Út er komin bókin III. Um er að ræða þriðju bók ritlistarnema á BA stigi við Háskóla Íslands. III. hefur að geyma 29 verk eftir 21 höfund. Farið er um víðan völl allt frá öskukenndu hjónabandi, sjálfritskoðaðri fjölskyldusögu, hugljúfri landsbyggðarferð til sjö versa ljóðs sem rekur heimsenda í gegn. Bókin er afrakstur þrotlausra skrifa ungskálda og -höfunda. Og auðvitað, tilraun til heimsyfirráða.

Ritlistarnemar hafa áður gefið út bækurnar Hestar eru tvö ár að gleyma og Beðið eftir Sigurði. Bókina má nálgast í Bóksölu stúdenta.

Höfundar III. eru: Halla Mía Ólafsdóttir, Sigursteinn J. Gunnarsson, Trausti Dagsson, Anna Steinunn Ágústsdóttir, Gunnhildur Helga Steinþórsdóttir, Brynja Huld Óskarsdóttir, Jón Bjarki Magnússon, Katrín I. Jónsdóttir Hjördísardóttir Hirt, Daníel Geir Moritz, Esther Ýr Þorvaldsdóttir, Gunnar Jónsson, Þorgerður Ösp Arnþórsdóttir, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Jónas Reynir Gunnarsson, Birna Dís Eiðsdóttir, Bjarnheiður Erlendsdóttir, Dagbjört Vésteinsdóttir, Tumi Ferrer, Kristján Már Gunnarsson, Hertha María Richardt Úlfarsdóttir, Hlín Ólafsdóttir, Pálmi Freyr Hauksson og Steinunn María Halldórsdóttir.

Hugrás hefur fengið leyfi til að birta brot úr III, ljóðið Rétt fyrir lokun eftir Önnu Steinunni Ágústsdóttur:

Rétt fyrir lokun

Lítil tannaför í eplunum
í neðstu hillunni.

Vel kassadömu með ómótstæðilegan
fæðingarblett við efri vörina.
Reynist vera súkkulaði
sem hún þurrkar af sér
um leið og hún rennir eggjunum mínum
gegnum geislann.

Sé þá sogblettinn
sem gægist upp úr hálsmálinu.

 


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *