Fullveldi og flóttafólk

[cs_text]Sólveig Anna Bóasdóttir og Hjalti Hugason skrifa.

Á næsta ári verður þess minnst — ábyggilega með veglegum hætti — að 100 ár verða liðin frá því að við Íslendingar urðum fullvalda þjóð. Allan þann tíma höfum við minnst þess með stolti að hafa „sigrað“ okkar fornu herraþjóð, Dani. En fullveldi fylgir ábyrgð. Hún felst í að þróa og standa vörð um sjálfstæða stefnu í eigin málum og ástunda ábyrga stjórnsýslu. Nú á dögum felur fullveldi einnig í sér að halda úti réttlátu velferðar- og réttarríki sem leitar ekki skjóls að baki öðrum þegar við sameiginleg viðfangsefni þróaðra ríkja er að glíma. Öxlum við Íslendingar slíka ábyrgð nú í aðdraganda 100 ára fullveldis?

Siðferðilegar skyldur fullvalda ríkja eru tvenns konar: að koma í veg fyrir skaða heimafyrir og erlendis og að deila byrðum með öðrum þjóðum á sem réttlátastan máta. Allir verða að taka sinn skerf af þeim vanda sem nú er við að glíma. Ísland verður að standa sig enn betur í þessum efnum en gert hefur verið til þessa!

Dyflinnarreglugerðin og fullveldið

Langstærsta viðfangsefnið sem fullvalda þjóðir Evrópu eiga nú við að etja, einar og sér eða í samvinnu sín á milli, er straumur flóttafólks og hælisleitenda yfir landamæri álfunnar. Í þessu efni verður sérhver fullvalda þjóð að axla verndarskyldu sem felur í sér mannúð gagnvart þeim sem hrakist hafa að heiman. Annað ber vitni um þjóðernishyggju og þröngsýni í mannúðarmálum. Nú á dögum þörfnumst við aftur á móti siðfræði sem viðurkennir að heimurinn er eitt siðferðilegt samfélag. Manngerð landamæri mega ekki hindra hugsun af því tagi.

Andspænis þeim vanda hafa ríkin stillt saman strengi í samstarfi sem kennt er við þá merku borg Dyflinni. Dyflinnarsamstarfið er liður í Schengensamkomulaginu og snýr að meðferð á málefnum hælisleitenda. Því er ætlað að koma í veg fyrir að hælisleitendur ferðist á milli Schengenlandanna og sæki um hæli á fleirum en einum stað. Dyflinnarsamstarfið byggir nú á reglugerð frá 2013 sem skilgreinir hvaða Schengenríki beri ábyrgð á afgreiðslu hælisumsóknar sem lögð er fram í einhverju aðildarríkja Schengensvæðisins.

Dyflinnarreglugerðin heimildar stjórnvöldum vissulega að senda hælisleitendur aftur til þess Schengenríkis sem þeir koma fyrst til. Í nýjustu útgáfu hennar er þó vel að merkja kveðið á um að ekki megi senda hælisleitanda aftur til ríkis þar sem hætta er á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Reglugerðin felur sem sé einvörðungu í sér heimild en enga skyldu til að senda hælisleitendur úr landi.

Á Íslandi annast Útlendingastofnun, og ef svo ber undir, dómsmálaráðuneytið afgreiðslu umsókna um hæli. Frá því þátttaka Íslands í Dyflinnarsamstarfinu hófst hafa stjórnvöld hér vísað stærstum hluta hælisumsækjenda til baka til annarra ríkja og talið þau frekar eiga að fjalla efnislega um umsóknir þeirra. Lýsir þessi málmeðferð stolti fullvalda þjóðar? — Ekki að okkar mati.

Ábyrgð fullvalda þjóðar

Fullvalda þjóð tekur sjálfstæðar ákvarðanir á grundvelli gilda og mannréttinda sem almenn sátt ríkir um og samræmast menningarhefð hennar sjálfrar. Við Íslendingar erum rík og öflug þjóð þótt við séum fá og viljum öll búa í friði og sátt í sanngjörnu og réttlátu samfélagi. Við erum auk þess kristin þjóð til 1000 ára og hljótum því að taka afstöðu út frá kristnum sjónarhóli til þeirra viðfangsefna sem við er að glíma í samtímanum. Þar geta dæmisögur Biblíunnar komið að góðu gagni enda flytja þær sístæðan boðskap.

Með sögunni af miskunnsama Samverjanum, einni af lykilsögum kristinnar siðfræði, spyr Jesús lögvitring nokkurn hver hafi reynst náungi þess sem ratað hafði í ógöngur. Það reyndist vera fyrirlitinn útlendingur. Nú erum við aftur á móti spurð: Hvernig ætlum við að mæta útlendingunum sem til okkar leita og svo margir fyrirlíta?

Enginn hrekst sjálfviljugur að heiman. Aftur á móti hrekjast margir nú á dögum á vergang til að bjarga lífi sínu. Þjáning þessa hóps er oft til komin vegna ranglætis og ofbeldis á heimaslóðum. Svo er þó ekki alltaf. Margir hrekjast að heiman vegna óréttlætis sem rekja má til yfirgangs, hernaðarbrölts eða arðráns Vesturlandabúa. Hvort heldur sem er felst siðferðileg skylda okkar sem fullvalda þjóðar í að rétta fólki á flótta hjálparhönd og sýna því virðingu.

Sagan um miskunnsama Samverjann kallar á samstöðu með öllum sem standa höllum fæti. Sem fullvalda, kristin þjóð eigum að taka afdráttarlausa stöðu með þeim og reynast þeim sem bræður og systur. Að vera kristinn er að reynast útlendingnum, hælisleitendum og flóttafólki sannur náungi.

Við mótmælum!

Okkur sem þetta rita rennur til rifja að samfélag okkar skuli ekki sýna meiri gestrisni, örlæti, kærleika og miskunnsemi en raun ber vitni. Við viljum tilheyra þjóð sem virðir mannhelgi og sýnir þeim sem standa höllum fæti kærleika í verki. Aðeins þegar við mætum hælisleitendum og flóttafólki sem væri það okkar nánustu grannar en ekki fjarlægir útlendingar getum við samþykkt að samfélag okkar sé sanngjarnt og réttlátt.

Við lýsum okkur í meginatriðum andvíg „afgreiðslum“ Útlendingastofnunar en þær felast í að vísa fólki úr landi án þess mál þeirra hljóti efnislegra meðferð. Slíkt sæmir ekki fullvalda ríki. Sögunni af Samverjanum var beint gegn lögvitringi sem taldi sig réttlátan en varð uppvís að sjálfsupphafningu. Lögvitringar Útlendingastofnunar eiga að hætta að senda fólk úr landi í skálkaskjóli Dyflinnareglugerðarinnar![/cs_text]

 
[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000491

118000492

118000493

118000494

118000495

118000496

118000497

118000498

118000499

118000500

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

128000546

128000547

128000548

128000549

128000550

128000551

128000552

128000553

128000554

128000555

128000556

128000557

128000558

128000559

128000560

128000561

128000562

128000563

128000564

128000565

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

158000326

158000327

158000328

158000329

158000330

158000331

158000332

158000333

158000334

158000335

158000336

158000337

158000338

158000339

158000340

158000341

158000342

158000343

158000344

158000345

178000746

178000747

178000748

178000749

178000750

178000751

178000752

178000753

178000754

178000755

178000756

178000757

178000758

178000759

178000760

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000206

208000207

208000208

208000209

208000210

208000211

208000212

208000213

208000215

208000216

208000218

208000219

208000220

208000221

208000222

208000223

208000224

208000225

208000226

208000227

208000228

208000229

208000230

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000237

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000255

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

news-1701