Menningarsaga 1/2012

ritid12012Í þessu fyrsta hefti ársins er rýnt í menningarsöguna út frá ólíkum sjónarhornum hugvísindanna. Í fyrstu greininni er komið inn á það viðkvæma þjóðernispólitíska samhengi sem þátttaka Íslands í bókasýningunni í Frankfurt var sett í með upphafningu fornsagnaarfsins og óbeislaðrar náttúrunnar og vísunum til velvildar Þjóðverja gagnvart hvorutveggja. Ann-Sofie Nielsen Gremaud bendir á að þótt bókasýningin geti tvímælalaust átt þátt í því að móta ímynd Íslands um stundarsakir þá orki sú áhersla sem lögð var tvímælis. Ólafur Rastrick hugar einnig að sjálfsmynd þjóðarinnar en út frá öðru sjónarhorni. Í samanburði við evrópska menningarsögu virtist hin íslenska full af eyðum sem krafa var gerð um að fylla í kjölfar fullveldis þjóðarinnar 1918. Metnaður Íslendinga var að vera menningarþjóð á meðal menningarþjóða en svo virtist sem lágkúrulegar afurðir erlendrar alþýðumenningar hefðu afvegaleitt hana. Ein helsta táknmynd smekkleysunnar var postulínshundurinn sem stillt hafði verið upp á kommóðum fjölda sveitaheimila. Í þriðju þemagreininni leiðir Þröstur Helgason svo getum að því að þjóðernisleg íhaldssemi hafi verið ástæða þess að módernismi átti ekki upp á pallborðið á Íslandi fyrr en eftir lýðveldisstofnun árið 1944.

Myndaþáttur heftisins er eftir Einar Fal Ingólfsson og heitir „Söguslóðir – Úr Njáls sögu“. Hann kallast skemmtilega á við þema heftisins, ekki síst grein Ann-Sofie. Myndirnar fimm, sem eru hluti af stærra verki, sýna forvitnilegt samspil samtíma og (bókmennta)sögulegrar fortíðar.

Í heftinu eru birtar þrjár greinar utan þema. Henry Alexander Henryson fjallar um skynsemina í náttúrunni og náttúrulega skynsemi. Daisy Neijmann varpar nýju ljósi á þríleik Ólafs Jóhanns Sigurðssonar um blaðamanninn Pál Jónsson út frá sjónarhorni minnisrannsókna. Og Ásta Kristín Benediktsdóttir fjallar um skáldsögu Jakobínu Sigurðardóttur, Lifandi vatnið –––, út frá kenningum um fjölradda frásagnir.

Ritstjórar eru Sólveig Anna Bóasdóttir og Þröstur Helgason.

Ritið er 186 blaðsíður. Hægt er að panta heftið hjá Háskólaútgáfunni. Margrét Guðmundsdóttir tekur við óskum um áskrift: mgu@hi.is