Hið fjölskrúðuga mannlíf

[x_text]
Tilfinningarök, nýjasta ljóðabók Þórdísar Gísladóttur, er litrík og falleg. Á kápunni stendur fugl í grænum, bleikum og ljósum litum sem hefur verpt bleiku, doppóttu eggi á bláan og dökkbláan grunninn; myndin minnir á efni bókarinnar, margir glaðir litir lífsins eru í forgrunni en alvaran er skammt undan.

Tilfinningarök
Þórdís Gísladóttir
Bjartur, 2015
Ljóðabókin skiptist í þrjá hluta. Sá fyrsti er skemmtilega rammaður inn af strætóferð að morgni frá Mjódd að Hlemmi, ferðin tekur nákvæmlega 21 mínútu. Lestrarhraðinn er þó frjáls. Þetta ljóð nefnist „Laghentur maður leitar að lífsförunaut“ og eins og nafnið gefur til kynna kallast það á við auglýsingar í einkamáladálkum dagblaða. Hér er skyggnst inn í huga manns sem gæti vel hugsað sér að eignast maka; hann er einn, einmanaleikinn liggur í loftinu en þó virðist hann ekki örvæntingarfullur í makaleitinni. Maðurinn lætur hugann reika, við sjáum hann fyrir okkur í strætó og fyrir framan hann er stúlka með hvíta húfu á kollinum. Hann veltir fyrir sér hvernig konu hann langar til að eignast og hefur ákveðnar hugmyndir:

Hún þarf helst að vera
ráðagóð og jákvæð
það tvennt fer raunar oft saman
hefur hann tekið eftir.

Og ekki bölsótast
á samskiptamiðlum
því slíkt gefur til kynna
yfirvofandi heilsubrest (12).

Þetta eru ef til vill ekki miklar eða strangar kröfur sem maðurinn gerir en móðir hans hefur aftur á móti skilgreint betur hvers vegna maðurinn þarf að finna sér konu:

Hún leggur áherslu
á líf með skrautmunum;
garðálfar og styttur
pottablóm og kerti
krosssaumur og kristall
slíkt gerir hús að heimili
og kona gerir hús að heimili (10).

Maðurinn sér þó ekki fyrir sér nákvæmlega hvernig konan lítur út, hún gæti verið röskleg Framsóknarkona í gráum kjól og svörtum leðurstígvélum eða einstæð móðir úr Mosfellsbæ með húðflúr á spjaldhryggnum. Þannig reikar hugurinn á milli kvenna en tekið er skýrt fram að hann gæti ekki hugsað sér að vera kona; það dreymdi hann eitt sinn og er síðan viss í sinni sök.

Nærstaddir farþegar verða óhjákvæmilega vitni að slíkum samtölum og öðlast tilviljunarkennda vitneskju um viðkomandi.
„Laghentur maður leitar að lífsförunaut“ er vel heppnaður forleikur að öðrum hluta bókarinnar sem nefnist „Svipmyndir“. Sá hluti ber nafn með rentu því að hann samanstendur af 26 stuttum en skýrum frásögnum af fólki. Ólíkir karlar og konur birtast okkur örstutt, jafnvel með nafni, og lesandinn getur dregið sínar ályktanir um persónurnar. Það er freistandi að hugsa áfram til ferðarinnar í strætisvagninum í upphafi bókarinnar. Í strætisvögnum deilir fólk úr öllum áttum sama rými í misskamman tíma og innbyrðis þekkjast farþegarnir lítið sem ekkert. Við og við fá þeir innsýn í líf einhvers farþegans ef hann talar í símann eða hittir kunningja sem tekur hann á tal. Nærstaddir farþegar verða óhjákvæmilega vitni að slíkum samtölum og öðlast tilviljunarkennda vitneskju um viðkomandi. Svipmyndirnar 26 minna á þetta en einnig hve yfirborðskennd þessi kynni af farþegum, eða öðru fólki sem verður á vegi okkar um skamma stund, eru. Við lestur svipmyndanna má ímynda sér að ósk um að fá að skyggnast örstutt inn í huga samferðafólksins hafi verið uppfyllt. Manneskjan sýnir þá hlið sem henni sýnist hverju sinni og leynir öðru, hugsanir heyrast ekki nema hér. Stúlkan í 6. svipmynd kjáir framan í mánaðargamalt barn vinkonu sinnar en „í sannleika sagt hefur hún ekkert gaman af börnum“ (32) og sjúkraliðinn í 9. svipmynd á auðveldara með að umgangast geðsjúklingana en vel gifta hjúkrunarfræðinga sem fara í fjallgöngur í illviðrum fyrir hádegi um helgar (35).

