[container]

Í þætti Rásar 1, Málstofunni, fjalla fræðimenn við Háskóla Íslands um íslenskt mál og segja frá eigin athugunum og rannsóknum. Meðal efnis er málfar líðandi stundar, mál og kyn, máltækni, máltaka barna, tónfall, málsaga og orðsifjafræði, íslenska táknmálið, samtalsgreining, mállýskur og ýmis tilbrigði og nýjungar í máli.
Umsjón: Gunnar Stefánsson og Ásgrímur Angantýsson.


11. janúar 2011
Á seinustu árum hafa skilyrði til margvíslegra málrannsókna gerbreyst vegna tilkomu stórra rafrænna textasafna af ýmsu tagi. Í þættinum verður sagt frá könnunum á tíðni orða í íslensku, bæði í ritmáli og talmáli. Einnig verður fjallað um mismunandi viðhorf til þeirra upplýsinga sem vinna má úr textasöfnum, og rætt um það hvort slík söfn geti svarað öllum spurningum um hvað til sé í málinu og hvað ekki.

Umsjón: Eiríkur Rögnvaldsson.
Hljóðskrá: 2011.01.11.mp3 (14.0 MB)

4. janúar 2011
Hvernig stendur á því að ósjálfbjarga börn ná að tileinka sér flókna málfræði móðurmáls síns á sama aldri og þau geta til dæmis ekki hnýtt skóreimarnar sínar? Lítil börn ná valdi á móðurmáli sínu svo til sjálfkrafa og án áreynslu. Til samanburðar má nefna að fullorðið fólk er mjög lengi að læra erlent mál og fæstir ná sama árangri og börnin þó þeir leggi hart að sér. Í erindinu verður fjallað um líffræðilegar forsendur máltöku og hvernig máltaka barna fer fram í grófum dráttum.

Umsjón: Sigríður Sigurjónsdóttir.
Hljóðskrá: 2011.01.04.mp3 (14.8 MB)
28. desember 2010
Söngur punktsins og kommunnar. Kristján Árnason ræðir um samband talmáls og ritmáls, hrynjandi, tónfall og lestrarlag. Umsjón: Kristján Árnason.
Hljóðskrá: 2010.12.28.mp3 (16.6 MB)

