík: Örn og Örlygur.

[3] Sigrún Huld Þorgrímsdóttir (2005, 21. maí). Agnes og Friðrik fyrir og eftir dauðann. Lesbók Morgunblaðsins. Sótt 13. mars 2016 af slóðinni http://www.mbl.is/greinasafn/grein/1018633/

[4] Við uppgröftinn fannst ýmislegt smálegt, eins og millur úr klæðnaði Agnesar (mynd af millunum).

[5] Anna Kristín Ólafsdóttir (2013, 8. nóvember). Sérstæð sakamál – morðin á Sjöundá. Kvennablaðið. Sótt 13. mars 2016 af slóðinni http://kvennabladid.is/2013/11/08/serstaed-sakamal-mordin-a-sjounda/

[6] Hulda Á. Stefánsdóttir (1987). Minningar Huldu Á. Stefánsdóttur. Húsfreyja í Húnaþingi. Hjörtur Pálsson bjó til prentunar. Reykjavík: Örn og Örlygur, bls. 58.[/cs_text]

Um höfundinn
Steinunn J. Kristjánsdóttir

Steinunn J. Kristjánsdóttir

Steinunn J Kristjánsdóttir er prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild. Kennslusvið hennar liggur innan miðaldafræða og kynjafornleifafræði, Helstu rannsóknasvið hennar eru félagsleg fornleifafræði, miðaldafornleifafræði, trúarbragðarsaga, klaustur og klausturstarfsemi. Sjá nánar

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701