[x_text]Heimkoman eftir Harold Pinter er kölluð „svört kómedía“ og vissulega er húmorinn svartur. Í leikritinu er sagt frá heimspekiprófessornum Teddy sem kemur heim til föður síns og bræðra í Norður-London til að kynna konu sína fyrir fjölskyldunni.  Annars búa þau í Bandaríkjunum. Teddy segir við Ruth að fjölskylda hans sé gott fólk, engar ófreskjur, en þetta er í öðrum þætti og áhorfendur eru þegar búnir að kynnast fjölskyldunni. „Gott fólk“ er ekki fyrsta lýsingin sem kemur í hugann.

LJósmynd: Hörður Sveinsson
LJósmynd: Hörður Sveinsson
Karlaheimur

Fjölskyldufaðirinn, Max, er slátrari á eftirlaunum. Hann hefur verið harðstjóri og við fáum öðru hverju snögga innsýn í líf fjölskyldunnar en galdurinn við texta Pinters er að okkur er ekki sagt hvað gerðist. Við getum aðeins getið okkur til um hvers vegna Max hatar hina dánu konu sína, Jenný, svo ofboðslega og hvers vegna synir hans hata hann en eru háðir honum líka. Hvað hefur gerst?

Ingvar E. Sigurðsson leikur Max og túlkar prýðilega fautaskapinn í honum og varnarleysið gagnvart ellinni. Ingvar er í yngsta lagi fyrir hlutverkið en hann er mjög góður leikari og tuðar sannfærandi um sína fornu frægð. Augljóslega er hann í alltof góðu formi til að þurfa rafknúinn hjólastól sem hann spændi á um sviðið og átti kannski að koma í staðinn fyrir „stólinn hans pabba“ í leikritinu.

Miðsonurinn Lenny er flókin persóna, hann er háll sem áll, sjálfsöruggur og slægur en svo fullur af bældri heift og reiði að æðisköst geta alltaf verið yfirvofandi. Hann er leikinn af Birni Hlyni Haraldssyni. Hann er fjallmyndarlegur og verðandi höfuð fjölskyldunnar. Mér fannst hann sýna vel  hin mörgu andlit Lennys sem eru um margt  ansi líkur föður sínum. En hvað vill hann, um hvað dreymir hann, hvað knýr hann áfram? Mér fannst það ekki ljóst í lögn persónunnar – kannski er það þó öfund og samkeppni við Teddy (Theo-dor(a) = gjöf guðs) sem knýr hann áfram í verkinu?

Max og Lenny eru úthverfu karlarnir í fjölskyldunni, þeir innhverfu og fámæltu eru Sam, Joey og Teddy. Sam er yngri bróðir Max, einkabílstjóri, siðfágaðri en hinir og ómögulegt að segja hvort hann lifir ennþá í gamalli ást og hrifningu á mágkonu sinni, Jenny, eða hvort hann notar hana bara til að halda hatri Max lifandi, ýta á veiku punktana. Það virkar alltaf. Eggert Þorleifsson leikur Sam og þó hann sé hluti af þessari sjúku fjölskyldu og valdabaráttunni innan hennar, kemst hann samt næst því að vekja samúð áhorfenda. Það er unun að hlusta á framsögnina hjá honum. Joey er yngsti sonurinn sem vonast til að verða boxari en vinnur við sóðalegasta og erfiðasta starf sem til er, hann brýtur niður byggingar og innréttingar. Hann virðist heilaskaddaður og er illa talandi. Hann er leikinn af Snorra Engilbertssyni, sem er líkamlega sannfærandi boxari og býr til aumkvunarverðan dreng. Af bræðrunum er hann skýrast klofinn milli þess að vera hrotti og smástrákur í móðurleit. Valdabarátta og úlfúð þessara fjögurra karla breytist þegar Teddy og Ruth koma heim.

