Raunir Ungs Manns

[cs_text text_align=”none”]
Hallgrímur Helgason
Sjóveikur í München
JPV, 2015
Hallgrímur Helgason gerðist námsmaður við Listaakademíuna í München í einn vetur, árið 1981. Það var ekki ætlan hans upphaflega að fara til München, heldur sá hann fyrir sér að fara til Berlínar þar sem hann taldi frelsið ríkja. Hann var þó of seinn að sækja um skólavist þar og endaði því í höfuðborg Bæjaralands, München. Hallgrímur segir frá þessum tíma í lífi sínu og blandar þar við ýmsu úr æsku sinni og lífi svo að úr verður eftirminnileg frásögn Ungs Manns en svo kýs Hallgrímur að nefna sig í bókinni. Saga þessi endar á sumardegi 1982 og er Hallgrímur þá tuttugu og tveggja ára gamall.

Sagan hefst þegar sögumaður er staddur í lest frá Lúxemborg girtur heimasaumuðu innanklæðaveski með hvítri teygju og fer með margendurtekna þulu móður sinnar: „Flugmiðinn, peningarnir og passinn“. Hann er sífellt að upplifa nýja hluti og umhverfi sem vekur upp alls konar pælingar. Þegar hann gengur í fyrsta sinn um miðbæ Münchenarborgar sér hann Óperuna sem líkist grísku hofi, ráðhúsið á Marienplatz vekur hjá honum andköf og dómkirkjan „var há sem Hornbjarg“. Kirkja sú var reist á árunum 1468-1488 og hugsar Ungur Maður til þess hvaða húsagerð tíðkaðist á Íslandi á þeim tíma. „Í samanburði við þessa miklu borg var Reykjavík eins og tjaldstæði.“ (19) Það er ekki eingöngu húsagerð sem vekur andköf, því þegar hann smakkar bæverskan ost í fyrsta sinn fyllist hann þvílíkri sælutilfinningu að hún minnir hann á unaðinn sem fylgdi fyrsta kossinum.

Hann kom frá fátæku landi þar sem fólk lifði á gömlum uppþornuðum og glerhörðum ostum. Frá borg sem hvorki átti til bjórkrá, óperu, listasafn, lestir, sporvagna né grískt hof, og einungis eitt kaffihús, þrjá matsölustaði og jafnmörg diskótek. Menn voru loks nú að koma sér upp kirkjuturni fyrir kennileiti. Hann hafði verið þrjátíu og sex ár í smíðum og var enn ekki tilbúinn. (23)

Margt fleira upplifir hann í fyrsta sinn á þessu ári. Hann smakkar sinn fyrsta bjór, prófar að reykja sígarettu, fer á Oktoberfest og í gleðskap hjá Ásgeiri Sigurvinssyni sem þá lék með Bayern München. Hann upplifir fangavist í Austur-Berlín og er þá ekki allt upp talið. Hallgrímur gengur mjög nærri sér í þessari bók og segir frá mörgu sem ekki er víst að allir hefðu þor til að segja frá. Hann segir meðal annars frá því þegar að honum var nauðgað á jólanótt. Var hann þá staddur í Flórens, en þangað hafði hann farið í skemmtiferð sem endaði svona ömurlega.

Sagan segir frá glímu hans við myndlistina, bæði sína eigin og annarra.
Hallgrímur vefur mjög listilega saman fyrri tíma í lífi sínu og fær lesandinn smám saman nokkuð glögga mynd af fjölskyldu hans og skólagöngu sem einkenndist af myndlist. Sagan segir frá glímu hans við myndlistina, bæði sína eigin og annarra. Hann dvaldi ekki lengi í myndlistarnáminu á Íslandi, því samkvæmt kennara hans þar vantaði allt „knall“ í listina hjá honum. Knallið samkvæmt kennaranum er „lífsneistinn sem brýtur verkið upp og gefur því líf“ (131). Ekki gat Ungur Maður samsinnt því og yfirgaf hann því skólann. Það sama er uppi á teningnum í München. Prófessorinn segir að það vanti meira „splass“ í myndirnar hans.

