Leitin að fegurstu orðunum

[container]

Um höfundinn

Ástráður Eysteinsson

Ástráður Eysteinsson tók við starfi forseta Hugvísindasviðs Háskóla Íslands árið 2008. Hann er prófessor í almennri bókmenntafræði og hefur verið gistiprófessor við erlenda háskóla og verið virkur í alþjóðlegri rannsóknasamvinnu. Sjá nánar

Íbúar þessa lands eru alvanir því að ráðist sé í söfnunarátak af ýmsu tagi. Undanfarið hefur Hugvísindasvið Háskóla Íslands safnað orðum í samstarfi við Ríkisútvarpið. Í dagslok 22. október rennur út frestur til að taka þátt í leitinni að fegurstu orðum íslenskrar tungu.

Við sem höfum unnið að orðasöfnuninni fögnum þeim áhuga sem hún hefur mætt. Það er mikilvægt að fá það staðfest að tungumálið er ekki aðeins talið vera sjálfvirkur samskiptamiðill, heldur hefur fólk raunverulegan áhuga á ríkidæmi málsins, blæbrigðum í merkingu og notkun orða og hinum margbreytilegu tengslum málsins við bæði hugarheim okkar og umhverfi nær og fjær.

Hvar sem ég hef komið síðustu vikur hef ég lent í skemmtilegum samræðum um tungumálið. Sumir hafa bent á að ekki sé hægt að finna neitt eitt orð sem talist getur öðrum fegurra. Þetta vissi hópurinn sem skipulagði orðaleitina en ákvað samt í upphafi að vera ekki feiminn við fegurðarhugtakið. Fegurð orða er vitaskuld afstæð, rétt eins og gildi þeirra almennt. Sumir hlusta eftir hljómfegurð orða eða bregðast við myndauðgi þeirra, aðrir leggja megináherslu á merkingargildið. „Hjálmkvikur“ er eitt eftirminnilegra orða úr Hómersþýðingum Sveinbjarnar Egilssonar, en sumum kann að þykja gildi orðsins nátengt hernaði. Fegurð orða verður í hugum margra ekki greind frá væntumþykju. Í vissum orðum búa hugrenningatengsl aftur til bernskuára, tengsl við nákomið fólk, nákomna staði eða hugstætt lesefni. Öðrum verður fyrst hugsað til leikgleði tungumálsins, hvernig orðin geta verið tvíræð eða skondin á einhvern hátt og lífga þannig upp á vitund okkar.

Orðasöfnunin er öðrum þræði leikur, því við vonum að sem flestir hafi gaman af því að velta orðum fyrir sér og velja orð til að senda inn. Það getur verið hvaða orð sem er: heiti, nafnorð, sagnorð, lýsingarorð, smáorð, upphrópanir, tökuorð, slangurorð. Og við viljum fá tillögur frá öllum aldurshópum og úr öllum starfsstéttum, hvarvetna af landinu og einnig frá fólki erlendis sem skilur íslensku, sem og því erlenda fólki sem sest hefur að á Íslandi og hefur lært eða er að læra þetta tungumál.

Við biðjum fólk að senda okkur orð en jafnframt að greina stuttlega frá ástæðu þess að orðið varð fyrir valinu. Þetta þarf ekki að vera beinlínis rökstuðningur heldur stutt lýsing á gildi orðsins fyrir einstaklinginn. Vægi orðasöfnunarinnar felst ekki síst í þessu. Með nægilegri þátttöku munu fræðimenn á sviði málfræði, bókmennta og annarra greina fá dýrmætan vitnisburð um viðhorf til tungumálsins og orðaforðans; um margvísleg tengsl mannlífs, umhverfis, hugsunar og tungumáls.

Við getum ekki annað en glaðst yfir viðbrögðunum hingað til. Þegar þetta er skrifað hafa borist sex þúsund tillögur inn á heimasíðuna fegurstaordid.hi.is. Við vonumst til að fá fjölda tillagna í viðbót á lokasprettinum.

Sjö manna starfshópur mun velja tíu tillögur (orð og ástæður) í hverjum hinna þriggja aldursflokka og snemma í nóvember gefst almenningi kostur á að kjósa um þessar tillögur. Viðurkenningar verða síðan bækur á íslensku og ferðir um landið. Sá orðaforði sem safnast mun síðar nýtast fræðimönnum og nemendum en jafnframt er stefnt að því að taka fljótlega saman sérstaka bók byggða á þessari leit að fegurstu orðum íslenskrar tungu.

Deila


[/container]


Comments

One response to “Leitin að fegurstu orðunum”

  1. Guðbjörg Helgadóttir Avatar
    Guðbjörg Helgadóttir

    Mannhelgi og drengskapur eru fallegustu orðin í íslensku að mínu mati.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

news-1701