Ég fór meira að segja í háskóla

PÁR Í TÍU ÁR: Dagana 15.–20. október halda nemendur í ritlist við Háskóla Íslands, fyrrverandi og núverandi, upp á það með ýmsu móti að tíu ár eru liðin frá því að ritlist varð að fullgildri námsgrein. Af því tilefni mun Hugrás birta daglega nýtt efni eftir höfunda sem stunda eða hafa stundað nám í ritlist við HÍ. Hér er einkum um að ræða brot úr væntanlegum eða nýútkomnum bókum. Að þessu sinni birtist myndasaga eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur en hún útskrifaðist með MA-gráðu í ritlist árið 2016. Lóa hefur m.a. sent frá sér myndasögubækurnar Lóaboratoríum og Lóaboratoríum: Nýjar rannsóknir hafa mögulega leitt eitthvað í ljós. Um myndina sem hér fylgir segir Lóa Hlín: „Hún er sjálfsmynd en ég komst að því eftir að ég birti myndina á síðunni minni að mörgum háskólamenntuðum líður nákvæmlega svona.

Um höfundinn
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir

Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir útskrifaðist með MA-gráðu í ritlist árið 2016.

[fblike]

Deila