Helga Arnalds er stofnandi leikhópsins Tíu fingur sem verður 20 ára á næsta ári. Hún er myndlistarmaður og brúðuleikari og hefur kallað til liðs við sig marga afburða listamenn gegnum tíðina og leikhús hennar fengið verðlaun og viðurkenningar. Tíu fingur sérhæfir sig í sjónrænu leikhúsi og sýningin Lífið er án orða. Þar er leikið er með ljós og skugga, lágmarks sviðsbúnað en mikla hreyfingu, leikgleði og hugmyndaauðgi.
Leikritið opnar eins og Völuspá á því að í upphafi var ekkert nema formleysi. Lífið fjallar síðan um það að gefa ómótuðu efni form. Í upphafi sjá börnin skugga á tjaldi þar sem tvær mannverur greina sig smám saman útúr ó-skapnaði og þessar mannverur uppgötva hvor aðra og byrja að byggja og búa, dýrin verða til á jörðinni, búin eru til samskipti, mannvirki, hvort tveggja brotið niður, tekist á en sæst heilum sáttum í lokin.
Börnin skemmtu sér konunglega (við líka) og sýningin vakti athygli þeirra og forvitni allan tímann. Það verður seint fullþakkað að til eru listamenn sem bjóða yngri börnum leikhússupplifun sem er valkostur við hraðann, hávaðann og íburðinn í stóru barnasýningunum. Börnin hlógu hjartanlega að átökum stráksins og stelpunnar, vatnsaustri og leik með moldina. Lítilli hefðarmeyju sem var með mér þótti nóg um leðjuslaginn, einkum af því að slettist örlítið á peysuna hennar en öll börnin fengu lítinn blómakassa með fræi í sem kveðjugjöf sem gerði mikla lukku.
Sýningin tekur 50 mínútur, hún er fyrir börn frá 4 ára aldri og ég mæli með henni.
Vroom Vroom Vroom: Platan sem tengir bílinn við manninn
25. apríl, 2018Viðtal við tónlistarmenninna Johnny Blaze & Hakka Brakes um plötu þeirra sem nýlega kom út á Spotify og hugsunina sem liggur að baki henni.Akkilesarhæll íslenskrar listasögu
24. apríl, 2018Hugleiðing um íslenskan menningararf og gildi hans í íslenskri listasögu.Dagar hitasvækju og örvæntingar
23. apríl, 2018Vignir Árnason gagnrýnir bókina Dagar höfnunar eftir Elenu Ferrante.Deila