Ritið:1/2013 – Minni og gleymska

Gestaritstjórar: Gunnþórunn Guðmundsdóttir og Daisy Neijmann.
Markmiðið í fyrsta hefti ársins 2013 er að varpa ljósi á hlutverk minnis og gleymsku á mismunandi sviðum. Orðræðan um minni og gleymsku er orðin gríðarlega mikilvæg. Eftir stríðsátök 20. aldarinnar, á tímum upplýsingatækninnar og fólksflutninga þurfum við að muna. En það vekur líka spurningu um hvað við kærum okkur um að muna og af hverju og hverju við kjósum helst að gleyma. Hvað verður um minni þjóðar eftir stríð, áföll eða kreppu; hvers konar úrvinnsla á fortíðinni á sér stað eða á sér ekki stað? Hvert er samband þjóðar við fortíð sína: lærir hún af henni, eða vill hún sælu algleymis svo sagan geti endurtekið sig? Þessar spurningar sýna að rannsóknir á minni og gleymsku eiga brýnt erindi við okkur í dag.

Í heftinu eru að finna sjö þemagreinar og fjalla þær m.a. um menningarlegt minni, minnismenningu Íslendinga, félagslegt minni og hlutverk bókmennta í þjóðarminni. Marion Lerner fjallar um vörður og ferðatexta, Kristín Loftsdóttir skoðar viðtökur á endurútgáfu Negrastrákanna og Jón Karl Helgason skrifar um varðveislu minninga þjóðaskálda. Irma Erlingsdóttir ræðir hið svokallaða blóðhneyksli í Frakklandi og Róbert H. Haraldsson fjallar um falskar eða tilbúnar minningar, Úlfar Bragason og Sverrir Jakobsson fjalla í sínum greinum um söguvitund og samspil minninga og sagnaritunar á miðöldum. Auk þeirra eru kafli um minnisvarða og helfararminni á fjölmiðlaöld eftir Andreas Huyssen í þýðingu Gunnþórunnar Guðmundsdóttur og myndaþáttur um minnismerki á Íslandi eftir Ketil Kristinsson. Loks spyr Eyja Margrét Brynjarsdóttir hvort heimspeki sé kvenfjandsamleg í grein sem fellur utan þema.

Gestaritstjórar þessa heftis eru Gunnþórunn Guðmundsdóttir og Daisy Neijmann, en aðalritstjórar Ritsins eru Eyja Margrét Brynjarsdóttir og Þröstur Helgason.

Kaflar og útdrættir
Inngangur:

Daisy Neijmann og Gunnþórunn GuðmundsdóttirAf minni og gleymsku

Þema: Minni og gleymska

Marion Lerner: Staðir og menningarlegt minni: „Um ferðalýsingar og vörður“
Útdráttur og lykilorð      Abstract and keywords

Róbert H. Haraldsson: Minningar sem félagslegur tilbúningur
Útdráttur og lykilorð      Abstract and keywords

Irma Erlingsdóttir: Af sviði fyrirgefningar: Um minningar, réttlæti og pólitík í túlkun Hélène Cixous á „blóðhneykslinu“ í Frakklandi“
Útdráttur og lykilorð      Abstract and keywords

Jón Karl Helgason: Stóri ódauðleikinn: Minningarmörk, borgaraleg trúarbrögð og bakjarlar menningarlegs minnis
Útdráttur og lykilorð      Abstract and keywords

Kristín Loftsdóttir: Endurútgáfa Negrastrákanna: Söguleg sérstaða Íslands, þjóðernishyggja og kynþáttafordómar
Útdráttur og lykilorð      Abstract and keywords

Úlfar BragasonArons saga: Minningar, mýtur og sagnaminni
Útdráttur og lykilorð      Abstract and keywords

Sverrir Jakobsson: Hin heilaga fortíð: Söguvitund og sameiginlegt minni í handritunum Hauksbók og AM 226 fol.
Útdráttur og lykilorð      Abstract and keywords

Myndaþáttur

Ketill Kristinsson: Eyrnamörk gleymskunnar: Nokkur orð um minnismerki og Minnismerki á Íslandi

Aðsend grein

Eyja Margrét Brynjarsdóttir: Er heimspekin kvenfjandsamleg?
Útdráttur og lykilorð      Abstract and keywords

Þýðing

Andreas Huyssen: Minnisvarðar og helfararminni á fjölmiðlaöld
(þýð. Gunnþórunn Gunnþórsdóttir)

[fblike]

Deila