Lærdómsritin: Minnisblöð Maltes Laurids Brigge

Hugvarp – hlaðvarp Hugvísindasviðs Háskóla Íslands og Hið íslenska bókmenntafélag standa saman að hlaðvarpinu Lærdómsrit þar sem fjallað er um einstök verk í þessari hálfrar aldar gömlu ritröð. Jón Ólafsson, prófessor við Hugvísindasvið og ritstjóri Lærdómsritanna, stýrir umræðum og fær til sín gesti sem ýmist fjalla um einstakar bækur, lesa úr verkunum eða ræða um efni sem tengjast einstökum ritum. Í þessum fyrsta þætti ræðir Jón við Svanhildi Óskarsdóttur og Benedikt Hjartarson um nýjustu bókina, Minnisblöð Maltes Laurids Brigge eftir Rainer Maria Rilke, en það er 100. verkið sem kemur út á vegum Lærdómsritanna. Benedikt þýddi ritið og skrifaði inngang og skýringar.

Um höfundinn
Hugrás

Hugrás

[fblike]

Deila