Kvennaheimur

Af hverju kemur Teddy með Ruth inn í þennan óhrjálega gamla heim sinn? Hvað vill hann? Hann segir nánast ekki neitt í leikritinu og sýnir ekki oft svipbrigði en Ólafi Agli Egilssyni tekst þó að segja margt með því að segja ekkert. Það er samt Ruth sem leikritið stendur eða fellur með. Hún segir heldur ekki margt. Eiginlega er hlutverk hennar allt í undirtextum örfárra setninga. Vigdís Hrefna Pálsdóttir er fögur og fáguð og jafnvel tíguleg í túlkun sinni á Ruth framan af, köld, fjarlæg og dulúðug.  Um mitt verkið kemur fram að hún er sjálf úr þessu hverfi, átti vafasama fortíð þegar hún giftist Teddy og varð prófessorsfrú í Bandaríkjunum með þrjá unga syni og sundlaug.  Í upphafi vill hún ekki vera í húsi Max en undir lokin eru allir sammála um að þó  Teddy fari til Bandaríkjanna verði hún kyrr.  Hún vefur körlunum um fingur sér og þeir verða sammála um að halda henni hjá sér, hún á að þjóna þeim öllum þremur til borðs og sængur og verða ein af vændiskonunum sem Lenny gerir út en með forréttindi sem slík. Hún samþykkir það. Áhorfendur fengu áfall yfir þessum endi árið 1964 þegar verkið var frumsýnt. Hvað er hún að hugsa?  Teddy setur sig ekki upp á móti neinu í þessum samningum og fer sína leið. Ég held að hann hafi séð þetta fyrir. Hún hefur ekki unað sér í Bandaríkjunum og hann hefur farið  með hana heim í gamla hverfið til að leyfa henni að velja hvort hún vill vera eða fara. Honum er sama hvort hún velur, hún er honum ekki samboðin – eins og gamli karlinn lætur í veðri vaka nokkrum sinnum.  Ákvörðun hennar er hins  vegar allt sem hún hefur að segja um samband þeirra og margt fleira.

LJósmynd: Hörður Sveinsson
LJósmynd: Hörður Sveinsson
Í sláturhúsi?

Oft hefur verið sagt að þetta sé leikaraleikrit, áhrif þess hvíli á list leikarans og þetta er megináhersla sýningarinnar sem Atli Rafn Sigurðarson leikstýrir. Þess vegna hefði mátt fjarlægja næstum alla leikmynd og á myndum af öðrum uppfærslum má sjá að það hefur oft verið gert og ekkert skilið eftir nema eitt sófasett og eitt borð. Meginatriði er að taka ekki af tvímæli um neitt – leyfa tvíræðni og tvöföldunum og hinni merkingarlegu óvissu Pinters að vinna sitt verk.

LJósmynd: Hörður Sveinsson
LJósmynd: Hörður Sveinsson

Leikmynd þessarar sýningar er eftir Börk Jónsson og hún er hvorki stílfærð né raunsæ. Hljóðmynd Kristjáns S. Einarssonar er búin til og framleidd af Einari Scheving á sviðinu en að öðru leyti eru persónurnar staddar í fyrirtæki Max, kjötvinnslu þar sem enginn vinnur lengur. Af hverju gerist leikritið þar? Leikstjórinn útskýrir hugmyndina í leikskrá, sviðið endurspeglar veruleika og vinnustað karla, „þar sem blæðir  á daginn en er skúrað á kvöldin. Húsnæði þar sem öllu er haldið hreinu, allt á sér sinn stað.“ Þetta húsnæði með harðri vinnustaðalýsingu Halldórs Arnar Óskarssonar þrengir æ meira að átökum innan fjölskyldunnar þegar móðirin og hóran í einni manneskju er (aftur) orðin hjarta (slátur)hússins. Er það þá meiningin að Ruth hafi verið slátrað? Ekki samkvæmt ummælum leikstjórans. Ég fæ satt að segja ekki botn í þetta.

Eftir stendur þó að þessi sýning lokast ekki þegar henni lýkur og áhorfandi gengur út í nóttina. Hún heldur áfram að vinna í höfðinu á manni og er endalaust hægt að tala um hana og pæla í henni.

Listilega vel skrifað og margrætt leikrit, fullt af reiði og þjáningum karla sem hata konur og berjast um völd. Ein kona stendur andspænis fimm körlum sem sjá í henni það sem þeir þrá. Afbragðs góðir leikarar túlka þennan heim af list en leikdómarinn er ósáttur við leikmyndina.
[/x_text]
Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

[x_text][fblike][/x_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

news-1701