Rannsóknarverkefnið 2017.is og Hið íslenska bókmenntafélag hafa gefið út greinasafnið Áhrif Lúthers. Siðaskipti, samfélag og menning í 500 ár, í tilefni þess að 500 ár eru liðin síðan Marteinn Lúther hratt af stað víðtækri þróun á sviði trúar, kirkju, samfélags og menningar í norðanverðri Evrópu með því að birta mótmælagreinarnar 95.
Tuttugu fræðimenn á sviði guðfræði, sagnfræði, bókmenntafræði og málvísinda rita greinar í bókina sem varpa nýju ljósi á ýmsa fleti lútherskrar menningar á Íslandi í sögu og samtíð. Áhrif Lúthers hér á landi hafa löngum verið umdeild en allir eru sammála um að siðbreytingin marki tímamót í sögu Íslands. Í bókinni er fjallað um þessi áhrif Lúthers og hvernig þau birtast, beint og óbeint, á fjölmörgum sviðum samfélags og menningar, sum býsna síðbúin. Höfundar fjalla meðal annars um samfélagslegar breytingar, uppfræðslu og kennsluaðferðir, bókaútgáfu, sálmakveðskap, myndlist, gagnrýni á kirkjuna, kvennabaráttu og kynferðislegan margbreytileika.
Ritgerðirnar tuttugu eiga rætur að rekja til þverfræðilegs rannsóknarverkefnis um áhrif siðbótar og siðaskipta á íslenska kristni, samfélag og menningu er Guðfræðistofnun Háskóla Íslands hleypti af stokkunum af þessu tilefni.
Ritstjórar bókarinnar eru Hjalti Hugason, Loftur Guttormsson og Margrét Eggertsdóttir.
Efnisyfirlit:
Samfélag og almenningsfræðsla
- Skyldur lúthersks yfirvalds. Páll Stígsson og siðbótin á Íslandi. Hjalti Hugason kirkjusagnfræðingur.
- Konungsbréfið 1635 um kverfræðslu og húsvitjanir. Bakgrunnur og áhrif. Loftur Guttormssonar sagnfræðingur.
- Arithmetica — það er reikningslist. Rætur í menningu mótmælenda. Kristín Bjarnadóttir stærðfræðingur.
Þýðingar og útgáfa
- Horft til horfinnar bókar. Um „Fjóra guðspjallamenn“. Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur.
- Breytingar Guðbrands biskups á Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar. Hverjar voru fyrirmyndirnar? Guðrún Kvaran málfræðingur.
- „Frómum og guðhræddum, leikum og lærðum“. Um Guðbrand biskup Þorláksson og þýðingar hans. Margrét Eggertsdóttir bókmenntafræðingur.
- Sálmar Lúthers í íslenskum messusöng. Einar Sigurbjörnsson trúfræðingur.
Kirkjubyggingar og búnaður
- Þættir úr sögu innanbúnaðar íslenskra kirkna á fyrstu öldum eftir siðaskipti. Guðrún Harðardóttir sagnfræðingur.
- Málverksmyndir, skurðgoð og líkneskjur. Um myndskilning siðbótarmanna og áhrif hans hér á landi í sögulegu ljósi. Gunnar Kristjánsson guðfræðingur.
- Voru helgimyndir eyðilagðar á Íslandi? Athugun á varðveislu dýrlingamynda fyrsta áratuginn eftir siðaskipti. Margaret Cormack miðaldafræðingur.
Hugarfar og menning
- Kraftaverk og furður eftir siðaskipti. Ásdís Egilsdóttir bókmenntafræðingur.
- „Gegnum Jesú helgast hjarta í himininn upp ég líta má.“ Lesið í líkamsmyndir Passíusálma. Sveinn Yngvi Egilsson bókmenntafræðingur.
- Að lifa guðlega og deyja kristilega. Um píslarvætti Jóns Þorsteinssonar í Vestmannaeyjum. Þorsteins Helgasonar sagnfræðingur.
Konur og kristni
- „Dyggðafull kona er ein eðla gáfa“. Menningarleg mótun kyngervis á 17. öld. Þórunn Sigurðardóttir bókmenntafræðingur.
- „Andvarp syrgjandi ekkju“. Dauðinn, sorgin og trúin í bréfum Sigríðar Pálsdóttur. Erla Hulda Halldórsdóttir sagnfræðingur.
- Sr. Ólafur Ólafsson fríkirkjuprestur og kvenréttindabaráttan um aldamótin 1900. Aðdragandi laga um rétt kvenna til embættisnáms, styrkja og embætta. Arnfríður Guðmundsdóttir trúfræðingur.
- „Haf þinn guð í stafni“. Kristileg orðræða og andóf í skrifum og ljóðum kvenréttindakvenna. Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur.
Guðfræði í sögu og samtíð
- Blessun Arons. Uppruni, notkun og áhrif. Sigurjón Árni Eyjólfsson trúfræðingur.
- Var Magnús Eiríksson siðbótarmaður? Nokkur atriði í gagnrýni hans á þróun kristindómsins. Ævar Kjartansson guðfræðingur.
- Að umfaðma hið óvenjulega. Lúthersk sýn á kynferðislegan margbreytileika og mannréttindi. Sólveig Anna Bóasdóttir siðfræðingur.
[fblike]
Deila