Safnafræði 1/2010

Ritið 1/2010
Ritið 1/2010 Safnafræði

Greinarnar í heftinu eru eftir sjö höfunda og er viðfangsefnið af ýmsu tagi. Ástráður Eysteinsson, bókmenntafræðingur, skrifar grein sem heitir „Söfnun og sýningarrými: Um söfn, hefðarveldi og minningasetur.“ Valdimar Tr. Hafstein, þjóðfræðingur, ritar grein sem hann nefnir „Þekking, virðing, vald: Virtúósinn Ole Worm og Museum Wormianum í Kaupmannahöfn.“ Loftur Atli Eiríksson, menningarfræðingur, fjallar svo um „Menningarvæðingu viðskiptalífins“ og Tinna Grétarsdóttir, mannfræðingur, nefnir sitt framlag „Á milli safna: útrás í (lista)verki.“ Katla Kjartansdóttir, þjóðfræðingur, nefnir sína grein „Mótmælastrengur í þjóðarbrjóstinu“ og Alma Dís Kristinsdóttir, menntunarfræðingur, ræðir um safnfræðslu í „Safnfræðsla: staða og (ó)möguleikar.“ Hannes Lárusson, myndlistarmaður, er svo með myndaþátt sem hann nefnir „Doodling“ og leggur þar út af kroti í skjóli hrunsins.

Ritstjórar heftisins eru þau Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnafræðingur, og Sigurjón Baldur Hafsteinsson, lektor í safnafræði við Háskóla Íslands.

Ritið er 165 blaðsíður.