21. desember 2010
Fjallað verður um nokkur frumatriði sem varða tungumálið almennt en tengjast einnig afstöðu manna til móðurmálsins.
Umsjón: Magnús Snædal.
Hljóðskrá: 2010.12.21.mp3 (13.7 MB)
14. desember 2010
Þegar málfræðingar eru spurðir hvort íslenska megi ekki breytast neitt svara þeir stundum þannig að öll tungumál taki breytingum. Engar tvær kynslóðir og engir tveir menn tala nákvæmlega eins, og sami einstaklingur talar ekki alveg eins alla ævina eða við allar aðstæður. En handan við allan þennan breytileika er manngerður málstaðall, forskriftin að góðri íslensku. Í þættinum verður rætt um það hvernig staðallinn varð til, hvers eðlis hann er og hvers vegna við þurfum á honum að halda.
Umsjón: Guðrún Þórhallsdóttir.
Hljóðskrá: 2010.12.14.mp3 (14.0 MB)
7. desember 2010
Íslenskt mál og málfræði verður í brennidepli á alþjóðlegri ráðstefnu í Þýskalandi í febrúar 2011. Þar fjallar hópur sérfræðinga, íslenskra og erlendra, um álitaefni í íslenskri málfræði út frá ólíkum sjónarmiðum. Í erindinu verður sagt frá þessari íslenskukynningu og stiklað á stóru um atriði í íslenskri málfræði sem vekja áhuga alþjóðasamfélags málvísindamanna. Mörg fyrirbæri í íslensku þykja óvenjuleg, jafnvel einstæð í tungumálum heims, en spurningin er hvort sú skoðun á við rök að styðjast. Hvað sem öðru líður er ljóst að íslenska ekki bara heimamál Íslendinga heldur líka rannsóknarefni fræðimanna um allan heim ? og í þeim skilningi heimsmál.
Umsjón: Þórhallur Eyþórsson.
Hljóðskrá: 2010.12.07.mp3 (14.5 MB)
30. nóvember 2010
Í erindinu verður fjallað um mun ritaðs máls og talaðs og breytilega málnotkun innan hvors miðils. Talað mál er fyrst og fremst notað í gagnkvæmum samskiptum fólks, í samtölum, þar sem tveir eða fleiri skiptast á orðinu. Rætt verður um hvaða vísbendingar eru í tungumálinu um hvenær skiptingar geta átt stað sem og um hlutverk ýmiss konar merkingarlítilla smáyrða í samtölum.
Umsjón: Þóra Björk Hjartardóttir
Hljóðskrá: 2010.11.30.mp3 (14.4 MB)
16. nóvember 2010
Í erindinu verður fjallað um íslenskt mállýskueinkenni sem kallast skaftfellskur einhljóðaframburður. Hann einkennist af því að fyrra atkvæði orðmynda eins og hagi, bogi og hugi endar á löngu einhljóði en ekki tvíhljóði eins og í venjulegum framburði. Hugað verður að aldri þessara framburðareinkenna. Í því sambandi verður rætt um hljóðdvalarbreytinguna svokölluðu sem markar skörp skil á milli fornmáls og nýmáls.
Umsjón: Jón Axel Harðarson.
Hljóðskrá: 2010.11.16.mp3 (12.5 MB)
9. nóvember 2010
Beygingarkerfi íslenskrar tungu er að miklu leyti óbreytt frá því sem var í fornu máli. Þó hefur sumt breyst, og þ.á m. er beyging miðstigs lýsingarorða, orðmynda eins og t.d. betri eða stærri. Í þættinum verður rætt um varðveislu fornrar miðstigsbeygingar með tveimur merkingarflokkum nafnorða en það eru örnefni og orð yfir líkamshluta. Það sýnir forna beygingu miðstigsins þegar t.d. er talað um bóndann á Syðra-Hóli eða þegar sagt er frá því knattspyrnuhetjan hafi slasast á hægra fæti.
Umsjón: Margrét Jónsdóttir.
Hljóðskrá: 2010.11.09.mp3 (14.6 MB)
2. nóvember 2010
Orðið “máltækni” vísar til margs konar samtvinnunar tungumáls og tölvutækni. Í erindinu er gerð grein fyrir tveimur hliðum þessarar samvinnu; notkun tölvutækninnar í þágu tungumálsins og notkun tungumálsins í þágu tölvutækninnar. Þá verður sagt frá uppbyggingu íslenskrar máltækni undanfarinn áratug og þeim máltæknibúnaði sem til er fyrir íslensku. Að lokum verður rætt um þýðingu máltækninnar fyrir íslenska málstefnu og framtíð íslenskrar tungu.
Umsjón: Eiríkur Rögnvaldsson.
Hljóðskrá: 2010.11.02.mp3 (14.4 MB)
26. október 2010
Íslenska táknmálið hefur málfræði sem er gjörólík málfræði íslenskunnar. Í erindinu verður fjallað um myndun tákna í íslenska táknmálinu og nokkur grundvallarmálfræðiatriði táknmála kynnt. Þá verður rætt um þá ranghugmynd að táknmál sé alþjóðlegt en sú hugmynd virðist lifa þrátt fyrir áratuga rannsóknir á táknmálum.
Umsjón: Rannveig Sverrisdóttir
Hljóðskrá: 2010.10.26.mp3 (12.4 MB)
19. október 2010
Algengt er að börn og unglingar segi setningar eins og: „Það var hrint mér í skólanum“ og „Svo var bara valið mig.“ Eldra fólki finnst þessar setningar yfirleitt óeðlilegar og myndi frekar segja: „Mér var hrint í skólanum“ og „Svo var ég bara valin(n).“ Í erindinu verður fjallað um niðurstöður rannsókna á útbreiðslu, eðli og upptökum þessarar nýjungar í málinu.
Hljóðskrá: 2010.10.19.mp3 (14.2 MB)

12. október 2010
Í þessum pistli verður fjallað um eðli tungumála almennt, bæði raddmála og táknmála, og hvernig hægt er að rannsaka tungumál út frá ólíkum grundvallarforsendum.
Umsjón: Jóhannes Gísli Jónsson.
Hljóðskrá: 2010.10.12.mp3 (13.1 MB)
5. október 2010
Jón G. Friðjónsson er prófessor í íslenskri málfræði við H.Í. Helstu rannsóknir hans eru á sviði orðfræði og sögulegrar setningafræði en á síðustu árum hefur hann einkum unnið að rannsóknum á uppruna og notkun málshátta í íslensku. Eftir hann liggja ýmsar fræðigreinar og rit, m.a. bækurnar Rætur málsins og Mergur málsins. Hin síðarnefnda hlaut Íslensku bókmenntaverlaunin í flokki fræðirita er hún kom fyrst út árið 1993.
Hljóðskrá: 2010.10.05.mp3 (13.7 MB)
28. september 2010
Í erindinu verður fjallað um fyrirbærið kyn í íslensku máli og hvernig það kemur fram í myndun íslenskra setninga og orðaforða um karla og konur. Rætt verður um ástæður þess að Íslendingar segja: “Allir velkomnir,” þegar bæði konum og körlum er boðið, og að mörg hversdagsleg orð um bæði kynin, t.d. orðið ‘gestur’, skuli vera karlkynsorð. Einnig verður sagt frá andófi við því að íslenska er þannig gerð.
Hljóðskrá: 2010.09.28.mp3 (13.7 MB)
21. september 2010
Í erindinu verður sagt frá rannsóknum á tilbrigðum og nýjungum í íslensku á ýmsum tímum. Þar eru rannsóknir á framburðarmállýskum þekktastar, en einnig verður sagt frá nýrri athugunum á tilbrigðum í setningagerð. Rætt verður um ólíka afstöðu til slíkra tilbrigða og þá opinberu stefnu sem birtist  í námskrám fyrir grunnskóla.
Umsjón: Höskuldur Þráinsson.
Hljóðskrá: 2010.09.21.mp3 (14.7 MB)
 [/container]
news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

news-1701