Að dansa með því að kinka kolli

[cs_text]Í Þýskalandi hef ég farið á Wacken Open Air sem er stærsta þungarokkshátíð í heimi. Ég hef farið á Deichbrand þar sem 18.000 manns njóta tónlistar saman. Ég hef líka farið á Rock Unter den Eichen þar sem nokkur hundruð manns koma saman til að hlusta á bæði erlend og innlend bönd. Enn fremur hef ég mætt á fjölmarga tónleika af ýmsum gerðum. Með þessa reynslu að baki hef ég líka sótt ýmsar tónlistarhátíðir á Íslandi, þar á meðal Eistnaflug, Oration, Secret Solstice og Norðanpaunk, auk fjölda stakra tónleika. Þó að tónlistin og hljómsveitirnar hafi verið skemmtilegar og mjög áhugaverðar, bæði í Þýskalandi og á Íslandi, finn ég fyrir miklum mun á milli þessara tveggja tónlistarheima.

Hljómsveitin Hórmónar á tónleikum. Mynd: Phil Uwe Widiger.
Það er bara eitt sem vantar

Þegar ég fór í fyrsta skipti á stóra tónlistarhátíð var það eins og komast inn í sjálft himnaríki – ég var í kringum fólk sem kunni að meta nákvæmlega sömu tónlist og ég. Hljómsveitir sem virtust ósnertanlegar spiluðu beint fyrir framan mig. Tónlistin hlóð mig eins og rafmagn hleður rafhlöðu. Áður en ég vissi hvað væri að gerast var ég kominn í „mosh-pit“. Þið vitið, hóp af fólki sem hoppar á hvert annað, hleypur á hvert annað bara út af orkunni sem það fær út úr tónleikunum. Þetta er ekki eina dæmið um sérstakan dans sem er innblásinn af rokktónlist. Eins mætta nefna „pogo“ (sem felst í því að líkja eftir skoppandi gormi) og „headbanging“ (sem á íslensku kallast að slamma). Einu sinni fór ég á þýska popp-pönk tónleika og áheyrendurnir þar tóku upp á því að „mosh-a“ – bara miklu hægar en almennt er gert. Það skipti ekki máli á hvaða tónleika ég fór í Þýskalandi, fólk var alltaf að hreyfa sig í takt við tónlistina.

En svo kom ég til Íslands.

Íslenski tónlistarheimurinn er stór og lítill á sama tíma. Hér eru óendanlega margar góðar hljómsveitir og maður hefur tækifæri til að sjá eins margar þeirra og maður vill, oft án þess að þurfa að borga háan aðgangseyri. Það er ekki möguleiki fyrir mig að segja til um hversu marga ótrúlega tónleika ég hef sótt hér. En þó er eitt sem vantar – og það er dansinn.

Íslenski leirherinn

Að kinka kolli er íslenski þungarokksdansinn. Það er sama hversu orkumikil tónlistin er, það er sama hversu mikið tónlistarmennirnir leggja í sviðsframkomuna, oftast sjá þeir bara fólk kinka kolli. Upp og niður. Í takt. En ekki of lengi. Mér fannst þetta í fyrstu ótrúlegt. Íslendingar hreyfðu sig hreinlega ekkert á tónleikum. Aðeins örfá bönd hafa náð að fá fólk til að slamma – nýlegustu dæmin sem ég man eftir eru Dead Herring, Hórmónar og Godchilla (samt bara í svona fimm mínútur). Nú spyr ég sjálfan mig: af hverju er þetta svona? Tónleikarnir byrja oftast ekki fyrr en kl. 22 eða 23, þá eru flestir gestirnir búnir að drekka nokkra bjóra en samt standa þeir grafkyrrir, eins og leirherinn í Kína. Af hverju? Er það af því að það er svo kalt á Íslandi að allir eru orðnir frosnir þegar tónleikarnir byrja? Fóru þeir aðeins of oft í ísbíltúr? Eða er málið að Íslendingar eru sagðir feimnir?

Tónleikagestir. Mynd: Phil Uwe Widiger.

Manneskja sem hefur mikla reynslu af því að skipuleggja þungarokkstónleika hér á landi sagði mér að Íslendingar kynnu oft ekki að haga sér í „mosh-pit“ þegar að því kæmi. Það gæti jafnvel reynst hættulegt. Kannski er þetta bara eitthvað sem er of nýtt fyrir Íslendinga. Kannski þykir þeim það ónauðsynlegt. Þegar maður fer hins vegar á staði eins og Kiki eða Paloma á laugardagskvöldi, jafnvel Húrra þegar einhver plötusnúður er að spila, sér maður fólk að dansa, það hreyfir sig í takt við tónlistina. Af hverju gerist þetta ekki á þungarokkstónleikum? Þykir það kannski kurteisi að standa kyrr og hlusta? Að mínu mati er „dansinn“ leið til að sýna hljómsveitunum að þær séu að standa sig vel, að þær séu að ná tilfinningum fólks. Er tónlistin hér mögulega svo leiðinleg að hún nái því ekki? Ég held ekki.

Hver sem ástæðan er þá hvet ég ykkur, ykkur sem hafið gaman af því að hreyfa ykkur, að vera öðrum fyrirmynd. Sýnum böndunum að þau séu að standa sig vel. Að þau hafi andleg áhrif á okkur og að við viljum tjá þessi áhrif líkamlega. Slömmum saman. Njótum orkunnar saman. Upplifum saman.

Dönsum saman.

 

Aðalmynd með færslu: Hljómsveitin Great Grief á tónleikum. Mynd: Phil Uwe Widiger.

Þessi umfjöllun var hluti af verkefnavinnu í námskeiðinu „Loksins, loksins: Vinnustofa í menningarblaðamennsku“ á vorönn 2018.[/cs_text]

Um höfundinn
Phil Uwe Widiger

Phil Uwe Widiger

Phil Uwe Widiger er meistaranemi í blaða- og fréttamennsku.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

118000556

118000557

118000558

118000559

118000560

118000561

118000562

118000563

118000564

118000565

118000566

118000567

118000568

118000569

118000570

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

128000621

128000622

128000623

128000624

128000625

128000626

128000627

128000628

128000629

128000630

128000631

128000632

128000633

128000634

128000635

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

208000296

208000297

208000298

208000299

208000300

208000301

208000302

208000303

208000304

208000305

208000306

208000307

208000308

208000309

208000310

news-1701