[container] Í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands efnir Hugvísindasvið til textasamkeppni. Öllum nemendum, kennurum og öðru starfsfólki skólans er boðið að taka þátt. Valdir verða 25 textar úr innsendu efni og þeir hafðir til sýnis í Kringlunni frá 11. til 19. mars.
Veitt verða vegleg bókaverðlaun frá Opnu, Bóksölu stúdenta og Ritinu fyrir þrjá bestu textana og þeir verða jafnframt birtir í Fréttablaðinu og Hugrás, vefriti Hugvísindasviðs.
- Kallað er eftir stuttum frumsömdum og áður óbirtum textum, skálduðum jafnt sem óskálduðum, í bundnu eða óbundnu máli, úr heimi fræða og vísinda eða öðrum geirum mannlífsins.
- Textarnir mega vera allt að 2000 slög með bilum.
- Rita skal á íslensku.
- Textarnir verða settir upp á veggspjöld.
Dómnefnd
Dómnefnd skipuð lektor í ritlist og tveimur rithöfundum velur úr 25 bestu textana og veitir verðlaun fyrir þá 3 sem þykja skara fram úr. Gestir Kringlunnar geta einnig látið skoðun sína í ljós og mun dómnefnd taka tillit til atkvæða þeirra.
Skilafrestur er til 15. febrúar. Textana skal senda sem viðhengi á netfangið sjon@hi.is, merkta dulnefni, en rétt nafn höfundar fylgi með í tölvuskeyti. Móttakandi gætir nafnleyndar gagnvart dómnefnd.
1. verðlaun: Glæsilegur bókapakki frá Opnu. Fjögur rit að verðmæti 35.000 kr.
- Eitt þúsund tungumál
- Trú. Mannfólkið andspænis guði sínum
- Myndlist í þrjátíu þúsund ár
- Fransi Biskví
2. verðlaun: Veglegt rit frá Bóksölu stúdenta
3. verðlaun: Ársáskrift að Ritinu, tímariti Hugvísindastofnunar og árgangur 2010.
Samstarfsaðilar
Opna, Bóksala stúdenta, Kringlan og Fréttablaðið
[/container]
Leave a Reply