Um leið var honum ljóst að námi hans í Listaakademíunni var lokið. Líkt og heima hafði því lokið með einu orði.
Knall þar, splass hér.
Snerist listin um að leggja niður öll höft, alla hugsun, alla hæfileika? Var listin eitthvað sem gusaðist bara út úr manni ef maður opnaði sig nógu mikið? (259)

Einn er sá listamaður sem Ungur Maður lítur upp til í mikilli lotningu og það er Marcel Duchamp. „Hann var sá listamaður sem höfðaði mest til hans, kannski sá eini sem hann gat borið virðingu fyrir.“ (75) Ungur Maður fellur endanlega fyrir Duchamp þegar hann uppgötvar listaverk hans sem kallað er Stóra glerið.

Dularfullt verk sem líktist engu öðru sem hann hafði séð: tvær stórar tvöfaldar glerplötur sem klemmdu á milli sín undarleg form, vélræn og lífræn í senn […] Og þegar Ungur Maður hafði lesið sér til um hugmyndirnar að baki því gerði hann sér grein fyrir því að hér var hugsað handan myndlistar, hér var eitthvað stórt á ferð, hér var seilst inn í vísindin, skáldskapinn jafnvel, ef ekki lengra: Hér hafði opnast nýtt og ókannað svæði sem tilheyrði engum greinum. (76)

Annar listamaður er nálægur í sögu þessari og er það Halldór Laxness. Hann kemur oft við sögu og þá oftar en ekki sem eins konar helgimynd, samanber söguna af saltkringlunni sem Halldór átti að hafa bitið í, er hann var staddur í München, en ekki líkað bragðið. Saltkringla sú „var nú varðveitt, með bitfari skáldsins, eins og hver annar helgigripur, í glerskáp heima hjá formanni Íslendingafélagsins“ (145). Á öðrum stað segir Ungur Maður frá því er hann starfaði eitt sumar við að telja tré í norskum skógi og hafði þangað með sér Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness:

Þessi maður, þessi Halldór, þessi Kiljan, þessi Laxness, var heilagur andi sem fangað gat mannslíf í einu nafni, Bjartur!, og hýst gat heila þjóð í einum bæjarhúsum, Sumarhús! Jafnvel letrið sjálft nötraði á síðunum, líkt og höfundurinn hefði í snilldarvímu sinni hamrað hvern stafkrók á gulnaða síðuna eigin hendi, á sína eigin fyrirstríðsritvél, með hríðskotahljóðum, stafaslögin dúndruðust inn í lesandi sál, reiðíngstorfa! mjallrok! jómsvíkingar! (165)

Það er svosem ekki nýtt að Hallgrímur fjalli um Halldór Laxness, en um þau mál má lesa í bók eftir Öldu Björk Valdimarsdóttur sem heitir Rithöfundur Íslands og kom út 2008. Þar segir meðal annars að Hallgrímur Helgason líti „augljóslega á Halldór Laxness sem helsta skáldföður sinn“ (148).

Hallgrímur lýsir því í bókinni hvernig þessir tveir takast á innra með honum, myndlistarmaðurinn og rithöfundurinn og í bókarlok er gefin mjög sterk vísbending um það hvor muni fara með sigur af hólmi. Í gegnum alla söguna þjáist Ungur Maður af miklum uppsölum. Hann gubbar í tíma og ótíma einhverju svörtu efni og skal það játað að það var farið að vera nokkuð skrýtið hversu mikið drengurinn gat selt upp. Á þessu fæst skýring áður en bók er úti og er sú skýring mjög hugvitsamleg og leysir vel úr þessu máli.

Bókin Sjóveikur í München heldur manni vel við efnið og verður aldrei óáhugaverð. Lýsingar Hallgríms á mönnum og málefnum eru skemmtilegar og lýsa tíðarandanum mjög vel. Sömuleiðis stendur München alveg ljóslifandi fyrir hugskotssjónum þess sem les og fyrir mann sem eitt sinn bjó þar fyllir það hann notalegri fortíðarþrá.[/cs_text]

Um höfundinn
Einar Sigurmundsson

Einar Sigurmundsson

Einar Sigurmundsson er með M.A. – próf í hagnýtri ritstjórn og útgáfu. Hann hefur áður lokið B.A. – prófi í almennri bókmenntafræði og lagt stund á meistaranám í íslenskum bókmenntum.

[cs_text text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

news-1701