Konur sem kjósa: Aldarsaga

Út er komin bókin Konur sem kjósa: Aldarsaga í útgáfu Sögufélagsins. Bókin fjallar um íslenska kvenkjósendur í eina öld og er sjónum beint að einu kosningaári á hverju áratug þar sem fjallað er um kvennablöð og kvennaframboð, kvennafrí og kvennaverkföll, um baráttu kvenna fyrir hlutdeild í stjórn landsins og frelsi til að ráða menntun sinni og atvinnu, barneignum og ástarsamböndum. Áður ósagðar sögur kvenna njóta sín í lifandi texta og bókina prýðir fjöldi mynda af konum í leik og starfi.

Konur sem kjósa byggir á áralöngum rannsóknum og samvinnu fjögurra fræðimanna á sviði kvenna- og kynjasögu, stjórnmála- og menningarsögu, þeirra Erlu Huldu Halldórsdóttur, prófessors í sagnfræði við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands, Kristínar Svövu Tómasdóttur, sagnfræðings, skálds og ritstjóra, Ragnheiðar Kristjánsdóttur, prófessors í sagnfræði við Sagnfræði- og heimspekideild, og Þorgerðar H. Þorvaldsdóttur, sjálfstætt starfandi kynja- og sagnfræðings hjá ReykjavíkurAkademíunni. Þorgerður lést fyrr á þessu ári.

Nánari upplýsingar um bókina á vef Sögufélagsins.

Hlýða má á viðtal við þær Erlu, Kristínu og Ragnheiði í spilaranum hér að neðan.

Út er komin bókin Konur sem kjósa: Aldarsaga í útgáfu Sögufélagsins. Höfundar eru Erla Hulda Halldórsdóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, Ragnheiður Kristjánsdóttir og Þorgerður H. Þorvaldsdóttir.

Um höfundinn
Hugrás

Hugrás

[fblike]

Deila