Aðalbygging Háskóla Íslands

Hugvísindaþing – 170 fyrirlestrar

Hugvísindaþing hefst föstudaginn 25. mars og stendur fram á laugardag. Á þessu þingi verður þemaþing með málstofum. Málstofur mynda heild og geta ýmist verið með 3, 6 eða 9 fyrirlestrum. Þátttakendur eru fastir starfsmenn, doktorsnemar, nýdoktorar og aðrir gestafræðimenn á vegum stofnana á sviðinu.

Fluttir verða um 170 fyrirlestrar í yfir 30 málstofum. Fjallað verður um:

  • bókmenntir – íslenskar sem erlendar, fornar sem nýjar,
  • þýðingar,
  • leikhús,
  • menningarfræði,
  • bragfræði,
  • málfræði,
  • máltækni,
  • táknmál,
  • tungumálakennslu,
  • hugræn fræði,
  • guðfræði,
  • kirkju,
  • heimspeki,
  • handrit,
  • sagnfræði,
  • fornleifafræði,
  • ferðaþjónustu,
  • góðæri,
  • kreppu og
  • umhverfismál.

Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Allar málstofur utan ein eru haldnar í Aðalbyggingu. Málstofan What China Thinks verður haldin í Háskólatorgi, stofu 101, þann 26. mars.

Nánari upplýsingar má finna á vef Hugvísindastofnunar.


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *