Þjóðlagasamspil í tveimur húsum

[cs_text]„Eitt það fallegasta sem ég veit er þegar fólk kemur saman til að spila. Tónlist er svo félagsleg og hún er líka almannaeign,“ segir Linus Orri Gunnarsson Cederborg. Hann er einn þeirra sem mætir með hljóðfæri á hverju þriðjudagskvöldi á krána Drunk Rabbit í Austurstræti og spilar þar þjóðlagatónlist um stund með félögum sínum. Hann stendur einnig ásamt öðrum fyrir hljóðfærakennslu í húsinu „Andrými“ við Bergþórugötu í Reykjavík. Þar gefst fólki kostur á að brúa bilið frá því að geta lítið spilað og yfir í að spila með öðrum á Drunk Rabbit.

Samspil á Drukknu kanínunni

Linus Orri segir að samspil á þjóðlagatónlist í Reykjavík hafi verið til í einhverri mynd í 17 ár með hléum. „Þetta voru í mesta lagi mánaðarlegar samkomur en oft var ekkert spilað í marga mánuði. En fyrir tveimur og hálfu ári tókum við Jamie McQuilkin við keflinu og ákváðum að eina vitið væri að hafa þetta vikulega. Við byrjuðum á Ölsmiðjunni en færðum okkur á Drunk Rabbit fyrir hálfu ári. Nú hefur myndast kjarnahópur í kringum þetta sem sér um að boða til spilamennskunnar. Við erum með Facebook-hóp, Reykjavík Trad Sessions, þar sem við auglýsum samspilið.“ Öllum er hins vegar velkomið að slást í hópinn með sitt hljóðfæri.

Spilað eftir eyranu

Á sunnudögum kemur saman annar hópur fólks í gulu húsi við Bergþórugötu í Reykjavík og fikrar sig áfram við að spila saman þjóðlagatónlist. Húsið kalla þeir sem það sækja „Andrými“. Hljóðfæraleikararnir eru meðal margra hópa sem þar hafa fundið samastað fyrir málefni sem þeir brenna fyrir. Þeir þurfa ekki að kunna á hljóðfæri og jafnvel ekki að mæta með hljóðfæri, þótt það sé betra. „Það er mikið lagt upp úr því í þjóðlagatónlistinni að spila eftir eyranu,“ segir Linus Orri. „Oft ganga laglínurnar og forspilið milli hljóðfæranna og það má spinna eins og hver vill. Til þess þarf dálítið þjálfað eyra og það er það sem við erum að gera í „Andrými“, að þjálfa eyrað og sjálfstraustið svo hljóðfæraleikarar geti farið að spila með okkur á Drunk Rabbit eða bara hvar sem er.“

Linus Orri. Mynd: Auður Styrkársdóttir.
Vettvangur fyrir alla

Fjöldi þátttakenda er misjafn eða allt frá einum og upp í 10-15 manns. Æfingarnar eru auglýstar á Facebook- og heimasíðu „Andrýmis“ en hafa líka spurst út meðal áhugasamra.

„Fólk er oft heima að spila eitthvað á hljóðfærið sitt, eitt með sjálfu sér, því það geta ekki allir verið í hljómsveit, hafa kannski ekki áhuga á því heldur,“ segir Linus Orri. „Margir sem eru kannski með margra ára tónlistarnám að baki geta ekki spilað með öðrum, eiga erfitt með það og kunna það ekki. Hér er skapaður vettvangur til að hittast og þróa þetta áfram, bæði að spila með öðrum og að spila eftir eyranu, hvort heldur fólk kann eitthvað eða ekkert. Svo þegar fólk er tilbúið er hægt að mæta á þriðjudagskvöldum á krána Drunk Rabbit og spila með.“

Hljóðfæraleikararnir í „Andrými“ koma með gítara, mandólín, ukulele, klarinett, flautur og raunar hvaða hljóðfæri sem hægt er með góðu móti að flytja milli húsa. Nokkrir skiptast á að fara yfir þau lög sem tekin eru fyrir hverju sinni, bæði laglínuna og hljómana í laginu. Tilsögnin miðast við byrjendur en þó er gott að kunna einhver skil á hljómaganginum á sínu hljóðfæri. Farið er yfir tvö til þrjú lög á hverjum sunnudegi. Oftast verða írsk þjóðlög fyrir valinu en einnig bregður oft fyrir sænskum og pólskum lögum.

Stóri draumurinn

„Ég er sjálfmenntaður í tónlist,“segir Linus Orri sem spilar á gítar, mandólín og írska þverflautu og er meðal þeirra sem veita tilsögn á sunnudagskvöldum. „Foreldrar mínir eru báðir tónlistarkennarar þannig að ég er alinn upp við tónlist en ég entist aldrei í neinu námi. Ég lærði þó sjálfur á gítar þegar ég var 15 ára og gaf út plötu 2014 sem heitir Songs From Your Collarbone með hljómsveitinni Myndra.“

En hvaðan kemur áhugi hans á þjóðlagatónlist? „Ég kem svolítið á ská inn í þetta,“ segir hann. „Í gegnum harðkjarnasenuna hérna kynntist ég stefnu sem heitir „folk punk“. Pönk-partinn skildi ég en þjóðlagaþátturinn vafðist fyrir mér. Ég fílaði hugmyndirnar en fann aldrei tónlist sem ég virkilega tengdi við. Mér hafði áskotnast mandólín sem ég vildi læra að spila á en vantaði eitthvað samhengi. Ég mætti með það á samspilskvöld þótt ég kynni ekkert á það og sat bara og hlustaði og spjallaði. Svo fór ég heim og lærði eitt lag og mætti næst og reyndi að spila með. Ég spurðist fyrir um hvaða fleiri lög ég ætti að læra og það að mæta og spila með fólki hélt mér við efnið.“

Linus Orri á sér þann draum að þessi vettvangur fyrir menntaða og sjálfmenntaða hljóðfæraleikara stækki og dafni og nái til fleiri Íslendinga. Til þess þarf hins vegar sameiginlegan arf. „Ég legg til að það verði íslensk alþýðutónlist,“ segir þessi 28 ára gamli, einstæði faðir og húsasmíðanemi sem lifir og hrærist í þjóðlagahefðinni og vill að sem flestir upplifi gleðina sem felst í því að spila á hljóðfæri með öðrum.

Aðalmynd: Vincent og Linus. Mynd: Auður Styrkársdóttir.

Þessi umfjöllun var hluti af verkefnavinnu í námskeiðinu „Loksins, loksins: Vinnustofa í menningarblaðamennsku“ á vorönn 2018.[/cs_text]

Um höfundinn
Auður Styrkársdóttir

Auður Styrkársdóttir

Auður Styrkársdóttir er nemi í ritlist við Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1112

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

10221

10222

10223

10224

10225

10226

10227

10228

10229

10230

11000

11001

11002

11003

11004

11005

11006

11007

11008

11009

12001

12002

12003

12004

12005

12006

12007

12008

12009

12010

20001

20002

20003

20004

20005

20006

20007

20008

20009

20010

10231

10232

10233

10234

10235

10236

10237

10238

10239

10240

11010

11011

11012

11013

11014

11015

11016

11017

11018

11019

12011

12012

12013

12014

12015

12016

12017

12018

12019

12020

20011

20012

20013

20014

20015

20016

20017

20018

20019

20020

10126

10127

10128

10129

10130

10206

10207

10208

10209

10210

10211

10212

10213

10214

10215

10216

10217

10218

10219

10220

11020

11021

11022

11023

11024

11025

11026

11027

11028

11029

11030

11031

11032

11033

11034

12021

12022

12023

12024

12025

12026

12027

12028

12029

12030

12031

12032

12033

12034

12035

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

9041

9042

9043

9044

9045

10196

10197

10198

10199

10200

10201

10202

10203

10204

10205

11035

11036

11037

11038

11039

11040

11041

11042

11043

11044

10146

10147

10148

10149

10150

10181

10182

10183

10184

10185

10186

10187

10188

10189

10190

10191

10192

10193

10194

10195

11045

11046

11047

11048

11049

11050

11051

11052

11053

11054

11055

11056

11057

11058

11059

12036

12037

12038

12039

12040

12041

12042

12043

12044

12045

12046

12047

12048

12049

12050

20036

20037

20038

20039

20040

20041

20042

20043

20044

20045

20046

20047

20048

20049

20050

10161

10162

10163

10164

10165

10166

10167

10168

10169

10170

10171

10172

10173

10174

10175

10176

10177

10178

10179

10180

11060

11061

11062

11063

11064

11065

11066

11067

11068

11069

11070

11071

11072

11073

11074

12051

12052

12053

12054

12055

12056

12057

12058

12059

12060

20051

20052

20053

20054

20055

10086

10087

10088

10089

10090

10091

10092

10093

10094

10095

10096

10097

10098

10099

10100

11000

11001

11002

11003

11004

11005

11006

11007

11008

11009

20056

20057

20058

20059

20060

20061

20062

20063

20064

20065

news-1112