Þó að kalla megi ljóðin hversdagsleg er það ekki í neikvæðum eða lítilvægum skilningi. Hversdagurinn er margbreytilegur og „venjulega fólkið“ er flókið.
Farþegar í strætó geta verið eins og þverskurður af samfélagi, fólki í sínum hversdegi. Fólkið er á leið til vinnu, skóla, læknis, sýslumannsins eða á hvern þann stað sem dagurinn krefst. Hver fer sína leið og lifir sínu lífi en er um leið hluti af einhverri heild. Hluti farþeganna í strætó á leið frá Mjódd að Hlemmi; hluti af samfélaginu. Þannig segja ljóðin bæði einstakar sögur og almennar. Jafnvel þó að höfundur byggi svipmyndir sínar ekki endilega á ákveðnu fólki eru þessar persónur kunnuglegar af því að þær eru „venjulegar“ og skiljanlegar. Þó að kalla megi ljóðin hversdagsleg er það ekki í neikvæðum eða lítilvægum skilningi. Hversdagurinn er margbreytilegur og „venjulega fólkið“ er flókið. Þess vegna eru ljóðin fyndin og tragísk, kunnugleg og framandi í senn.

„Svipmyndir“ eru hryggjarstykki verksins og þriðji og síðasti hlutinn, „Til huggunar“, er að forminu til líkari fyrsta hlutanum, stutt ljóð sem segja eina sögu. Þar er meðal annars fjallað um hvernig fólk getur skerpt ímynd sína með samanburði við annað fólk. Vellíðun og yfirburðatilfinning getur sprottið af slíkum samanburði:

Reglusamri manneskju
sem býr í heilsueflandi samfélagi,
greiðir viðbótalífeyrissparnað
og mætir alltaf tímanlega,
getur fundist gefandi
að hitta fólk
sem er ekki eins vel upp alið.

Fólk sem skilar kannski skattskýrslunni of seint
eða kyssir einhvern ókunnugan
í eldhúspartíi (49).

Tilfinning „hinna“ sem ekki eru eins vel upp aldir er önnur, þeir fyllast stundum tómleikatilfinningu „og langar að stíga svo þungt til jarðar / að gangstéttarhellur molni“ (51).

Tilfinningarök er í alla staði sérlega aðgengileg ljóðabók. Öll eiga ljóðin það sameiginlegt að vera lipurlega samin og auðveld aflestrar. Í bókinni ríkir léttleiki og húmor, á köflum er vart annað hægt en að skella uppúr. Þó að mannleg vandamál af ýmsum toga kraumi undir eru allar líkur á að lesandi leggi bókina frá sér í góðu skapi, jafnvel með bjarta sýn á lífið því að „öfugt við það sem sumir segja / var lífið ekki einfaldara fyrrum“ (57).[/x_text]

Um höfundinn
Þórdís Edda Jóhannesdóttir

Þórdís Edda Jóhannesdóttir

Þórdís Edda Jóhannesdóttir er doktor í íslenskum bókmenntum og stundakennari við Íslensku‐ og menningardeild Háskóla Íslands. Rannsóknarsvið hennar er íslenskar miðaldabókmenntir. Sjá nánar

[x_text][fblike][/x_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701