Fáránlega gaman að taka þátt í íslensku tónlistarlífi

[cs_text]

Páll Ragnar Pálsson tónskáld tekur á móti mér á heimili sínu á Óðinsgötu bjartan og stilltan vormorgun í mars. Tilefnið er afhending Íslensku tónlistarverðlaunanna en Páll Ragnar er tilnefndur í tveimur flokkum innan sígildrar og samtímatónlistar; annars vegar fyrir plötu ársins Nostalgiu, sem er hans fyrsta portrettplata sem tónskáld, og hins vegar fyrir tónverk ársins, sellókonsertinn Quake. Ég byrja á að óska honum til hamingju með tilnefningarnar og fæ hann til að segja mér upp og ofan af lífi sínu og list og námsárunum í Eistlandi. Saman skyggnumst við frá ýmsum sjónarhornum inn í íslenskt tónlistarlíf, en Páll Ragnar var um árabil gítarleikari rokkhljómsveitarinnar Maus og starfar nú sem tónskáld og aðjúnkt við tónlistardeild Listaháskóla Íslands.

Páll Ragnar Pálsson. Mynd: Facebook-síða Maus.

En hvaða þýðingu ætli það hafi fyrir Pál Ragnar að vera tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna? „Það er gott að vita til þess að dómnefnd hafi farið í gegnum það sem var að gerast á árinu og komist að þeirri niðurstöðu að þetta eigi heima í tilnefningum. Þetta er smá klapp á bakið og manni þykir auðvitað vænt um það.“

Páll Ragnar kveðst vera fyrsti Íslendingurinn sem fór til Eistlands í tónlistarnám en þeir hafi verið nokkrir síðan. Hann segir þá ákvörðun um margt óvenjulega, en þangað hafi örlögin leitt hann á breytingatímum í lífi hans. „Þetta snerist mikið um að fara út úr þægindarammanum, ögra mér, fara út úr hefðbundinni leið námsmanna,“ lýsir hann fyrir mér. Hann sótti nám hjá tónsmíðakennaranum Helenu Tulve sem átti eftir að hafa mikil áhrif á hann.Ég áttaði mig snemma á því að ég var á rétta staðnum. Fljótlega kynntist ég konunni minni þar, þannig að allt, bæði listrænt og persónulegt, breyttist á stuttum tíma,“ útskýrir Páll Ragnar og heldur áfram: „Ég sökkti mér algjörlega ofan í námið og tónlistarlífið þar og hellti mér í þennan menningarheim. Þetta breytti öllu fyrir mig. Ég fann einhverja fagurfræði og viðhorf til tónlistarinnar sem ég tengdi við og lærði af. Ég kom auðvitað með einhvern farangur með mér út, en þarna kom fókuspunkturinn.“

Abstrakt alla leið

Hvernig myndi Páll Ragnar sjálfur lýsa tónlistinni sinni? „Hún er línulaga; línulaga frásögn sem snýst öll um línulegt, organískt ferli. Við mannfólkið og allar lifandi verur eru aldrei alveg kyrrar. Við erum alltaf á hreyfingu, hvort sem hreyfingin er líkamleg eða andleg. Þetta er eitthvað sem ég tengi mikið við í tónlist, spenna eða andrúmsloft sem rís og dvínar á víxl í tímalínu.“ Hann segist venjulega notast við mjög afmarkað efni en jafnframt vinna mjög mikið úr því og teygja það eins langt og hann geti. Þá kveðst hann hugsa um þetta sem ferðalag, tónlist sem ferðast frá vinstri til hægri eins og í gamalli miðaldatónlist og í þessu ferli fari tónlistin í gegnum umbreytingar. „Ég hugsa mikið um liti og áferð“ segir hann, „lítið um melódíur og ennþá minna um hljóma. Þetta er algjörlega abstrakt alla leið, draumkennt, einhver leiðsla. Formið á verkunum hefur þannig vísan að það eru meiri læti framan af og svo detta þau í leiðslu í lokin þegar nokkurs konar hreinsun hefur farið fram.“ Þegar ró er dottin yfir þá finnur hann að það er í lagi að loka verkinu. „Þessa sömu formhugmynd útfæri ég á mismunandi vegu. Þannig að ég tengi mikið við þessa listamenn sem sækja í sömu formin aftur og aftur. Þú getur lagt af stað í sama ferðalagið aftur og aftur en alltaf uppgötvað eitthvað nýtt á leiðinni.“

En er það ekki einmitt það sem listamaðurinn er að reyna, að finna sína rödd, rödd sem hann getur verið trúr? „Jú einmitt, ég er alltaf að reyna að finna þennan kassa. Það er alltaf verið að segja að maður eigi að fara út úr kassanum, en ég vil fyrst finna þennan kassa áður en ég fer út úr honum,“ segir Páll Ragnar kíminn. „Eins verður maður að fylgast með hinum listgreinunum til þess að halda huganum vakandi. Listirnar eru eins og greinar á sama trénu. Maður verður að geta hugsað myndrænt um tónlist og maður verður að geta hugsað um tónlist eins og texta. Ég sæki innblástur minn í allt annað en tónlist. Ég sæki í aðrar listir, náttúruna, samskipti við fólk, upplifun af lífinu. En svo er þetta meira spurning um praktíska útfærslu, það hvernig maður ætlar að spila eitthvað ákveðið.“

Djúpt samtal við flytjandann

En hvað skyldi Páli Ragnari vera efst í huga þegar hann semur; áheyrendur, flytjendur eða tónlistin sem hann vill koma frá sér? „Þetta helst allt í hendur. Þegar ég skrifa fyrir sólóista þá hugsa ég um hverja einustu nótu og ég hugsa þetta mikið út frá hljóðfærunum. Það er mikið samtal í gangi í gegnum þessar nótur, mikil sálfræði, nóturnar eru ekki bara ég að segja: „Spilaðu þetta!“ Ég upplifi þetta sem miklu dýpra samtal við flytjandann. Varðandi áhorfendur þá leik ég mér mikið með væntingar þeirra. Geri til dæmis ákveðna sjónræna hluti, hyl eitt hljóð með öðru þannig að það er ekki augljóst hvaðan hljóðið kemur.“ Hvað með viðtökurnar, hugsar tónskáldið um þær meðan hann semur? „Já, tvímælalaust. Það skiptir mig rosalega miklu máli hvað áhorfandanum finnst um tónlistina sem ég skrifa og mig langar til að gera tónlist sem fólk er hrifið af en það verður auðvitað að fara saman við mína fagurfræði. Þess vegna þykir manni líka vænt um að fá tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna.“

Útrásin rétt að byrja

Hvernig blasir íslenskt tónlistarlíf svo við í dag, hvað ætli sé fram undan? „Það er búið að vera fáránlega gaman að taka þátt í íslensku tónlistarlífi því maður finnur hvað þetta er sérstakt. Það hefur að sama skapi breyst rosalega mikið á þessum árum sem ég hef verið í tónlist. Þegar ég var að spila með Maus, sérstaklega framan af, þá var allt annað tónlistarlandslag heldur en eftir aldamótin. Þá varð þetta svo miklu alþjóðlegra og stuðningur við listalífið jókst. Það var miklu flóknara mál að fara út að túra í kringum aldamótin. Við hættum 2004 og þá er útrásin fyrst almennilega að fara í gang. En aftur á móti þá var rosalega gaman að vera til á þessum tíma og maður fann alltaf fyrir því að það var eitthvað sérstakt í gangi og eitthvað stórt að fara að gerast. Og það var mjög undirliggjandi tilfinning að eitthvað af þessum böndum sem voru að spila út um allt myndu ná árangri. Síðan gerist þetta á einni nóttu með Sigur Rós og þá sá maður: Já, það voru þeir! Og síðan heldur þetta áfram. Í dag er þetta miklu meiri iðnaður, miklu meiri fagmennska sem er bæði jákvæð og óumflýjanleg þróun. Við erum í miklu beinni díalóg við alþjóðlega tónlistarlífið nú orðið, líka hvað varðar stíla og stefnur.“

Við ræðum þessa blöndun í tónlist og hvernig bilið milli tónlistargeira er minna en um aldamótin. Páll Ragnar minnist jafnframt á það hvernig andrúmsloftið innan klassískari anga tónlistar á allra síðustu árum minni um margt á andrúmsloftið sem var um aldamótin í poppi og rokki. Útrásin er rétt hafin, að hans mati, tónskáld eins og Anna Þorvalds og Daníel Bjarnason hafa unnið stóra sigra og tónskáld fara í auknum mæli beint út í að vinna alþjóðlega. „Þannig að mér fannst ég eiginlega fara beint úr einum spennandi pottinum í annan, þetta var einhvers konar endurfæðing. Að vera á stað þar sem allt er að gerast og ekki orðið fullmótað eru kjöraðstæður fyrir alla listamenn. Það eru rosalega spennandi tímar núna. Eitt verkefni leiðir af sér annað og það er orka og áhugi til að gera hlutina.“

Hljómsveitin Maus

Þessi umfjöllun var hluti af verkefnavinnu í námskeiðinu „Loksins, loksins: Vinnustofa í menningarblaðamennsku“ á vorönn 2018.[/cs_text]

Um höfundinn
Hafdís Vigfúsdóttir

Hafdís Vigfúsdóttir

Hafdís Vigfúsdóttir er meistaranemi í hagnýtri menningarmiðlun.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701